þriðjudagur, september 16, 2008

Bara skemmtilegt.

Tekið úr alvöru læknaskýrslum, skrifuðum af alvöru læknum:

Að höfðu samræði við lækni féllst hann á að koma sjálfviljugur inn... -

Á öðrum degi var hnéð betra og á þriðja degi var það alveg horfið... -

Daginn fyrir innlögn borðaði hún kvöldmat á eðlilegan hátt með kjötbollum... -

Eðlileg augnskoðun fyrir utan sérkennilegt andlitsfall….. - Eftir það var hún í samkvæmi… -

Fékk vægan verk undir morgunsárið…

Hún hefur þroskast eðlilega framan til… -

Hún rann til á svelli og virðist að lappirnar á henni hafi farið í sitt hvora áttina í byrjun desember... -

Húðin var rök og þurr... -

Misnotaði áfengi í óhófi áður fyrr… -

Móðir getur látið barnið sitja með því að setja fæturna í hring… -

Nú er svo komið fyrir henni að hún getur að mestu hjálpað sér sjálf… -

Saga er fengin hjá uppgefnum ættingjum… -

Sjúklingur á vanda til að fara austur í sveit um helgar. Þar datt undan henni hestur… -

Sjúklingur var í morgun að drekka te og borða maís þegar að bar mann sem heitir Kristmundur.... -

Skoðun við komu leiðir í ljós unglingspilt… -

Tekin var mynd af sjúklingi sem sýndi breytingar í Hafnarfirði… -

Við komu á spítalann var sjúklingur fljótlega skoðaður af undirrituðum og kemur þá í ljós að um er að ræða 46 ára karlmann sem er mjög þrekvaxinn og vöðvastæltur… -

Við rectal exploration fannst stækkaður skjaldkirtill… -

Við skoðun á sjúklingi kemur fram áberandi kyndeyfð… -

Við skoðun eru engar eitlastækkanir að gagni… -

Það sem fyllti mælinn var þvagleki… -

Það vottar fyrir gyllinæð hægra megin á kálfa… -

Þegar hann var lagður inn hafði ör hjartsláttur stoppað og honum leið betur. -

Þessi maður veit ekkert um skyldleika í ætt…. -

Sjúklingur batnar ef lagst er ofan á hann… -

Sjúklingur borðar reglulegt mataræði… -

Sjúklingur er ekki þekktur fyrir að fremja sjálfsmorð.... -

Sjúklingur er fertug, að öðru leyti ekkert athugavert.... -

Sjúklingur er svo hress að hann gæti gengið langleiðina til Akureyrar… -

Sjúklingur er tilfinningalaus frá tá og niður úr. -

Sjúklingur fékk sér vöfflur í morgunmat og var kominn með lystarstol í hádeginu.... -

Sjúklingur fékk þá mjög langsótt kvef… -

Sjúklingur fær verki í bringuna ef hún liggur á vinstri hlið lengur en í eitt ár...

Sjúklingur hefur aldrei fundið fyrir þessum verkjum nema þegar hann vaskar upp í sumarbústað en er ráðlagt eftirlit ef verkirnir koma fram við önnur tækifæri… -

Sjúklingur hefur átt við gott heilsufar að stríða… -

Sjúklingur hefur fremur óbærilega verki… -

Sjúklingur hefur formlegar hægðir… -

Sjúklingur hefur skilið eftir hvítu blóðkornin á öðrum spítala.... -

Sjúklingur hefur verið að þyngjast af asmanum sl. sólarhring… -

Sjúklingur hefur verið mædd sl. fimm ár… -

Sjúklingur hefur verið niðurdreginn alveg síðan hann byrjaði að hitta mig 1983. -

Sjúklingur lenti á parketgólfi og bar fyrir sig höndina með þeim árangri að hún brotnaði… -

Sjúklingur hefur verið í vandræðum með gervifótinn en hann hefur haft fjóra fætur frá því að hann lenti í slysinu, en þann síðasta fékk hann í apríl sl... -

Sjúklingur lærði söngnám… -

Sjúklingur tekur engin lyf en magnyl þess á milli… -

Sjúklingur tárast og grætur stöðugt. Virðist líka vera niðurdreginn.... -

Sjúklingur var í góðu ásigkomulagi þangað til flugvélin hans varð eldsneytislaus og hrapaði....

Nenni ekki að blogga að öðru leyti.....


Engin ummæli: