miðvikudagur, desember 31, 2003

Ahhhh. Þá er mar aftur komin í tveggja daga frí. Mín er svo rosa óheppin að græða ekkert aukafrí þessi áramótin. Samkvæmt minni vinnuskýrslu á ég frí mið og fimmtudag og vinna svo helgina. Og það passar lokað mið og fimmt. En það geta víst ekki allir grætt. Hefði nú samt alveg þegið einn aukadag eða svo. Er reyndar nýskriðin heim úr vinnu núna. Átti að vera til eitt, en það var brjálað að gera og einn nýr starfsmaður og það var ekki vinnandi vegur að skilja Ásgeir einann eftir með honum. Mesta furða að dregurinn skuli standa í lappirnar. Held hreinlega að það renni ekki í honum blóðið. Get ekki ímyndað mér að sá verði langlífur þarna. Þvílíkur sleði. Með hendur í vösum og kann varla að leggja saman 2 + 2. Og ég er ekki bara leiðinleg núna. Hann er bara svona. Oh my good. Aumingja Ásgeir. Enda var hann voða þakklátur mér að nenna að vera lengur. En hvað er þetta eiginlega með íslendinga. Tveir dagar frammundan lokað og alllt ætlar vitlaust að verða.
Allir að koma og fá pylsu með kartöflusalati og beikoni. Ég hreinlega man varla eftir annarri eins pylsusölu og í dag, kvöld og nótt. Jahérnahér.

Keypti mér leik af Absolutist sem heitir Bubble shooter og þvílík mistök. Nú sit ég gjörsamlega pikkföst við tölvudýrið og má varla vera að því að fara að sofa eða í vinnu. Hann er algjört æði. Kúluleikur. Nú er ég eins og litlu börnin. Jibbí. Nema hvað að ég komst að því að ég verð að fá nýja tölvu. Þessi gamla skrugga er allt og hæg og sein. Kúlurnar eru soldið mikið lengi að detta og springa. Úff. Bíð spennt eftir útsölum í janúar, gaman að sjá hvort eitthvað bitastætt verður á tilboði.

Nenni ekki meir í nótt, held ég fari að hvíla mig fyrir gamlárskvölið góða.
Ég óska ykkur vinum mínum og öðrum lesurum farsældar á nýju ári og að allir ykkar draumar megi rætast.
knus og kyss.

þriðjudagur, desember 30, 2003

Hæ allir mínir vinir og vandamenn. Þá er þetta yndislega frí búið og mín var á kvöldvakt í kvöld. Frekar lítið að gera, fólk hefur loksins skilið hvað það þýðir þegar fólk er beðið um að vera heima vegna ófærðar. Samt komu þó nokkrir. Allavega seldust upp allar dráttartaugar, bílkústar, skóflur og dekkjahreinsirinn kláraðist líka. Svona er þetta þegar fólk er ekki að átta sig á því að það er VETUR.

Eitthvað er hún Silla mín að þykjast vera þreytt á blogginu. En það gengur náttúrulega ekki. Sendum henni Andann, svo hún kominst í stuð aftur.

Annars verð ég nú bara að segja það, að þegar það kemur svona snjóbomba, einn, tveir og þrír, að þá fær maður svona dejavo fíling. Muniði hvernig þetta var hér í denn. Alltaf bilaður snjór og læti. Allir krakkarnir úti í snjókasti, byggjandi snjóhús og karla. Og ég man einn veturinn að þá höfðum við svona snjóköfunarkeppni. Snjórinn náði manni upp fyrir hné svo við fórum út í garð og kepptum um það hver gæti skriðið og kafað lengstu leiðina eða flesta hringina. Jísös hvað þetta var gaman. Nú sér maður þetta ekki lengu. Alveg hending ef maður sér krakkana hér í hverfinu út með sleða eða að byggja hús og fólk. Já, það er af sem áður var. Þessi mikla tölvuöld er allt lifandi að drepa. Bara vera inni og spila í PS og slíku. En allavega fékk ég þessa tilfinningu í dag. Veðrið svo gott og allur þessi snjór. Langaði í kuldagalla og fara að hoppa ofan af bílskúrum og búa til engla.

En nú fer að styttast í að þetta gamla ár okkar kveðji og nýtt tekur við. Hlakka bara til að sjá hvað árið ber til mín.
Jæja nú er best að fara að lúlla sér, vinna aftur annaðkvöld.
knus og kys.

föstudagur, desember 26, 2003

Jæja, jæja, jæja. Þá er mar mættur aftur. Loksins komin með kraft í puttana til að skrifa nokkrar línur hér. Aldeilis sem maður er búin að borða og innibyrgja. úff. Samt ekki eins slæmt og hér um árið. Aðfangadagur leið ljúfur og fagur. Áttum notalega kvöldstund með foreldrum og börnum. Mikið af fallegum og góðum gjöfum líka, eins og lög gera ráð fyrir.
Fórum til Guðnýjar og Sigga í gær eins og alltaf á jóladag. Áttu góða stund með þeim. Fengum hrikalega gott bakkelsi þar.
Enn ein misþyrmingin. Svo vour dætur og tengdasynir hér í hádegismat hjá oss í dag. Hangkjet og uppstúf. Namminamm.
Önnur misþyrming. Skilst að einhverjir séu í þessum aðstæðum núna.
Þið eigið alla mína samúð. æjæj.
En nú er bara legið yfir imbanum og algjör slökun í gangi.
Örn Aron fékk að vita að systir ætti von á sér, og brosið hefur varla farið af honum síðan. Mikil gleði.
Held ég láti þetta duga að sinni
knus og kyss

miðvikudagur, desember 24, 2003

Jæja þá er þessi erfiði biðtími á enda hjá ungu kynslóðinni. Klukkan orðin korter í jól. Hér er allt búið, versla allt sem til þarf í góðann jólamat, jólagjafirnar komnar í sparirötin og merktar þeim sem við á. Bara eftir að skipta á rúmum og moppa yfir gólfið. Stubburinn minn ætlaði aldrei að sofna. Spenningurinn alveg að fara með hann. Hafði það af að redda mér fríi í vinnunni á morgun. Svo hér verður bara kertaljósastemming. Ætla nú ekki að hafa þetta langt í kvöld.
Óska ykkur öllum gleðilegra jóla, og passiði upp á mallakútinn. Það er svo vont að verða alltof saddur. Þekki það af reynslu einna jóla. æjæjæjæ.
knus og kyss.

þriðjudagur, desember 23, 2003

Hér var ég búin að skrifa næstum því ævisögu mína og ekkert kom. Segi frá því aftur seinna.

föstudagur, desember 19, 2003

Jæja, eitthvað svaf ég nú betur síðustu nótt en þá fyrri. Sofnaði um hálf tvö en vaknaði svo um hálf fimm. Náði svo að sofna aftur um tíu og svaf til tvö. Afrekaði að þvo 2 vélar í dag og ganga frá þeim þvotti. Hjúkk hva mar er duglegur. Á bloggsíðum þeim er ég les tala konum um að baka og baka. Skil bara ekkert í þeim að fara ekki bara út í búð og fá þessar fínu smá kökur frá bakaranum. Annars er ekkert að marka mig. Ég er algjör sælkeri og finnst smákökur rosa góðar og borða mest af þeim á mínu heimili, svo það er best að baka ekkert. það sest þá ekki á mínar mjúku mjaðmir. Gurrý, my next door neighbour, kom hér í kvöld, ætlar að lána mér hægindastól í tiví rúmið, svo ég geti hennt þessum sófadruslum sem þar eru fyrir. Og svo vill hún endilega lána mér líka 2ja sæta sófann sinn líka svo hún geti rýmt til í sinni stofu. Dásamleg þessi elska. Mikið verður fínt hjá mér. Þetta endaði náttúrulega með meiri háttar spjalli og svo lét ég eftir henni og lagði Tarot spilin fyrir hana. Hún fór bara sátt frá mér. Enda ekki ég sem segi til um það sem á eftir að gerast heldur spilin. Ótrúlegt hvað þau eru nösk. Annars er ég öll að hressast af þessari ódæðis flensu. Verð heim á morgun og fer að vinna eftir helgi.
Borgar sig ekki að fara of snemma út, því þá slær manni bara niður aftur. Og ekki vil ég liggja í flensu um jólin. Ó nei.
Diddi fór og keypti jólagjafir fyrir stelpurnar í dag og þá er bara guttinn eftir.
Annars hef ég nokkuð stórar fréttir að færa og þær eru þær að ég er að verða AMMA Jáhá, Liljan mín er að verða MAMMA Ótrúlegt en satt. Verð að segja það að ég hlakka bara til. Fá eitt lítið kríli til að dedúa við.
En nú held ég að ég fari í bólið. Bauð Sillu í kaffi í dag, vona að hún hafi tíma til að koma. Lofaði henni voða góðu jólakaffi.
Þar til næst.
Knus og kyss.

fimmtudagur, desember 18, 2003

Þá er jóladiskurinn kominn á heimilið. Ótrúlegt hvað þetta hljómar öðruvísi svona heima í stofu, heldur en þegar maður stendur sjálfur uppi á sviði. Þessir tónleikar voru miklu hátíðlegri en ég gerði mér grein fyrir. Ekkert varð úr jólakortaskrifum í kvöld eins og áætlað var. Lonni stoppaði að sjálfsögðu í mat og svo kom Lilja líka og hún þurfti líka að borða, og svo var hún hér til klukkan að verða 11 og þá kom Baldur að ná í hana. En fjölskyldumyndirnar voru settar á vegg í kvöld. Loksins.
Þannig að nú er stofan orðin eins og hún á að sér. Annars er þetta máttleysi sem fylgir þessari pest mig alveg lifandi að drepa. Hef ekkert úthald og er þvílíkt þreytt að það hálfa væri hellingur. Síðasta nótt var hreint út sagt ömurleg. Svaf ekkert fyrir stíflu i nefi. Held ég hafi aldrei orðin svona stífluð á minni löngu ævi.
En góðir hlutir gerast hægt eins og kellingin sagði. Stíflan er að bresta, vona bara að hún eflist ekki aftur þegar ég er komin í bólið. Og svo er bara að bíða eftir að máttleysið láti undan síga líka. Ansi hrædd um að ég verði heima úr vinnu á morgun líka. Og með móral. Skil ekkert í mér, ég er sem betur fer ekki oft veik, telst nú frekar heilsuhraust, en ég fæ alltaf samviskubit ef ég er heima. Kannski maður ætti að hugsa eins og sumir, taka út sína tvo daga í mánuði, ha.
Nei held ekki. Bara sona smá hugleiðingar. Þekki nú samt fólk sem hugsar svona og það liggur við að það sé hægt að halda dagatal eftir því. Viss pass, veikt tvo dag í mánuði. Jísös hvað sumt fólk er bilað. Það er ekki að hugsa um hvað gerist ef það yrði nú alvarlega veikt og þyrtfi að vera frá vinnu í nokkrar vikur eða svo. En nóg um það.
Annars verð ég nú að segja eins og Silla skil ekkert í því að engin kommennti á það sem ég pikka hér inn. Og svo verð ég líka að segja það að Lonni Björg mætti vera duglegri að blogga. Hún hefur ekki skrifað í marga daga.
Annars er þetta að verða gott, komin tími á bólið. Vicks innhalator í nebbann og krossleggja fingur, og vona að stíflan haldi ekki fyrir mér vöku aðra nótt.
Knus og kyss.

miðvikudagur, desember 17, 2003

Já það er alltaf gott að vita að það eru fleiri í eymdinni en maður sjálfur. Silla er komin með pestina líka. Samt minnir mig að hún sé nýbúin. Greyið stelpan. Eins og það sé ekki nóg að fá þennan fj.... í eitt skipti. Silla mín þú átt alla mína samúð. Þessi flensa mín hefur
fært sig upp um eitt stig. Og nú er svo komið að ég hreinlega get ekki andað með mebbanum, það er eins og ég sé með
korktappa í báðum nösum, svo er húðin orðin aum. Úff úff. Var að horfa á Survivor og verð að segja það að ég er bara ánægð með sigurvegar þessarar keppni. Hefði nú aldeilis orðið brjál ef Jon hefði unnið. Þá held ég að ég hefði bara hreinlega hætt að horfa á þessa þætti. En trú mín á mannfólkið var endurvakið með þessum sigri Söndru. íhaaaa.
Var að reyna að setja inn link í þessu bloggi mínu á Sillu, veit ekki hvort það hefur tekist. Kemur bara í ljós.
Svo er það jólakorta skrifin á morgun. Er nú búin að draga þetta aðeins saman var með lista upp á 60-70 kort. Er komin
með þetta niður í svona 40 kort. Veit ekki til hvers maður er að senda ár eftir ár kort til fólks sem maður hefur ekki séð í
10 ár eða meira. Svo er að sækja diskinn sem tekinn var upp á tónleikunum, búin að biðja Lonni að fara fyrir mig þar sem mín er lasin heima úr vinnu. Og að sjálfsögðu
ætlar hún að gera það fyrir mömmuna sína. Svoleiðis að annað kvöld verður diskurinn settur undir geislann, kveikt á kerti við eldhúsborðið og hellt upp á jólakaffi og skrifuð jólakort. Það er ótrúleg stemming sem fylgir því. Kláraði að pakka inn
gjöfunum sem eiga að fara norður og fór með þær til pabba og mömmu. Fékk pláss í kassanum hjá þeim. Þá er eftir að kaupa fyrir krakkana mína og tengdasynina. Og svo eitthvað í viðbót fyrir pa & ma. Hitti Guðnýju á msn-inu í dag og
sagðist mundi hringja í hana í kvöld, en þetta litla heilabú mitt mundi það ekki fyrr en ég settist hér við blogg, og nú
er það orðið of seint. Ég bara man ekki neitt orðið stundinni lengur. uss su suss. Held að þetta sé komið í bili.
Sí ja.
Knus og kyss

þriðjudagur, desember 16, 2003

Og ég sem hélt að ég væri sloppin við allar pestir. En hér sit ég, búin að snýta mér í heila eldhúsrúllu og augun gráta eins og þau séu á launum við það. Þvílík og slíkt. Og það á þessum tíma, má bara ekkert vera að því að vera veik. En maður verður bara að taka á honum stóra sínum.
Gleymdi nú alveg að segja frá kraftaverkinu sem átti sér stað hér í gær. Haldiði ekki að Stubbalingurinn minn hafi tekið til í herberginu sínu og það svo vel að það er næstum eins og ég hafi gert það. Enda var óhreinatauskarfan alveg á ælunni eftir þá tiltekt. Er nebbilega að reyna að venja hann af því að henda óhreinum fötum í gólfið. Þannig að í gær þegar við vorum að fara á jólaballið komst litli maðurinn að því að hann átti ekki hreina sokka. æjæj. Vona bara að hann gleymi ekki sokkaleysinu strax aftur.
Vorum í mat hjá Lilju mágkonu í kvöld. Viðar Þór hefði orðið 25 ára ef hann hefði lifað. Svo þau buðu systkynum sínum í mat.
Ósköp notaleg stund hjá þeim. Komst reyndar að því að hálf ættin er kvefuð og með beinverki. Þvílíkt ástand.
Svo var brunað upp í Æsufell til Lilju og Baldurs í afmæliskaffi. Þannig að nú er maður loksinns búin að hitta tengdaforeldrana. Bara ágætisfólk að mér sýndist.
Diddi fór með dagatölin í gormun í dag til Bigga svo nú er bara að pakka inn og setja í póst á morgun. Þetta er nú allt að
smella. Jæja en ég er nú eitthvað andlaus og held að besta ráðið væri að skríða upp í rúm og athuga hvort þetta kvef og
þessir beinverkir sofist ekki úr mér í nótt.
Leiter you all.
Knus og kyss.

mánudagur, desember 15, 2003

Uss suss suss. Nú er mín aldeilis búin að vera löt við bloggið. Annars er ég nú hálf dösuð eftir þennann dag. Byrjaði á því að fara á jólaball í vinnunni með stubbnum og við buðum Antoni besta vini með. Held bara að þeir hafi skemmt sér ágætilega. Aðalumræðuefni dagsinns var jólasveinninn og tilurð hanns. Örn er kominn á þá skoðun að jóli sé ekki til, og segir að "ég" þurfi að sætta mig við við þá staðreynd. hmmm. Jæja svo ætlaði ég með Jónu svilkonu á Karlakórstónleikana.
Og hvað haldiði. Hringir hún ekki í mig í dag og býður mér út að borða á undan. Og við fórum á Humarshúsið. Oh,my god.
Þvílíkur matur. Humarinn var engu líkur. Ég fæ vatn í munninn að hugsa um það. Og í gær vorum við í mat hjá Öddu. Hún bauð upp á bayonskinku, lambalæri og grillaða kjúkklingavængi.

Tónleikarnir voru bara mjög góðir og litlu strákarnir í drengjakór Neskirkju voru æði. Þessar björtu og flottu raddir.
Algjört eyrnakonfekt.
Svo á Lilja mín Bryndís afmæli í dag, orðin 21 árs. Aldeilis sem þessi börn manns fullorðnast, og Lonni mín að verða 26 í janúar. æjæjæjæææ. En til hamingju Lilja mín.

Fékk asskoti góða uppskrift af jólaköku, læt hana fljóta með hér.
Verði ykkur að góðu.

Jólakaka


1 bolli vatn
1 bolli sykur
4 stór egg
2 bollar þurrkaðir ávextir
1 teskeið bökunarsódi
1 teskeið salt
1 bolli púðursykur
1 bolli sítrónusafi
1 bolli hnetur
1 FULL flaska af Grand



Smakkið Grandið til að vera viss um að það sé ekki skemmt.
Takið stóra skál.
Athugið Grandið aftur til að vera alveg viss um að það sé ekki skemmt.
Hellið í einn bolla og drekkið. Endurtakið.
Kveikið á hrærivélinni, hrærið 1 bolla af smjöri í stóra, mjúka skál.
Bætið 1 teskeið útí og hrærið aftur.
Athugið hvort Grandið sé nokkuð farið að skemmast, fáið ykkur annan bolla. Slökkvið á hrærivélinni.
Brjótið tvær fætur og bætið í skálina og hendið út í bollanum af þurrkuðu ávöxtunum. Hrærið á kveikivélinni.
Ef þurrkuðu ávextirnir festast við hrærararrarna losið þá þá af með rúfskjárni.
Bragðið á Grandinu til að athuga brestgratið.
Næst, sigtið 2 bolla af salti. Eða einhverju. Hverjum er ekki sama.
Athugið Grandið. Sigtið sítrónusafann og teygið hneturnar.
Bætið einu borði. Skeið. Af sykri eða eitthvað. Hvað sem þú finnur nálægt.
Smyrjið ofninn.
Stillið kökuformið á 250°.
Gleymið ekki að hræra í stillaranum.
Hendið skálinni út um gluggann.
Athugið Grandið aftur. Farið að sofa.

(Finnst nokkrum hvort sem er ávaxtakökur góðar?).

Held ég bjóði góðri vinkonu með í þennann bakstur.

Læt þetta duga í bili.
knús og kossar.

fimmtudagur, desember 11, 2003

Þessi jólasaga er ritgerð eftir barn í grunnskóla og er um Jesús frá
sjónarhóli barna.


Sá sem hefur orðið frægastur úr Biblíunni er Jesús. Hann var frá
Nazaret í Egyptalandi. Hann fæddist á jólanótt í fjósi, vegna þess að öll
hótel voru full. Mamma hans hét María og stjúppabbi hans Jósef. Hann var
ekki raunverulegur pabbi Jesú, því María var áður gift einhverjum Gabríel,
en hann var floginn í burtu. Þegar Jesús var nýfæddur áttu þrír jólaveinar
leið fram hjá fjósinu og þegar þeir sáu litla barnið, náðu þeir í nokkrar
jólagjafir og reykelsi handa hjónunum, en það veitti sannarlega ekki af þar
sem þau höfðu ferðast allan daginn á asna, af því að það átti að telja þau.

Jesús var ekki skírður fyrr en seinna, því í þá daga voru börnin
ekki skírð fyrr en þau voru orðin fullorðin og höfðu lært að synda, því þau
voru nefnilega alveg færð í kaf. Þegar Jesús varð átta ára gaf pabbi hans
honum Biblíu, og þegar hann var tólf ára kunni hann hana utan að, og það
varvel af sér vikið, því í þá daga var Biblían svo stór að það varð að vefja
hana upp á kefli. Hann var líka duglegur að læra sálma. Hann gat galdrað
þegar hann var bara smá strákur. Hann var reyndar mesti galdramaður sem
uppi hefur verið. Jesús var mjög sérstakur. Hann gekk um og lagði gátur fyrir fólk
sem það átti að reyna að leysa, en það tókst sjaldan. Hann gat líka gengið
í gegnum vatn og eld, án þess að það kæmi við hann. Hann gat líka gengið á
vatninu. Það var á Genezaretvatni, þar sem hann gekk út að fiskibáti til
kaupa fisk. Pabbi minn segir að það hafi verið ís á vatninu, en hann trúir
heldur ekki á Guð og Jesú.

Jesús gerði líka mikið fyrir umferðina. Einu sinni þegar hann var á
gangi í Jerúsalem, mætti hann lömuðum manni sem lá í rúminu sínu úti á miðri
götu, Jesús sagði ; Tak sæng þína og gakk. Maðurinn gerði það og þá gátu
bílarnir aftur komist leiðar sinnar. Svo var það ekkja sem átti son, en ég
bara skil ekki hvernig hún gat átt hann fyrst hún var ekkja. Jesús tók son
ekkjunnar í kraftaverkameðferð og við það varð hann mjög vitur, sagði fólk.

Eitt af því merkilegasta sem Jesús gerði var að stjórna borðhaldinu
í eyðimörkinni. Það var þegar þessar 5 þúsund manneskjur stóðu aleinar úti
í eyðimörkinni án þess að eiga vott né þurrt. Þá gerði Jesús kraftaverk og
allir fóru saddir í rúmið. Jesús gat ekki allaf komið fram í eigin persónu.
Stundum var hann dulbúinn sem hirðir, og einu sinni kom hann fram undir
fölsku nafni.



Held ég láti þetta duga í dag þar sem ég var að koma af næturvakt, rakst á þetta í vinnunni og bara hreinlega
varð að láta þetta flakka. Fannst þetta alveg dásamleg saga. Og nú er ég að geispa golunni.
Leiter.
Knus og kyss.


miðvikudagur, desember 10, 2003

Hér sit ég gjörsamlega með augun í kross, enda búin að vaka í 33 klukkustundir. Fyrir utan það að ég dottaði í 20 mínútur áður en ég fór á kóræfingu í kvöld. Það er nebbilega þetta með að byrgja brunninn áður en barnið dettur í hann. Það er alveg sama hversu oft ég loka mínum ég dett alltaf í hann aftur og aftur. Þið eruð kannski að velta því fyrir ykkur hvað ég er að bulla, þá er ég að tala um kaffi eftir klukkan 21. Vorum með góða tónleika í gærkvöldi og svo kom Sillan með mér heim og að sjálfsögðu lagaði mín kaffi og bang. Um leið og ég lagðist uppí urðu augun á mér eins og undirskálar og mér var gjörsamlega fyrirmunað að loka þeim. Þannig að mín mætti í vinnu kl. 7.30 ósofin og náði svo litlum 20 mín. eftir vinnu.

En hvernig er það með bílinn þinn Silla mín. Hvað var að ? Spyr þig hér því að ég komst ekki inná kommentið þitt. Dont know why. Annars sit ég hér og bíð eftir þurrkaranum. Hér hefur ekki verið þvegið í heila viku og rúmlega það. Eða síðan við byrjuðum að mála. Er að þurrka úr vél númer 3. Sú fjórða er að þvo. Og ég er ekki komin niður í hálfa körfuna. En það er í góðu lagi, hef góðann tíma á morgun. Hjónin voru voða dugleg og þrifu baðherbergi og hjónó eftir að ég kom heim af æfingu. Keypti mér tvo litla rosa krúttlega snjókarla í fína gluggann minn í dag. Og það er spiladós í þeim. Þeir eru bara sætir. Og þá er ég búin að fá nýtt í gluggann þessi jólin. Verð nebbilega alltaf að fá eitthvað nýtt í hann á hverju ári. Var að hora á Survivor í endursýningu núna áðan. Verð bara að segja það að þessi Jon er algjörlega siðblindur. Þvílíkur lygari og hottintotti. Ég gjörsamlega sé rautt og það rýkur úr eyrunum á mér þegar hann er á skjánum. Eins gott að þessi syrpa er að verða búin. Hjúkk.
En nú er best að róa sig niður fyrir svefnin svo ég verði ekki andvaka aðra nótt. Koma sér í bælið svo að ég vakni með Erni í skólann á morgun. But, we´ll meet again, some suniday blablablablablablablabla.............................................
Knus og kyss

sunnudagur, desember 07, 2003

Þá er þessi dagur að kveldi liðinn og komin nótt, enn eina ferðina og ég ekki farin í ból frekar en aðrar nætur. Mér er reyndar sagt að með aldrinum þurfi maður að fara fyrr í rúm og fyrr á fætur. Sé ekki nokkra breytingu í þá átt hjá mér. Ég er næturdýr dauðanns og verð það sjálfsagt alltaf. Vaknaði að sjálfsögðu aðeins of seint í morgun fyrir generalið, mætti 20 mínútum of seint. En ég var ekki sú eina. Það er samt alveg ferlegt að fara beint á æfingu svona nývaknaður. Röddin er í allgjörri hvíld og ekkert heyrist nema ýskur og hvísl. En það lagaðist er leið á daginn. Ég verð nú að segja það að mér finnst helv... hart að borga fullt af peningum fyrir leigu á Hallgrímskirkju og fá svo ekki neinn tíma til að renna yfir prógrammið og inn og útgöngu. Frekar fúlt, eða hvað finnst ykkur. Jæja þetta er nú allt að smella. Búin að raða svona 5sinnum í nýja skápinn og taka jafn oft út úr honum aftur. En held að ég sé komin að niðurstöðu. Svona verður það. Og hana nú. Þá er Lonni búin að panta flug til Aussi, hún fer 26 janúar. Vildi svo gjarnan að ég væri að fara með henni en það er víst ekki á allt kosið. Hún verður bara að knúsa Rúnu, Egil og krakkana frá mér. Fengum prógrammið af tónleikunum í morgun og verð að segja það, að Silla er alltaf jafn smart í sér. Og svo er líka gaman þegar textarnir eru með. Gefur þessu meira gildi. Held ég láti þetta duga að sinni. Sí ja leiter.
Knús og kossar.

laugardagur, desember 06, 2003

Eins og þið sjáið sem þetta lesið er klukkan orðin ansi margt og ég þarf að vakna snemma í fyrramálið, því það er general prufa klukkan hálf tíu. Ótrúlegt hvað það er leiðinlegt að fara að sofa á kvöldin. Jafn leiðinlegt og mér finnst að fara á fætur snemma á morgnana. Við fórum í gær og keyptum okkur nýjan stofuskáp í staðin fyrir þann sem datt í sundur. Og nú er ég sveitt og þreytt að reyna að koma dótinu mínu fyrir. Hinn hafði miklu fleiri hillur en þessi nýji. En þessi nýji er samt mikið flottari. Ótrúlegt hvað mar getur safnað miklu dóti í kringum sig. Og svo finnst manni jafn vænt um þetta allt. Verts að mamma orkubolti er búin að vera lasin, annars væri þetta allt saman frá. Hún er eins og hvirfilbilur þegar hún fer í gang. Enda sagði hún það í síman í kvöld að henni fyndist alveg ferlegt að geta ekki komið og hjálpað til. Hún veit nebbilega ekkert skemmtilegra en að taka til og gera fínt. Örn minn Aron fór til Lonni að horfa á Idolið og hún kom svo með honum til baka og gaf mömmu gömlu einn bjór eða svo. Og nú er hún bara ný farin. Svo ég ákvað að krota hér nokkrar línur þar sem ég skrópaði í gær. Gaf Öddu gömlu hillurnar og Ámundi hennar ætlar að reyna að tjasla þeim saman með vinklum og einhverju dóti sem ég veit ekki hvað er. Vona að þær verði bara fínar hjá þeim. En ég komst að því þegar ég tæmdi þann gamla að ég á allt of mikið að myndum. Veit hreinlega ekki hvað ég á að gera við þær. Og svo er heil skúffa af myndum sem á eftir að setja í albúm. Verð að fara að drífa í þessu. Held ég kaupi bara gamaldags möppur og myndaplast í staðin fyrir þessi litlu albúm sem detta í sundur við þriðju skoðun. Er með nokkur svoleiðis og held ég skipti þeim bara út fyrir þessi gömlu. Annars var ég að spá í hvort mar ætti að hætta þessu bloggi. Nú er fólk (Guðný) farin að segja að nú sé bara nóg að lesa bloggið og þá þurfi ekkert að hringja eða hittast. Fái allar fréttirna hér. Snökt,snökt. Hélt nú samt að ég væri skemmtilegri en bloggið. huhu. Jæja dúllurnar mínar, nú er ég farin í ból svo ég vakni á generalið.
Knús og kossar.

fimmtudagur, desember 04, 2003

Þá er loksins búið að mála allt. Bara eftir að setja punktinn yfir iið í þrifum. Búin að setja upp jólagluggann minn fræga að undanskildum jólasnjónum. Átti mebbilega brúsa síðan í fyrra og komst að því að þeir endast ekki árið, snjórinn lak bara
niður gluggann í taumum. Svo ég verð að hoppa í búð á morgun og kaupa ferskann snjó í brúsa. Held að ég hugsi mig vel um áður en ég tek mig
til og mála herbergin. Þetta er nú meiri óreiðan sem fylgir þessu. Og í öllu þessu stússi mínu þá steingleymdi ég að það
væri aukaæfing í kvöld. Þannig að ég skrópaði ekki bara í gær heldur aftur í kvöld. Fékk vægt fall þegar Bryndís hringdi og spurði hvort ég væri veik eða eitthvað. Ekki skrítið því að ég mæti ALLTAF. Generalprufan á laugardaginn og eins gott að gleyma því ekki aftur. Ég var nebbilega búin að lofa mér í vinnu á laugardaginn frá 7.30 til 14.00. Gaurinn varð frekar fúll út í mig þegar ég hringdi og afboðaði. So sorry. What can a woman do. Fékk nokkra góða gesti í dag. Ásthildur kom og Adda kom og Lonni kom og Halli Palli kom og hjálpaði Didda að setja upp gardínubraut og kappa. Fannst ég víst ekki nógu stöðug í gær í stofusettinu og hringdi 911 í Halla Palla og bað hann að hjálpa sér með eldhússettið. Manni getur nú sárnað.
Gaf mér tíma í að taka einn óþverra við Öddu og bar sigur úr bítum. Búin að kíkja aðeins á spóluna sem Lonni kom með en á fullt eftir. Hlakka til að fá tíma til þess að liggja eins og skata fyrir framan imbann og gera ekki neitt. Svo kemur tryggingarmaðurinn á morgun að meta
tjónið sem við urðum fyrir. Það verður gaman að sjá hvort við getum keypt okkur ný glös. Því nú á ég enginn sparglös lengur og jólin að koma, og þá vill maður drekka jólakókið úr fínum glösum. Held ég láti þetta duga í bili. Best að skríða upp í til spúsanns og kúra. Þangað til næst.
Knús og kossar.

miðvikudagur, desember 03, 2003

Jæja,jæja,jæja. Þá er mín mætt aftur eftir 2ja daga hlé. Úff, ég var valveg búin að steingleyma hvað það er mikið fyrirtæki að mála. Hér er allt á rúi og stúi. Og það er sko langt síðan það hafa komið svona margir gestir eina helgi og þessa síðustu.
Hér fór eiginlega ekkert að ganga í málardæminu fyrr en Ámundi kom og bað um bol. Þá fóru hlutirnir að ganga. Hann kom svo beint úr vinnu aftur í gær og þá var klárað að mála. En æjæj, hér varð smá slys. Helv.... stofuskápurinn gliðnaði í
sundur og öll glösin okkar fóru í gólfið. Jíses kræst. Allur kristalllinn og gamla gamla bollastellið frá afa og ömmu Didda.
Ásamt kakó könnunni sem fylgdi því. Það var sárt að sjá þetta allt fara mélinu smærra. En gott að enginn slasaðist. Diddinn minn hrasaði í stiganum og datt á skápinn og bæng. Bara gliðnaði þannig að hillurnar duttu. Þetta er svona þetta Ikea dót, allt fest saman á einhverjum litlum töppum. En hér er samt orðið voða fínt, bara eftir að mála skáphurðirnar í ganginum og ganga frá og þrífa. Og það er ekkert smá af ryki hér eftir þessi herlegheit. Skrópaði á kóræfingu í kvöld sökum anna hér heima, og er með bullandi móral. Því mín er ekki með þetta allt á hreinu. Tók mér sumarfrí í vinnunni í dag og á morgun. Var svo heppinn að eiga inni 5 daga. Svo nú á ég 3 daga eftir. Notalegt að eiga svona inni þega maður þarf aukafrí. Sá Stínu stuð í Ísland í bítið í morgun. Og hún var bara voða fín og einlæg. Verst að hafa misst af útgáfuteitinu í kvöld, en svona er lífið, það er víst ekki allt fengið. Nú held ég að ég verði að fara að drífa mig og skrúbba eldhúsgólfið og koma því í lag.
Heyrumst síðar.
Knús og kossar.

sunnudagur, nóvember 30, 2003

Góða kvöldi lesarar mínir kátir og glaðir. Þá er búið að kaupa fullt fullt af málningu og byrjað að mála. Það gengur samt ekki nógu hratt fyrir sig. Við eru í afturábakgírnum hjónin. En við ætlum að vera voða dugleg á morgun. Diddi fór í Hörpu-Sjöfn með skrifað á blaði frá mér, nöfn og litanúmer á þeim litum sem við völdum. Arrrrrrrg, haldiði ekki að ég hafi skrifað vitlaust litanúmer við einn litinn. Og liturinn sá er alls ekki nógu góður. Vona að það sé opið á morgun svo við getum farið með þennann ljóta lit og athugað hvort ekki megi bjarga honum. Plíííís góði Guð. Fiktaði aðeins í blogginu hennar Lonni og setti inn linka á heimasíður og blogg annarra. Voða dugleg. Þarf svo að setja inn hjá henni Commentið og teljara. Þá verður þetta orðið gasalega smart hjá henni. Svo þvoði ég stofu og eldhúsgardínur í dag og pússaði alla myndaramma, og þeir eru sko ekki fáir. Ætla ekki að hafa þetta lengra í kvöld, þarf að fara að koma mér í bólið svo ég verð hress á morgun. Sýnist á öllu að ég verði að beila á Kramhúsið með kórnum. So bí it.
Góða nótt og sofið rótt.
Knús og kossar.

laugardagur, nóvember 29, 2003

Jæja, jæja. jæja. Komin aftur. Jibbíjey. I feel good. dararara. Nei, nei, bara voða kát. Var að koma frá Halla Pétri og Lindu.
Þau voru að koma frá Kanarý. Fóru með allar óframkölluðu filmurnar mínar og komu með þær framkallaðar til baka. Hrikalega gaman að skoða þessar GÖMLU myndir. Kostaði skíð og ingenting að framkalla þær þarna út. Þau fóru með 11 filmur og eina einnota myndavél og komu með tólf lítil myndaralbúm og tólf filmur til baka. Og herlegheitin kostuðu aðeins 6100 krónur. Sparaði feitt á því. I´m walking on sunshine..........
Þau buðu okkur yfir í kvöld í spil og bjór. Við tókum nokkra kana og að sjálfsögðu unnum við konurnar. Linda í 1sta sæti og ég í öðru. We are the champions................ Annars er komin tími til að fara í ból. Hér verður málað upp um alla vegi og loft á morgun. Loksins búin að koma sér saman um litina. Ég þarf að hafa allt í lit. Þoli ekki hvíta veggi. Allt samt voða mjúkir og hlýjir litir. Svo það þarf að vakna snemma og fara í "Harpa gefur lífinu lit" og kaupa liti. Adda kom hér aðein í kvöld og einn óþverri tekinn. Og viti menn. Ég vann með miklum yfirburðum. Svo ég hætti eftir eitt spil. Hætta skal leik þá hæst stendur. Og talandi um gömlu myndirnar. Lilja mín hefur lagt mjög mikið af og hafði maður nettar áhyggjur af því. En þegar myndirnar voru skoðaðar þá vorum við hjónin sammála um að hún væri mikið flottari í dag en þá. Og þetta voru svona 2ja ára myndir. Svo er Kramhúsið á sunnudaginn með Gospelsystrum. Vonandi mætir Silla eins og hún talaði um. Þá skil ég bara kallinn einann eftir heima í málningarstússi, sem og á morgun því þá förum við Örn í laufabrauð út í skóla.
En nú er nóg komið, mín komin í stutt helgarfrí og nú ætla ég í ból og hvíla mig mikið.
Knús og kossar. Es. Þetta er ég í Kramhúsinu á sunnudaginn.

föstudagur, nóvember 28, 2003

Jæja dúllurnar mínar. Hér er ég mætt aftur. Ég get bara svarið það að þetta er orðið eins og dóp. Ég bara hreinlega get ekki farið að sofa fyrr en ég hef bloggað. Var að koma af kvöldvaktinni, svo stubbur á morgun 12-18 og svo tveggja daga frí. Jeiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii. Oh hvað mig hlakkar til. Spúsinn er að tala um að mála um helgina, vona bara að hann standi við það .
Annars er ég með videoið í gangi og er að horfa-hlusta á Idolið. Wild card þáttinn. Og ég er nú bara hneyksluð að krakkarnir hafi ekki fengið að syngja aftur. Annars er ég voða doll núna og hef eiginlega voða lítið að segja. Sit hér og geyspa þessi heil ósköp. Held að ég láti þetta duga í kvöld, verð vonadi duglegri annað kvöld.. Sí ja leiter.
Knús og kossar.

miðvikudagur, nóvember 26, 2003

Góða og blessaða kvöldið. Var að stíga inn úr dyrunum. Fór á kóræfingu, það var samæfing með Voxurum og Stúlknakórnum, Úff, hitinn í þessu húsi þegar allar þessar konur eru samankomar. Svo mætti fiðluleikarinn, og hann var alveg hreint æðislegur. það er nú meira hvað mér finnst þetta hljóðfæri dásamlegt. Yndisfagrir tónar. Síðan rokið beint upp í Ými þar sem Strætó kórinn var með tónleika. Þeir voru bara ferlega góðir. Sungu lögin sem eru á diskinum sem þeir voru að gefa út. Og að sjálfsögðu var hann keyptur. (diskurinn). Silla kom í dag og margt var spjallað. Þurfum að hittast oftar, núna þegar við hittumst ekki lengur á æfingum. Svo er ég núna að bíða eftir að tíminn líði því að ég er að fara á næturvakt. Jísös, mín verður dauð á morgun, því að þá á ég kvöldvakt. Ussuss, þetta blogg mitt er farið að hljóma eins og vinnuskýrsla. Annars sendi Lilja mín á mig sms og spurði hvort ég vildi baka til jólanna með henni. Og ég sem ætlaði að láta bakaríið baka fyrir mig. Spurning hvort maður geri það ekki fyrir hana þessa elsku. Hún er jú að reyna að vera voða myndarleg húsmóðir.
Kannski að maður taki vanilluhringi og piparkökur. Þær eru alltaf bestar. Svo er laufabrauðsbakstur í skólanum hjá Erni á laugardaginn. Og við skrifuðum okkur fyrir 20 kökur. Svo við þurfum að mæta og skera út. Gaman gaman. Jæja dúllurnar mínar læt þetta duga í bili, er að hjálpa drengnum að læra. Merkilegt að það skuli alltaf dragast framm á kvöld og hann orðin þreyttur og úrillur. Svo kveð ég að sinni og fer að næra fólk á pyslum með kartöflusalati í nótt.
Knús og kossar.
Skipti, skipti og meiri skipti. Mundi það í morgun klukkan hálf átta að það átti að vera saumó í kvöld hjá Hrönn. Síðasti fyrir jól, svo ég varð náttúrulega að redda mér öðruvísi. Endaði á því að skipta á næturvakt annað kvöld. Jís það sem mar leggur á sig. Ég er eiginlega búin að komast að því að ég hreinlega má bara ekkert vera að því að vinna. En það er ekki í boðinu. Svo maður verður að redda því sem reddað verður. Labbaði upp í Suðurfell í morgun, og á leiðinni byrjaði að kyngja niður snjónum og ég var eins og snjókelling þegar ég náði á leiðarenda. Og mikið var þetta hressandi að byrja daginn svona. Held að það sé langt síðan ég mætti svona vel vakandi í vinnuna að morgni til. Slapp samt við að labba heim því að Diddi kom með bílinn og var þá búinn að láta setja vetrardekkin undir. Allt annað líf. Þá þarf maður ekki að hafa áhyggjur af því að spóla og komast hvorki lönd né strönd. Saumóinn fínn í kvöld og við ákváðum það að breyta honum aðeins eftir nýárið og hafa léttkvöldverðisklúbb og sleppa þessum tertum og heitu réttum. Sýndi þeim bloggið mitt, því sumir voru ekki alveg að skilja út á hvað þetta gengi, og fannst hálfskrítið að skrifa sona dót sem hver og einn gæti lesið. Þær ættu bara að prófa. Ég er viss um að þær yrðu húkkt eins undirrituð. Sætu stjarfar við tölvuna og pikkuðu í gríð og erg. Svo er Stætó kórinn með tónleika í Ými annað kvöld og ég ætla að reyna að stinga af snemma af kóræfingunni. Báðir bræður Didda og mágur eru í kórnum svo ég verð að komast. Og ekki skemmir að þeir eru að frumflytja lag og ljóð eftir tengdapabba. Lilja systir Didda kunni lagið frá því að hún var ung og söng það inn á spólu og svo var einhver snillingur sem skrifaði nótur eftir því. Þetta er alveg yndislegt lag, og þó að ég næði bara að heyra það þá væri ég ánægð. En nú er klukkan orðin margt og ég þarf að lúlla soldið svo enn og aftur.
Knús og kossar.

mánudagur, nóvember 24, 2003

Úff. loksins er hún liðin þessi vinnuhelgi. Hún varð reyndar öðruvísi en ætlað var vegna veikinda næturstarfsmanns á laugar og sunnudagsnótt. Í hnotskurn var helginn einhvern vegin á þessa leið. Vinna frá hálf átta til sex á föstudag, heim í sturtu og beint til Stebbu í fordrykk fyrir jólahlaðborð. Mætt á Loftleiði um átta og ég mæli hiklaust með þessu danska jólahlaðborði þeirra. mmhmm. Fæ vatn í munninn að hugsa um það. Svo var farið upp í keiluhöll þar sem við á Bústaðavegi ætluðum að rústa Suðurfellinu í keilu. En það var klukktíma bið svo við fórum bara heim. Komin heim um hálf eitt og í rúm um eitt. Svaf eins og kreist sítróna til klukkan 12 og fór þá í vinnu og var til sex. Og þar sem það er víst í mínum verkahring að redda fólki ef það koma upp veikindi og svoleiðis leiðindi og ekkert fólk var að hafa, ýmist svöruðu ekki eða nenntu ekki, að þá bara tók ég að mér næturvaktin og mætti aftur klukkan 23.30 og var til klukkan 11.15 á sunnudagsmorguninn. Þá kom ein og kláraði mína vakt sem var til sex. Svo aftur á sunnudagsnóttina 23.30 til átta. Þannig að frídagurinn minn í dag sem átti að fara í það að setja upp jólagluggann minn fræga í eldhúsinu fór í svefn og ekkert gert. Er reyndar búin að þvo allann þvottinn. Er svo á kvöldvakt á morgun því að kóræfingin var færð til miðvikudags svo enn þurfti ég að fá skipt. Átti nebbilega að vera í fríi á morgun. Ótrúlegt hvað þessar elskur sem vinna með mér eru liðleg við mig. Svo þegar ér var rétt búin að redda þessum skiptum hringdi Jóhanna í Suðurfell og bað mig að koma í fyrramálið og hjálpa sér að taka á móti vörum og ganga frá, klukkan 9 til 2. og svo kvöldvaktin kl. 15.30 til 01.00. Ég verð dauð annað kvöld. Spurnig hvort ég komist upp stigana. Skil bara ekkert í því að ég skuli alltaf lenda upp á þriðju hæð. Næt þegar ég flyt verða ekki skoðaðar íbúðir nema þær séu á jarðhæð eða í lyftuhúsi. Og hana nú. Nú svo var mín að setja í jólalíkjörin, eins og allar aðrar húsmæður virðast vera að gera núna. Þessi sem kom í kökublaði Gestgjafans. Það var sko ekki heiglum hennt að fá vanillustangirnar, þær voru uppseldar búð eftir búð. En það hafðist að lokum. Eins gott að hann bragðist vel svo ég þurfi ekki að sjá eftir vodkanum í þetta. Jæja dúllurnar mínar það er enn og aftur komin tími á ból hjá mér. Ég þarf snemma af stað í fyrramálið því að ég þarf að LABBA í vinnuna. Það er svosem ekkert langt upp í Suðurfell en það er kallt og hált. Svo nú fer ég í hátt.
Knús og kossar.

föstudagur, nóvember 21, 2003

Þá er frídagurinn liðinn og vinnuhelgi frammundan, ásamt jólahlaðborðinu. Vona bara að maturinn standist væntingarnar sem við öll berum að sjálfsögðu í brjósti. Fórum út í Viðey í fyrra og ég var sko bara ekkert ánægð með þann mat. Sósan var svört eins og svartasti Namibíu-búi, Risalamandið var allt í kekkjum, og mín sem er alin upp við Risalamand (dönsk) var sko ekki glöð með það, súpan eins og versta sósa og bara kló í kjallaranu og við upp í risi. Þið getið bara ímyndað ykkur allar ferðirnar í kjallarann þangað til við föttuðum að það mátti reykja þar. svo við vorum bara þar. Fínir sófar og stólar. Frídagurinn mikli þar sem átti að gera svo mikið er liðinn og ekkert gert. hmrffff. Skruppum þó til Dóra og Dagnýar. Dóri voða duglegur búinn að mála loftið í stofu, eldhúsi, borðstofu og gangi. Ó sú dásamlega málningarlykt. Styrkti mig í þeirri ákvörðun minni að við verðum að mála stofu, eldhús og gang fyrir jól. Hér hefur ekki verið málað síðan við fluttum inn og síðan eru liðin 5 ár. Og það er gjörsamlega vonlaust að þrífa þessa málningu. Er komin með litaspjöldin heim, fékk þau lánuð hjá Ámunda fyrir viku eða svo, svo nú er bara að taka ákvkörðun um liti. Og svo ætlar Baldur (Lilju) að smíða boga fyrir mig til að skilja af gang og stofu. Þannig að nú er bara að minna hann á það, þessa elsku. Lærður húsasmiðurinn ætti ekki að vera lengi að því. Lonni hringdi í hjálpartækjabankann og bað þá að sækja rúmið sem hún hafði fengið hjá þeim, því hún og Baldur (já Baldur. Þær eru ótrúlega fjölbreyttar í nafnavali á þessum tengdasonum mínum) fengu gefins rúm fyrir tvo. Sem er gott, því mér skilst,þau hafi verið á mörkunum að fá legusár í hinu rúminu. Það var lagst upp í á kvöldin og ekki hreyft sig meir fyrr en annað fór á fætur. Jísös, þvílík ánauð. Maður verður að vera frjáls í svefninum og hafa sitt pláss. Eða það finnst mér. Var að horfa á lokaþátt Bachelor og hann valdi að mínu mati réttu konuna. Það er að segja ef það er hægt við þessar aðstæður. Nú bíður maður bara eftir Íslenskum piparsveinaþætti. Hann hlýtur að koma eins og allt annað frá Ameríku. Skil ekki því við þurfum að apa allt upp eftir þeim.
Britney Spears hér í bakgrunninn hjá Jay Lenno, er ekki alveg að fatta hana. But ég hef heldur aldrei fílað hana. Obbs I did it again,I play with your heart......... Nóg um hana. Komin tími á ból, vakna klukkan 6.50 og vinna klukkan hálf átta.
Svo góða nótt og sofið rótt.
Knús og kossar.

fimmtudagur, nóvember 20, 2003

Well, þá er mar búin að skila af sér skiptivaktinni. Alltaf gott að vera skuldlaus á vaktirnar. Svo fór maður bara í gott fótabað og tók neglurna í gegn á tásunum og skrapaði siggið af, og þá bara svífur maður um. Semsagt gott pedicure. Eða heitir það ekki það. Svo er jólahlaðborð í vinnunni á föstudag á Loftleiðum. Og ég sem var búin að vera með stór orð um það að ég ætlaði sko ekki að fá mér í glas, því nóg væri komið á þessu blessaða hausti. En svo áskotnaðist mér aukamiði á þessu dásamlega lága verði 1500 kall og sló til og bauð spúsanum mínum með og reddaði mér fríi í vinnunni til klukkan eitt á laugardaginn. Svo eitthvað verður víst smakkað. :-)))) Ég bað stubbinn minn að taka upp Fólk með Sirrý í kvöld því að hann man allt svona miklu betur en bóndinn, en svo gleymdi hann því þessi elska. Hringdi í mömmu sína í vinnuna og hvíslar fyrirgefðu. Og ég spyr hvað ég eigi að fyrirgefa. Og aftur er hvíslað. Ég gleymdi að taka upp fyrir þig. Og þessi ræfill var alveg hreint miður sín, að gleyma þessu. En hann lofaði að minna mig á endursýninguna. Er þetta ekki sætt. Svona geta þau verið stundum. Ekkert nema hugulsemin. Góður frídagur frammundan, kannski að maður fari að gera eitthvað tengt jólum. Þvo glugga og tjöld. Svo þarf að fara að hringja í vini og ættingja og bjóða miða á jólatónleikana.
Drífa í því áður en fólk velur sér eitthvað annað. Talandi um jólajóla. Heyrði i Diddú og Palla hjá Gísla Marteini síðustu helgi, og ég verð bara að segja það að þau eru hreint yndi. Ég fékk bara tár í augun. Þetta var alveg hrein dásamlegt lag sem þau sungu. Og það er alveg klárt að þessi diskur verður keyptur inn á þetta heimili. Jæja núna er mín orðin væmin svo það er best að fara að hætta þessu og koma sér í ból.
Knús og kossar.

miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Jæja þá er ég mætt aftur, og miklu hressari en í gær. Skil ekki þetta slen sem var yfir mér í gær. En það er farið sem betur fer. Ætli þetta sé bara ekki skammdegið og allt þetta myrkur. Enginn snjór til að lýsa upp tilveruna, þó svo að ég geti ekki sagt að ég sakni hanns. Kannski bara komin tími til að hengja upp jólaljós og lýsa upp daginn, sé að fólk er aðeins byrjað á því. Kannski að maður drífi bara í því eftir helgina. Þá er vinnuhelgin að baki. Ótrulegt hvað þessar þrjár vikur líða fljótt. Mér finnst ég alltaf eiga vinnuhelgi, þó svo að það sé aðeins á þriggja vikna fresti. Fór á kóræfingu í kvöld sem var í styttri kanntinum, var samt mjög góð og ótrúlega lítið að tjatti. Það er alveg ótrúlegt hvað þessar konur þurfa alltaf að tala mikið á æfingum. Um leið og síðasti tónn er sleginn af breytist þetta annars ágæta hús í fuglabjarg. Jísös mar, maður getur sko alveg fengið sig fullsadda af kellingum stundum. Nóafens, mér er ekkert illa við þær. Mættu bara fara sjálfar eftir því sem þær kenna börnum sínum. Að taka eftir því sem kennarinn segir og ekki vera með læti í tíma. Eða hvað finnst ykkur?
En eins og ég sagði var lítið um mas í kvöld og við náðum að fara yfir "allt" prógrammið. Er vi ikke dugtige. Meðan ég sit hér er Survivor í bakgrunninn í endursýningu,sem ég fylgist að sjálfsögðu náið með, og mér er algjörlega hulin ráðgáta hvernig í ósköpunum skuli standa á því að þessi ótrúlega leiðinlegi Jon er ekki löngu farin. Hvað eru þau að pæla. Það er ekki eins og hann fari ekki í taugarnar á þeim, þau tala ekki um annað en hvað hann er leiðinlegur og svo framleiðis..
Annars komin tími á ból, enn og aftur.
Knús og kossar.

þriðjudagur, nóvember 18, 2003

Þetta er nú búinn að vera meiri dagurinn. Þvílíkt og annað eins slen. Man hreinlega varla eftir að hafa verið svona doll áður.
Netti ekki að skrifa hér í gær, en átti mjög góðann dag í gær. Eins og áður hefur komið framm fórum við Örn Aron að sjá Dýrinn í Hálsskógi. Og ég verð bara að segja það að þetta er leikrit sem batnar með árunum. Fór síðast með Lonni mína, en þetta var mikið skemmtilegra núna. Veit ekki hvort okkar skemmti sér betur. Stubburinn minn kom mér heldur betur á óvart. Hann sem þykist vera orðinn svo stór og fullorðinn (10 ára) lifði sig svo inn í leikritið að það hálfa væri nóg. Hjálpaði Lilla klifurmús að snúa á Rebba og ég veit ekki hvað og hvað. Litli strákurinn hennar mömmu sinnar er þarna ennþá. Mikið var ég glöð að sjá það. Svo var nú ekki leiðinlegt að lenda akkúrat á sýningu sem Andri frændi hanns leikur í. Hann er íkornastrákur. Stóð sig bara voða vel. Svo var afmæliskaffi hjá pabba í gærkvöldi og tókst með ágætum. Mikið gott að borða og alltaf gaman að hitta frænkur og frændur sem maður annars hittir ekkert. Það er af sem áður var. Þá var maður svo duglegur að fara í heimsóknir og fá fólk í heimsókn, en núna fer maður ekki neitt. Ótrúlegt hvað allir eru orðnir upptekknir við ekki neitt. Jæja nú bara get ég ekki pikkað meira á þetta lyklaborð, var svo óheppin að skera mig á kassa í vinnunni áðan og það beint á góm vísifingurs. Ósköp lítið og ómerkilegt sár en skrattanum sárara.
Knús og kossar.

laugardagur, nóvember 15, 2003

Jæja þar datt allt út. Skil ekki hvað gerðist, þetta er ekki í fyrsta skiptið. Ég búin að skrifa helling og svo rek ég mig í einhvern hel...... takka og allt hverfur af skjánum. Fatta þetta ekki. En þá er bara að byrja upp á nýtt. Eins og kemur framm í blogginu hér á undan gat ég ekki publisað í gærkvöldi, en mín var sniðug og copy-aði það inn í Word og vistaði þar, og núna áðan sótti ég það og paste-aði því hér og það tókst. Er mín ekki klár? Við Örn Aron fórum í Hagkaup Skeifunni í dag og keyptum tvenna skó á hann. Þetta gat ekki gengið svona lengur, hann var kominn með tærnar út úr hinum. Og þar sem Adda á heima í næstu götu komum við þar við og að sjálfsögðu var tekinn einn júnóvott. Svo hringdi Klemens í mig úr vinnunni (hann var á aukavakt) og grátbað mig að vinna á morgun svo að hann þyrfti ekki að taka alla vaktina, og ég sá aumur á honum og lofaði að koma hálf átta til hálf tólf. Gat því miður ekki verið lengur því að við Örn erum að fara að sjá Dýrin í Hálsaskógi með Olgu og Kristínu. Og svo er afmæliskaffi hjá pabba annað köld. Hann á reyndar afmæli í dag. Til hamingju með daginn pabbi minn. Jæja ætli það sé ekki best að klára tiltekktina frá í gær og taka sjónvarpsherbergið í gegn. Það varð útundan í gær. Dí mar, ég er farin að hljóma eins og Silla. skúra, skrúbba og bóna. Nei bara grínast.
Nú held ég að þetta sé orðið gott í dag.
Knús og kossar.
Oh my gos, hvað það er búið að vera næs að vera í fríi í dag. Kom bara heilmiklu í verk. Ryksugaði. þurrkaði af, kláraði að þvo tauið og tók til. Hvort sem þið trúið því eða ekki er ekki ein tuska í óhreina tauinu og snúrugrindin er ekki inni í stofu. Stendur upp við vegg í hjónó. Dísös, ég hreinlega man ekki hvenær þessi bansetta grind hvarf úr stofunni síðast. Hm, verður samt örugglega ekki langt í að hún hökti út úr hjónó og stilli sér upp í stofunni eins og hún eigi hana. Hjálppppp, mig vantar þvottahús, ætli það væri ekki best að byggja bara yfir svalirnar og stilla henni upp þar. Haha. Jæja ég var að koma frá Olgu og dýragarðinum, fékk að koma og glápa á Idolið. Ég kaus Helga nr 8 og var svo í vandræðum með hitt atkvæðið en lét svo vaða á Tinnu Ósk nr 7 fannst hún bara helv..... góð miðað við aldur. En hún komst ekki áfram greyið.
Það verður gaman að sjá hvaða 8 krakkar mæta í næstu viku. Einhvernveginn finnst mér að það ættu allavega að vera þau sem lenntu í 3ja sæti, en hvað veit ég sosem, venjuleg húsmóðirin. Þið eruð kannski að velta því fyrir ykkur því ég segi Olgu og dýragarðinum. Málið er að þar er allt fullt af dýrum. Hún er með, læðuna Birtu, tíkina Tátu, og svo að mig minnir 2 kanínur og svona kannski 10 hamstra. Var með páfagauk, en gaf hann vegna þess að hann var að æra hana, sendi sms liðlangann daginn. Annars get ég bara alls ekki skilið hvernig fólk getur haft nagdýr í sínum húsum. Það er bara ekkert eins ógeðslegt til. Ég get ekki horft á þessar skepnur, t.d. er ég bara búin að horfa á hálfa Stuart mynd. Ok, það getur vel verið að ég sé biluð en þetta er bara fóbía hjá mér. Kanínur eru voða sætar en ekki inn á mitt heimili. Silla kommentaði á mig og spyr mig hvað "óþverri" sé. Það upplýsist hér með að það er spil sem spilað er á nokkra spilastokka og hefur þann annmarka að sá sem byrjar getur bara ekki hætt. Svo Silla mín, kannski ég bjóði þér í spil einhverntíman þ.e.a.s ef þú hefur gaman af spilum. Ok. Lonni mín fór til Svíþjóðar í morgun á MS ráðstefnu og kemur heim á sunnudaginn, svo ég er ansi hrædd um að hún verði útkeyrð eftir helgina. Þetta eru ótrúlega stíf prógröm á þessum ráðstefnum. Og svo hún Lilja mín, hún var að byrja að vinna hjá heimaþjónustunni, vona bara að henni gangi vel þar. Annars átti ég að vera að vinna fyrir Jónu Hlín á morgun, skiptivakt, en svo var Diddi búinn að taka að sér aukavaktir um helgina svo ég varð að redda því öðurvísi. Það er ekki endalaust hægt að skilja drenginn eftir einan heima. Nóg er nú samt. Jæja er þetta bara ekki orðið ágætt í kvöld. Síjaleiteraligeiter
Knús og kossar.

Hvað er eiginlega að þessu drasli. Nú er ég búin að klikka mörgusinnum á post&publish og það bara gerist ekkert . Ef þetta tekst ekki þá nenni ég allavega ekki að skrifa þetta allt saman aftur. :-(

fimmtudagur, nóvember 13, 2003

Jísös hvað maður getur orðið þreyttur á því að týna flýkur barnanna upp af gólfinu endalaust. Manni dettur í hug að setja í eina vél eða svo, og þá verður maður að byrja á því að leita að fötum barnanna út um allt hús. Inn í stofu, sjónvarpsherbergi, eldhúsi og herberginu þeirra. Ótrúlegt að ekki skuli vera hægt að kenna þeim að setja þessar tuskur í óhreina tauið þegar það á við. Lonni kom hér við í dag. og svo kom Adda til að fá einn skammt af "óþverra". Við tókum 2 spil og vitið þið bara hvað. ÉG VANN BÆÐI. Jibbýkóla . Jæja síðasti dagur í vinnunni á morgun fyrir helgafrí. Það er sko ekki slæmt. Fer reyndar úr vinnu kl. 1. og á námskeið í Tímastjórnun. Vonandi að það komi að gagni. Mig vantar fullt að klukkutímum í minn dag. Jæja annars nenni ég ekki að skrifa núna er á leiðinni í bólið. Enn og aftur.
Knús og kossar.

miðvikudagur, nóvember 12, 2003

Jæja þá er maður loksins komin heim. Ahhhhhhhhh hvað það er nú gott að koma heim eftir svona langann dag. Fyrst í vinnuna og svo á bökunarnámskeið, rétt leit við heima til að ná í kórtöskuna og svo á æfingu. Mundi svo á leiðinni heim af æfingu að það væri saumó hjá Kollu í kvöld. Svo ég mátti bruna þangað og stoppaði að sjálfsögðu mikið lengur en til stóð. Undarlegt með þessa saumaklúbba, alltaf mesta slúðrið þegar maður er að fara að standa upp og týja sig heim, svo niður sest marður aftur og klukkan tifar. Tikk takk, tikk takk. Og svo annað. Haldiði ekki að ég hafi gleymt auka kóræfingu sem átti að vera í gær. Arg arg, djö. sem ég var reið út í sjálf mig. Held að minnið sé alveg að gefa sig. En mér er sagt að ég hafi ekki misst af miklu, svo ég sætti mig við orðin hlut. En hvað um það, held ég nenni ekki að skrifa meira hér, þarf að vakna korter fyrir 7 til vinnu svo ég held að best sé að drífa sig í ból.
Knús og kossar.

mánudagur, nóvember 10, 2003

Jæja þá er þessi dagur að kveldi kominn og vinahópurinn að baki. Fórum í keilu og strákarnir tóku 2 leiki og skemmtu sér bara vel, og ekki fannst mér leiðinlegt að horfa á þá. Alltaf sama keppnisskapið í mínum manni. Fannst nú algjörlega óþarfi að fá útprentun á stöðunni við lok keppninnar, þar sem hann var ekki í fyrsta sæti. Svo bara heim að bíða eftir mömmunum. En Linda var sú eina sem kom, og fannst mér það bara nokkuð gott hjá henni að gefa sér tíma í það því að hún er að fara til Kanarí á morgun. Ohhhhhhhh hvað hún á gott. 16 daga tóm sæla. Bara hún og spúsinn í frí frá húshaldi og börnum. Og eiga þau nóg af þeim. Samtals 7 stykki. Hjúkk, nóg að gera þar á pabba helgum. Ég hef sko alveg nóg með minn eina sem enn er heima. Stelpurnar fluttu báðar út í fyrrasumar og mér fannst það æði. Sumum finnst ég nú skrítin mamma að hugsa svona. En ég segi, þetta eru orðnir fullorðnir einstaklingar með sínar þarfir, vilja hafa hlutina eftir sínu höfði, og það höfuð fór sko ekki alltaf saman með mínu höfði. Neibb, þetta er miklu betra svona. Við erum miklu betri vinkonur núna, en þegar þær bjuggu enn heima. Og hana nú. Jísös maður, það getur alveg gert mann gráhærðan að liggja heilu og hálfu næturnar og bilta sér. Samasem síðasta nótt mín. Sofnaði um miðnættið og glaðvaknaði um 4 og ekki dúr eftir það. Og ekki höfðu hroturnar hanns Didda svæfandi áhrif á mig þá. Ó nei. Þessar næturvaktir um helgina settu kerfið allt úr gír. Það var alveg sama hvað ég reyndi og reyndi að setja í 1sta gír, alltaf hrökk stöngin til baka í afurábak. (vökugírinn) Svo er drengurinn að fara í próf á morgun í Lífríkinu og mér gengur bara ekkert að fá hann til að lesa og læra. Veit ekki hvernig þetta endar með hann. Og hann er bara 10 ára. Hvernig verður þetta þegar hann kemst á unglingastigið. My God. Verð bara að finna góða aðferð til að vekja áhuga hanns á Lífríknu. Ef þetta væri fótbolti snéri málið öðruvísi. Hanns litla hjarta slær KR takktinn. Stuttur og laggóður dagur í vinnunni á morgun, verð bara til hádegis og svo verð ég send á bökunarnámskeið hjá Millunni. Á að læra að hafa góða lykt á Select svo það örvi magastarfssemi kúnnanns og geri hann óðan í snúða og ostaslaufur. Sjáum til með það. Finnst ykkur ég ekki dugleg ? Ég setti linkinn á Hótel Express og á bloggið hennar Elísu inn ALVEG ein. Enginn Silla að hjálpa mér með það. Svona tók ég nú vel eftir þegar hún var hér hjá mér um daginn að laga bloggið mitt. Húrra fyrir mér. Oh ég er svo stolt. Jæja nóg í bili.
Knús og kossar.

sunnudagur, nóvember 09, 2003

Well,well.well. God afton alle mine venner. Nú er þessi helgi liðin og ekkert gert annað en að vinna og sofa. Svo ekki hefur maður frá mörgu að segja. Það er soldið annað að vinna á nóttunni en daginn, það er allt annar þjóðflokkur sem verslar þá. Ég verð nú að segja það að alveg er það ömurlegt að sjá alla þessa krakka koma svo blindfull og dópuð í pylsu og kók. Mann tekur hreint og beint í hjartað. En jæja nú er ný vika framundan og morgunvaktir. Það er nú alltaf bestu vaktirna, búin klukkan 4. Fengum heimboð frá Sigga og Guðnýju og Siggi var ekkert að tvínóna við hlutina og skellti í eina brúna Betty.
Svo tók hann upp nikkuna og gaf okkur smá sýnishorn af því sem hann kann. Það er nú alltaf smá fílingur í nikku-tónlistinni.
Mann fer alltaf að klæja í tærnar og langar að taka sporið. Einn Polka eða Skottís. Á morgun er vinahópur hjá Erni Aroni og við ætlum að skella okkur í Mjóddina og taka einn leik í keilu. Heppin ég að þeir eru bara 4. svo heim í kex og mjólk. Það er nokkuð ljóst að það er alltof gaman í Róm til að Silla hafi tima til að blogga. Eitthvað var hún búin að hóta því að setja inn kannski nokkrar línur. Jæja skrítið að alltaf skuli vera komin tími til að fara í ból þegar ég skrifa hér. En hvað um það. Meira seinna.
Góða nótt og sofið rótt.
Bæbæ

föstudagur, nóvember 07, 2003

Jæja hér er ég komin þrátt fyrir spár um annað. Verð bara að setja inn minn skammt.
Mamma og pabbi voru að fara, komu hér og borðuðu með okkur fiskibollur a la Diddi. Þær gerast bara ekki betri. Örn Aron vildi ekki fiskibollur og sá sæng sína útbreidda þegar Lonni kom hér við eftir klippingu og sagðist vera að fara að kaupa Pizzu með Idolinu, og henn fékk náðasamlegast að fara heim með henni. Mikil gleði þar. Er núna að bíða eftir þvottavélinn, er að þvo vinnubuxurnar og þarf að henda þeim í þurrkarann, svo þær séu klárar fyrir nóttina. Er svona að velta því fyrir mér hvort það borgi sig að leggja sig, en ætli maður verði þá bara ekki eins og gólftuska í vinnunni. Svo kannski borgar það sig ekki. Varð annars heldur betur kát áðan. Diddi fór að tína dósir á svölunum áðan sem höfðu fokið úr poka sínum í rokinu, og hvað haldið þið að hann hafi fundið. En ekki eina flösku af Passion Diablo. Jeiiiiiii. Hún verðu sko drukkin áður en ég fer að sofa í fyrramálið eftir næturvaktina. Þá ætti ég að sofna, en, to, tre. Jæja elskurnar mínar, það er best að fara og tékka á vélinni og henda í þurrkið. Heyrums síðar.
Bæbæ
Góða kvöldið enn og aftur.
Hún er nú farin að hljóma soldið þreytt þessi hæ kveðja. Veit ekki alveg hvernig ég á að byrja þetta blessaða blogg mitt. Ef þið hafið skoðun á því, endilega látið mig vita. Nóg um það, var að skríða heim úr vinnunni og löng helgi frammundan. Fer á stubb á morgun. þ.e. 12 til 18. Tók svo að mér aukavaktir bæði föstud. og laugardags nótt, frá klukkan 24 til 06. Svo það er viðbúið að lítið verði um skrif hér fyrr en á sunnudagskvöldið kannski. En, það gefur krónur tvær á bak við kletta að taka nokkrar aukavaktir, eins og Björvin hefði orðað það. Jæja, nú eru Silla og John í Róm og hafa það öurgglega voða næs og huggó. hmhm. Adda kom hér í dag og þurfti að fá einn "óþverra" áður en ég fór í vinnu, og að sjálfsögðu vann hún mig. Skil ekkert í þessari sjálfpyndingarhvöt í mér að spila þetta aftur og aftur og svo tapa ég alltaf. ARG. Ég verð að viðurkenna það að ég er orðin annsi tapsár upp á síðkastið. Svo keyrði ég Örn Aron í bankann og hann tók út af bókinni sinni til að kaupa sér Fífa 2004 í Play station tövuna sína, og svo skokkaði hann hinn glaðasti ásamt Antoni Erni besta vini sínum í strætó inní Smáralind að versla. Það er ótrúlegt að sjá stoltið skína af andliti barnsins þegar það hefur náð að spara fyrir einhverju sem það virkilega langar í. Allt annað en þegar þau fá það að gjöf. Auðvitað eru þau glöð að fá pakka, en það er alltaf spes að safna sjálfur, og sjá að nammiaurarnir geti orðið að einhverju varanlegu. Jæja þetta er að verða ágæt, enn og aftur er komin tími til að fara í ból. Merkilegt með mig, að mér finnst jafnleiðinlegt að fara að sofa á kvöldin eins og mér finnst leiðinlegt að fara framm úr á morgnana.
Góða nótt þið öll.
Bæbæ.

fimmtudagur, nóvember 06, 2003

Góða kvöldið kæru gestir, ef það eru einhverjir. Var að koma heim úr vinnunni og verð að sjálfsögðu að skrifa nokkrar línur fyrir svefninn. Silla kom hér í morgun og lagaði bloggið, og það var sko ekkert smá mál, neibb það var sko stórmál. Nú getið þið kommentað á það sem ég er að krota hér og svo telur síðan mín líka hversu margir líta inn hjá mér. Jeiiiiiiiiiiiiiiiiii. Oh þetta er svo gaman. Svo leit ég á bloggið hennar Sillu, og hvað haldið þið. Þau nýgiftu eru sko að fara til Rómar í fyrramálið. Lítill undirbúningur það. það var ákveðið seinnipartinn í dag. Vona bara að þau njóti sín vel og mikið. Það mætti kannski líta á þetta sem nokkurskonar brúðkaupsferð. Jamm og já.
Lonni og Baldur litu við hjá mér í vinnuna í kvöld, þau voru að koma úr bíó, fóru að sjá Scari movie 3 og þótti hún bara he..... góð. Svo komu pabbi og mamma líka í heimsók í vinnuna til mín. Þetta var sko farið að líta út eins og ættarmót hjá mér. En það er sko bara í góðu lagi. Það var reyndar vaktstjórafundur á S4 í dag, en þar sem ég fékk ekki að vita um hann fyrr en um 9 í gærkvöldi fór ég ekki. Því að ég var búin að boða Silluna heim í bloggið. Ótrúlegt með þessi samskipti í þessari vinnu minni. Fundurinn var ákveðinn á mánudag og hefði ég vitað af honum þá. þá hefði ég beðið Sillu að koma annan dag. But so be it.. Nú er bókin hennar Stínu komin út og vonandi gengur vel að selja hana. Ég verð nú að segja það að ég hlakka nú soldið til að lesa hana. Hún hefur átt ótrúlega erfitt líf en komið niður á báðar fæturnar. Ég kynntist Stínu þegar ég byrjaði í Gospelsystrum, og svo komst ég að því seinna að hún og mamma unnu saman fyrir margt löngu. Svona er heimurinn lítill. Ég bauð pabba og mömmu í mat á föstudaginn en það er ekki víst að þau komi. Henni langar upp í sumó. Ég held hreinnlega að hún gæti búið þar. En ég er voða glöð fyrir þeirra hönd hægri og mína vinstri að þau eigi þetta skjól í sveitinni. Það gefur þeim ótrúlega mikið. En þau fara sko ekki til að slappa af, ó nei. það er smíðað, málað, pússað, sagað og neglt. Ótrúleg orka í þessu fólki. Þyrfti að vera hægt að tappa þeim á flösku. Þannig að þegar ég þyrfti að þrífa, þá tæki ég einn góðann sopa af mömmu og ef Diddi þyrfti að laga og bæta, þá fengi hann sér bara einn sjúss af pabba. Er það ekki. Jú mér líst vel á það. Jæja best að fara að koma sér í rúmið. Hroturnar í Didda heyrast hingað inn í sjónvarpsherbergi og mig sifjar af þessum hljóðum. Er farin að öfunda hann af þessum dásamlega svefni, svo nú er bara að færa Stubbinn sem sofnar alltaf í mömmu bóli og skríða svo upp í heitt rúmið.
Góða nótt og sofið rótt í alla nótt.

miðvikudagur, nóvember 05, 2003

Og enn er ég mætt.
Fór í Kringluna í dag og eyddi fullt að aurum í mig, kápu, skó og fullt af naríum, alltaf gaman að eyða peningum. Fórum á NK kaffi og fengum okkur krebes og svo ískaffi á eftir. Það er náttúrulega ekki í lagi með okkur, svo vorum við alveg að frjósa, eitthvað rugluðumst við á árstíðinn. En sökum þess þá náði ég ekki í söngtíma hjá MP svo að Silla fór ein, en það er í lagi því að ég er búin að fara 2svar ein og hún þarf að vinna upp tímann. Svo ætlar hún að koma í fyrramálið þessi elska og kíkja í tölvuna mína. Ég ætla að hringja í hana kl. 10 og vekja hana. hahahaha. Komin tími til að vakna fyrir nón.
Hitti Rúnu á msninu áðan, loksins. hef ekki hitt hana í mánuð eða tvo. Þau eru á fullu að leita að húsi, því að fólkið sem á húsið sem þau leigja núna koma heim í des. alltof fljótt.. Fyrir þá sem ekki vita búa þau í Aussi, Brisbane. búin að vera bráðum í tvö ár. Eg vil fá þau heim en þau vilja ekki koma. :-( En það er gott að þeim líður vel þarna. Lonni mín ætlar að fara til þeirra núna í janúar og ég er ekkert alltof kát með það. Held að þetta sé alltof langt ferðalag fyrir hana að fara eina, myndi vilja að hún biði eftir mér. En ætli hún haldi ekki bara að minn tími komi ekkert. shitt. I hate to be so blank. Kannski ég ræni bara banka. hahaha. o je. Jæja ætli það sé ekki best að koma sér í ból svo að ÉG vakni og geti vakið Silluna. Heyrumst síðar.
bæbæ.

þriðjudagur, nóvember 04, 2003

Hey du. Þá er maður sestur við tölvuna aftur. Er nú eitthvað löt við þetta akkúrat núna. Gerði nákvæmlega ekkert í dag, fer að efast um að það renni í mér blóðið. Skrapp aðeins til Ásthildar í kaffi (hún býr í næstu blokk). Og eitthvað fannst henni ég vera að drepast úr leti því að hún bauðs til að keyra mig heim. hahahahaha. hún er svo mikill húmoristi. Betri dagur í vændum á morgun, þá er söngtími hjá MP og svo kóræfing á eftir. Svo ætlum við Lonni að skreppa í Kringlun saman og kannski að við fáum okkur gott kaffi og spjall með. Það klikkar aldrei. Jæja ég nenni ekki að krota meira núna og bíð ykkur öllum góðra nætur. Verð vonandi öflugri á morgun
Bæbæ

mánudagur, nóvember 03, 2003

Hi all. Wellkome to my blogg. Im a blogger.jejeje. Sit hér adeins vid (hesta)skal. Adda vinkona var ad koma fra Tyskaklandi i­ dag, var tar i viku. Gat ekki setid a ser lengur vard ad fa einn "otverra". Og hun tok mig i you know what. Rullladi mer upp. skil ekkert i­ mer ad hatta ekki ad spila tennann otverra. En hun fardi mer gjof fra utlandinu, segul a isskapinn og a honum stendur "I never met a calorie I didn´t like". Og tetta eru vinir manns. huh. Jaja ta er tessi LANGA helgi loksinns lidin og fri­ i­ vinnunni nastu tvo daga. I like it. Sigrun vinkona atlar ad koma a morgun og taka mig med ad skoda nyja barnabarnid sitt, sem er nu ordin viku gomul li­til prinssessa, og svo er eg ad vona ad Sillan geti komid og ki­kt a tetta blogg hja mer. tetta er algjort blindarletur, ekki fyrir nokkurn mann ad lesa tetta. Loksins let eg verda ad tvi­ ad sakja um fyrir Orn Aron i sumarbudir barna hjá CISV nasta sumar. Lata krakkann lifa drauminn hennar mommu sinnar, neinei I­ alvoru talad, Eg held ad krakkar hafi rosa gott af tessu. Fara i­ manud til annars lands og kynnast annari menningu og hitta krakka fra odrum londum. Vona bara ad hann verdi valin, ta er otrulegur fjoldi sem sakir um og minna en helmingur kemmst ad. tau mega nebbilega ekki vera eldri en 11 ara. Taladi vid mommu í gar og hun er a¡ fullu ad leita ad 2ja i­buda husi fyrir sig og pabba og vill endilega ad vid flytjum med teim. tad vari ekki svo slamt, ta er eg komin med hushjalp tvi­ hun er gjorsamlega tuskuod. Skil ekkert tvi­ ad eg hafi ekki erft eitthvad af tessu fra henni, en nei, eg er eins og pabbi og Boi brodir er eins og mamma, alltaf a fullu. Og tad er eins med tessar blessadar augabrunir, mi­nar eru samvaxnar og otrulega lodnar og sidan ta tarf eg ad klippa tar eftir plokkun, en brodir minn, neiiiiiiiiiiii, eins og best getur ord, og lappirnar, my God. eins og api og hann eins og mamma. Hvar var Gud eiginlega tegar vid vorum buin til?????????????? Eg bara spyr. En tad er nu eins og tad
er, tegar stort er spurt er fatt um svor. jaja dullurnar minar, held ad eg lati tetta duga og ki­ki adeins a tiviid og svo a bol (Bjarnar). Hvad skyldi Diddi segja.
sÃi ja Goda nott.

ES. Vona ad letrid stakki a morgun ef Sillan kemst til mi­n
ein vongod :-)

ES.ES. Nu turfti eg ad laga tetta allt, stafagerdin for oll i rugl, islensku stafirnir foru bara ut ur ku, Vona ad tid skiljid tetta............................en og aftur Goda nott.

laugardagur, nóvember 01, 2003

Jæja mætt aftur.
Enn einn langur dagur í vinnunni. Heyrt þennann áður?. Sem betur fer var ekki eins kallt í dag og í gær. Ég fór í tveim flís peysum út í morgun, og svo var ég að kafna í bílnum þegar hann var orðinn heitur. Jæja ég fór til Guðnýjar í gærkvöld og sá Idolið í beinni. Og kaus að sjálfsögðu þær tvær sem komust áfram. Góð þessi Vala, eins og ferskur blær.!!!!!!!!!!!!!!
Ég held að það sé gott að hafa einhverja sem tekur þetta ekki of hátíðlega og hristir aðeins upp í liðinu. Örn Aron fékk aldeilis glaðning í dag, Lonni kom og færði honum spóluna með 70 mín gæjunum og þvílík gleði. Stríðsdansinn tekinn í bland við regndansinn. Jæja nú hringir víst bjallan og Lonni er að koma með sínum heittelskaða Baldri, best að fara og tala við turtildúfurnar. Sí ja leiter.

föstudagur, október 31, 2003

Jæja komiðið sæl þetta dásamlega ÍSKALDA kvöl. Jö.... er kallt. Ég hélt hreinlega að ég myndi drepast kl korter yfir sjö í morgun, þegar ég var að skafa bílinn. Ég var komin með kal í puttana og litlu sætu hanskarnir sátu í veskinu mínu inní bíl í heita veskinu mínu. Ég mundi náttúrulega ekkert eftir þeim fyrr en ég var búin að skafa. bögg dauðans. Langur dagur í vinnunni í dag, búin að ganga mig upp í klof, þetta er nú meira trampið, og svo er sagt að maður hreifi sig ekki. My as.
Er núna að reyna að komast í heimsókn þar sem er Stöð 2. verð að sjá Idolið. Lonni er á haustfagnaði MS félagsinns og Olga er upp í sumó, Kannski ég reyni Guðnýu. Bara að hún fái ekki áfall, þegar ég kem aftur með svona stuttu millibili.
Er að reyna að draga kallinn með, Siggi hennar Guðnýar bíður eftir mínum til að leyfa honum að sjá einhvern DVD disk sem hann var að kaupa sér með Three dogs night. Úps, ég veit ekkert hvort þetta er skrifað sona eða hinseigin. Akkurat núna voru Idol krakkarnir í Ísland í dag þau eiga að syngja á eftir lag í beinni. Ég hreinlega verð að komast í Stöð 2 hús. Gaman að fá mig í heimslókn, glápi bara á sjónvarpið. :-) Annars er þetta búin að vera góður dagur Lonni mín fékk svo góðar fréttir, eiginlega æðislegar fréttir. En þær verða ekki birtar hér, Sorry. Það er annað með Örn Aron, ætli ég verði ekki að fara með hann upp á slysó og láta mynda hann. Það er eitthvað að sem ekki kom í ljós í skoðuninni strax eftir að hann varð fyrir bílnum á föstudaginn síðasta. Ætli Diddi fari ekki með hann á morgun, ég er að vinna svo ég kemst ekki.
Jæja er þetta bara ekki orðið ágætt.
Bless í bili.

fimmtudagur, október 30, 2003

Well,well.well. Mætt aftur. Maður verður bara háður þessu dóti. Ég get svarið það. Jæja verra gæti það verið.
Þetta er búinn að vera letidagur dauðanns. Sat eins og skítaklessa í sófanum og glápti á tivíð til klukkan að verða
4, en þá var mál til komið að klæða sig og hafa sig til fyrir söngtíma hjá MP. Fór fyrst og sótti Sillu sem var greinilega jafn löt og undirrituð, lá hálf sofandi í sófanum þegar ég kom. En hún reddaði þessu með góðu kaffi. Fékk þennann líka dásamlega steikta fisk sem bóndinn var búinn að elda þegar ég kom heim, svo ég fékk smá orku í mig og er bara búin að þvo 2 vélar, hengja upp það sem ekki má fara í þurrkarann og ganga frá því sem mátti fara í þurkið. Ferlegt vesen að ekki megi setja allt þar. Annars átti ég víst að fara á Frendtex kynnigu hjá Ásu í kvöld, en ég slaufaði því bara. Vona að hún verði ekki spæld út í mig þessi elska. Lonni og Lilja fóru báðar, svo þetta ætti að vera í lagi. God mar, að nenna að vera með þessar Frendtex kynningar, burðast með öll þessi föt endalaust á milli heimila. Nei takk ekki fyrir mig, nóg fannst mér um Tupperware dollurnar, axlirna signar að mjöðmum, að bera þessar töskur og stundum upp 3 og 4 hæðir, nei ég er hætt þessu. Nú fer ég bara að taka til í eldhússkápunum og reyni að koma þessum dollum fyrir og í notkun. Jæja nú ætla ég að kíkja á skjá 1 og sjá hvað er að gerast í Bachelor. Hverjar sýna klærnar og hverjar tárin.
Góða nótt
Sí ja

miðvikudagur, október 29, 2003

Jæja enn einn dagur liðinn að kveldi. Bara þokkalega góður, svaf út í morgun LOKSINS. Átti frí í dag í vinnunni og á morgun líka, en svo þarf ég að vinna um helgina í staðinn. æjæjæj. Mín dreif sig í klippingu og litun í dag, og hvílík breyting. Strákurinn minn sem er 10 ára fór alveg í steik og vissi ekkert hvernig hann ætti að vera, og bóndinn sagðist þurfa að venjast þessu. hahahaha. Ég lét nebbilega klippa mig MJÖG stutt og lita það svart í botninn og vel rautt að ofan. Var nánast blondína. Jís maður, ég held að ég þurfi að fara að heimsækja vinkonur mínar oftar en ég geri. Ég fór til Guðnýar, bestu vinkonu minnar seinnipartinn í dag og hún hélt að það væri eitthvað að. Það hlyti að vera fyrst ég væri komin. Held að ég verði að breyta um lífstíl. En hvernig ætli það sé með þetta blogg, hver sér þetta eiginlega? Verður fólk ekki að hafa adressuna mína til að skoða bloggið? Ef einhver sér þetta sem ekki þekkir mig endilega látið mig vita, ef það er þá hægt.
Jæja best að fara að kíkja á spóluna sem Lonni mín tók upp fyrir mömmuna sína, Idolið og fleira.
Sjáumst, bæbæ
Jahérnahér. Aldrei hélt ég að ég myndi fara að skrifa eitthvað sem allir og hver sem er geta lesið. But here I am. Úllala. Svo er bara spurnig hvort eitthvað vit er í því sem ég krota hér eður ei. Kannski batna ég með tímanum. Ég er bara venjuleg "húsmóðir" í fullri vinnu og svo syng ég í kór, og það er bara gaman. Við vorum eimmitt að byrja að æfa jólalögin í dag, og það er alltaf soldil stemming sem fylgir því. Svo nú get ég farið að hlakka til jólanna. Jeiiiiii.
Jólin, jólin allsstaðar, með jólagleði og gjafirnar. Jájá ok ég er hætt. Jæja ég ætla að láta þetta duga í dag, kem kannski með eitthvað krassandi á morgun, ég hlýt að fá 9 fyrir viðleitni.
Ok bæ. sí ja leiter.