þriðjudagur, september 16, 2008

Elska svona mismælgi

Íslenskan er lifandi mál, ekki satt? ;-)

*Það er ekki hundur í hettunni -(...það er ekki hundrað í hættunni...)

*Það er ljóst hver ríður rækjum hér -(...það er ljóst hver ræður ríkjum hér.)

*Þetta er ekki upp í kött á nesi -(...ekki upp í nös á ketti)

*Mér er nú ekkert að landbúnaði...

*Allt fór afsíðis sem gat farið afsíðis...

*Þessi peysa er mjög lauslát...

*Þau eiga þvílíka myllu, lifa eins og greifingjar og leika á alls eggi...

*Hann sló tvær flugur í sama höfuðið...

*Þarna hefði ég sko viljað vera dauð fluga á vegg...

*Ég sá svo sætan strák að ég fór alveg fram hjá mér...

*Ég var svo þreyttur að ég henti mér undir rúm...

*Hann sat bara eftir með súrt eplið...

*Og, nú, góðir farþegar, er einmitt fengitími melóna...

*Ég hreinlega vissi ekki í hvorn fótinn ég átti að setjast...

*Þar stóð hundurinn í kúnni... -(Þar lá hundurinn grafinn... Þar stóð hnífurinn í kúnni.)

*Maður fer í bæinn til að sjá sig og sýna aðra...

*Svo handflettir maður rjúpurnar...

*Já, fólk núorðið er svo loðið á milli lappanna...

*Hún nagaði sig í handakrikann

*Mestu handfarir sem riðið hafa yfir Vestmannaeyjar

*Flísarnar eru miklu varanlegri en allt annað

*Falla á mann tvær grímur

*Hellti upp á eina Pizzu Fauk saman við yfirmann sinn

*Má ég millileggja þetta á reikninginn ykkar

*Erfitt fyrir fólk með skammtímaþunglyndi

*Ég var svo horuð að ég leit út eins og Sóríasissjúklingur

*Það væri nú til að kóróna alveg mælinn

*Eins og að skvetta eldi

*Það gengur alltaf allt á afturendanum á henni

*Sumir taka alltaf allan rjómann

*Getum ekki horft hvort á aðra

*Kannski þykknar í mér pundið

*Þetta var svona orðatækifæri

*Hún á náttúrulega að fá greitt fyrir afturgengið orlof

*Skírður eftir höfuðið á honum

*Flokkast undir kynferðislegt álag

*Það er enginn millivegur á þér

*Við verðum að leggja okkur í spor barnanna okkar

*Fór í klippingu og lét rótfylla á sér hárið

*Hjartað hamaðist í höfðinu á henni

*Sérðu snjóhryllingana

*Kemur seint eftir dúk og disk

*Augun voru alveg risastór við hliðina á höfðinu

*Við verðum að reka okkur vel á

*Ég skal sko troða því niðrí hann

*Reisa sér hurðarás yfir öxlina

*Vissi ekki í hvort skrefið ég ætti að stíga

*Vissi í hvora löppina ég átti að fara

*Málið með vexti

*Vitum aldrei okkar ævi fyrirfram

*Stilla fólki uppfyrir vegg

Ég hef alveg hrillilega gaman að svona mismæli sem bara detta upp úr fólki. Ég er annsi góð í þessu. Dætur mínar tala um að ég tali stundum mitt eigið tungumál. Svo slæm get ég verið. En sem sagt var að gramsa í póstinum mínum og fann þetta. Mátti til með að deila þessu með ykkur. Er algjörlga búin að grenja úr mér augun af hlátri.....

Laughing 2


Gefa einkunina 1Gefa einkunina 2Gefa einkunina 3Gefa einkunina 4Gefa einkunina 5 Bloggar | 6.3.2008 | 23:50 | Slóð | Athugasemdir (0

Engin ummæli: