þriðjudagur, september 16, 2008

TILKYNNING

Borist hefur tilkynning um að nýtt frumefni hafi fundist "FRUMEFNIÐ KARL" Frumefnið finnst: í sófum, á kaffihúsum, börum, bjórkrám, á öðrum endanum á vindli eða veiðistöng. Sjaldan þó nálægt börnum.

Eðlisþyngd : 70-140 kg.

Og er breiðast um miðjuna. Eðliseiginleikar : Þenst út í nálægð peninga og valds, skreppur saman í grend við ryksugu og gólfskrúbba, fuðrar upp við strokur og hól, slokknar á við umræður um jafnrétti og kvenfrelsi. Þó ósjálfbjarga án kvenna.

Efniseiginleikar: Dregst að fokdýrum dauðum hlutum, tækjum og tólum. Ofsafengin viðbrögð við skort á ummönnun og eftirtekt þ.e. ósjálfbjarga án kvenna.

Notkun : Nauðsynlegt ( ennþá ) til æxlunar en ekki til teljandi gagns að öðru leiti. Hristist við notkun. Varúð: Getur eitrað líf kvenna ef þær eru ekki á verði.


Engin ummæli: