þriðjudagur, september 16, 2008

h


Þú ert miðlungssteikt dramadrottning.


Ef dramadrottningar væru hamborgarar sem fengjust "rare", "medium rare", "medium" og "well done" værir þú "medium". Miðlungssteiktar dramadrottningar eru konur meðalhófs. Þær eru skynsemisverur miklar, hafa sterka réttlætiskennd og vilja öllum vel. Í raun myndu flestar miðlungssteiktar dramadrottningar frekar vilja vera baunabuff en hamborgari því þá hefðu engin saklaus dýr þurft að líða fyrir samlíkinguna.

Miðlungssteiktar dramadrottningar hafa algera stjórn á dramatíska hluta heilans. Í raun verður sjaldan vart dramatískrar hegðunar hjá hinni miðlungssteiktu. Ekki einu sinni slæmur hárdagur getur raskað ró hennar.

Miðlungssteiktar dramadrottningar eru hæglátar, yfirvegaðar en fylgispakar. Þær eru trúar leiðtoga sínum sem er gjarnan léttsteikta dramadrottningin og fylgja henni oft í blindni. Þegar á reynir er hún hins vegar ekki tilbúin til að hvika frá sannfæringu sinni og á það til að vera samviska þeirrar léttsteiktu og halda henni á jörðinni.

Hversu mikil dramadrottning ert þú?

hmmm


Þú fellur fyrir frinsum (froskur + prins).


Sé karlkynið flokkað í prinsa, froska, proska og frinsa leikur enginn vafi á hvaða manngerð/dýrategund þú fellur fyrir. Þú laðast að frinsum. Frinsinn líkist í flestu froskinum. Hann sýnir sjaldan rómantíska tilhneigð og getur átt það til að vera ansi óhugulsamurr. Láttu þér ekki bregða þótt frinsinn gleymi afmælisdeginum þínum, brúðkaupsdeginum eða jólagjöfinni. Þótt þú gengir með post-it miða á enninu sem á stæði ?ég vildi að frinsinn minn myndi koma mér á óvart og kaupa handa mér blómvönd? stæði blómavasinn tómur á stofuborðinu um ókomna tíð.

Þeir sem hyggja á samband við frins þrátt fyrir það geta endanlega kvatt sjónvarpsfjarstýringuna. Frinsar deila henni ekki með neinum. Búðu þig undir löng kvöld yfir íþróttum og Jean-Claude van Damme. Búðu þig einnig undir dimm kvöld því ekki láta þig dreyma um að frinsinn skipti um ljósaperu.

Finnist þér skemmtilegt að tína skítuga sokka eftir aðra upp af gólfinu átt þú sannarlega samleið með frinsinum. Þyki þér það hins vegar ekki hápunktur tilverunnar og þú gerist svo djörf að biðja frinsinn að hirða sjálfan upp eftir sig sokkana máttu eiga von á að hann hækki í iPodinum sínum og láti sem hann heyri ekki í þér.

Eini munurinn á frinsinum og froskinum er sá að einstaka sinnum bólar á prinslegum eiginleikum í fari frinsins er hann kemur þér á óvart með framtakssemi eða rómantísku uppátæki.

Fellur þú fyrir prinsum eða froskum?

Engin ummæli: