fimmtudagur, ágúst 10, 2006

Flutt

Flutt hingað Gunnsan
Veriði velkomin þangað inn.

miðvikudagur, ágúst 09, 2006

Hæ.

Jebb. smá skrif og skrif. Fór í útilegu síðustu helgi eins og þorri landsmanna þessa mestu ferðahelgi sumarsins. Á Laugarvatn, í grenjandi rigningu. En ekki hvað. Held að það hljóti að vera einhver álög á mér og mínu tjaldi. En skiftir svo sem ekki öllu. Skemmti mér konunglega, í góðum félagsskap og svona. Var tvær nætur í tjaldinu og fór svo hinu megin við vatnið og gisti eina nótt í bústað hjá Olgu. Hrikalega gott að koma þangað. Var fljót að skella mér í pottinn og sturtuna. Ahh gott. Rigndi þar líka. Nenni eiginlega ekki að blogga í augnablikinu. Tölvan er svo hæg að það hálfa væri hellingur. Ætlaði að skella inn mynd en er ekki að nenna að bíða eftir því. Verð að fara að láta tékka á þessari elsku. Hún er eins og nírætt gamalmenni í göngugrind. Meira síðar.
Yfir og út krúsarknús........

miðvikudagur, ágúst 02, 2006

Farið að styttast í langt helgarfrí

Og mikið sem mig hlakkar til. Ætlaði nú að krúsa í tjaldinum mínu fína á Laugarvatni hjá Guðnýju og Sigga. Fer nú alveg að hætta við það. Rok í boði veðurguðanna borið fram með ringningu. Svo ætli mar verði bara ekki að sníkja sér fleti á gólfi fortjaldsins. Langar allavega ekki að hanga hér í bænum, spúsinn að vinna og allir hinir farnir úr towninu. Var að horfa á Supernova. Og ég verð nú bara að segja það að það er sko ekki alveg allt í læ með mig. Fékk sko bara kökk í háls og tár í auga þegar Magni horfði á videoið af syninum. Og svo aftur þegar gæjarnir sögðust ætla að bjóða familýjunni út til hans í heimsókn. Ohhh mar verður eitthvað svo mjúkur og melló með aldrinum. En þegar þar að kemur að ég fer að grenja yfir auglýsingum þá sel ég sjónvarpið. Verra verður það nú ekki. Halló halló. Ég segi nú ekki meir. Annars er þetta nú altilæ á meðan ég verð ekki eins gleymin og kellingin sem hringdi í búðina í vikunni og kvartaði undan kjötfarsinu sem hún keypti kvöldið áður hjá okkur. Frá GOÐA. Jebb. Við seljum ekki vörur frá Goða. Ekki eina einustu. Og ég alveg, ertu alveg viss um að þú hafir keypt þetta hjá okkur. Já, já. Ég versla hvergi annars staðar en í 10-11 Garðabæ. Og ég. Já það er nú frekar skrítið því að við seljum ekki vörur frá Goða. Og hún, hvað heldurðu ekki að ég viti ekki hvar ég versla. Og ég, jú jú, en...... Heyrðu ég er með kvittunina og það var ung stúlka sem afgreiddi mig (passar hún er 14). Svo ég náttla bauð frúnni að koma með miðann og hún já takk ég kem á eftir. En hún hlýtur að búa svakalega langtíburtistan því hún er ekki enn komin 2 dögum seinna. Sumt fólk á sko bara bágt. Jæja best að fara að skríða í bælið, loka augunum og bjóða Óla Lokbrá velkominn og vona að hann færi mér fagra drauma.
Yfir og út krúsarknús.....................