þriðjudagur, september 16, 2008

Góður.....

Kona var að halda framhjá manni sínum og var í rúminu með elskhuganum. Allt í einu heyra þau sér til mikillar skelfingar að eiginmaðurinn stingur lyklinum í skrána á útidyrahurðinni. Konan reynir að finna eitthvað ráð í flýti. Hún tekur fram flösku af nuddolíu og púður. Hún hellir olíunni yfir elskhugann og hellir svo púðrinu yfir hann þannig að hann lítur út eins og stytta. “Ekki hreyfa þig fyrr en ég segi að þú megir það,” segir hún og klæðir sig í flýti. “Stattu bara þarna grafkyrr.” Maðurinn kemur inn í svefnherbergið og spyr: “Elskan hvað er nú þetta?” “Þetta, æji þetta er bara stytta,” segir konan kærulaus.? Gunna og Jón fengu sér eina fyrir stuttu þannig að ég ákvað að redda mér einni líka, þetta er svo smart.” Ekkert er rætt meira um “styttuna”, ekki einu sinni yfir kvöldmatnum. En klukkan 3 um nóttina læðist maðurinn fram úr rúminu, fer fram í eldhús, nær í samloku og mjólkurglas og réttir styttunni. “Gjörðu svo vel,” segir hann. “Ég stóð eins og hálfviti hjá Jóni og Gunnu í heila tvo daga og enginn bauð mér vott né þurrt.”


Á léttu nótunum


Konur yfir fertugt - Andy Rooney í 60 mínútum - tær snilld...

Eftir því sem ég eldist, met ég mest konur yfir fertugt og her eru nokkrar ástæður fyrir því:

Kona yfir fertugt mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig "hvað ertu að hugsa?" Henni gæti ekki verið meira sama.

Ef kona yfir fertugt vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki yfir því. Hún gerir eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það áhugaverðara en leikurinn.

Konur yfir 40 eru virðulegar í framkomu. Þær fara sjaldan í öskurkeppni við þig í óperunni eða á fínum veitingastað.
Nema þú eigir það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig ef þær halda að þær komist upp með það.

Eldri konur eru örlátar á hrós, oft óverðskuldað. Þær vita hvað það er að vera ekki metin að verðleikum.

Konur verða skyggnar með aldrinum. Þú þarft aldrei að viðurkenna misbresti þína fyrir þeim.

Þegar þú getur litið framhjá einni eða tveimur hrukkum er kona yfir 40 langtum kynþokkafyllri en yngri kynsystur hennar.

Eldri konur eru hreinar og beinar. Þær segja þér eins og skot að þú sért asni ef þú hagar þér sem slíkur. Þú þarft aldrei að fara í grafgötur með hvar þú hefur þær.

Já, við dásömum konur yfir fertugt af mörgum ástæðum.

Því miður er það ekki gagnkvæmt. Því fyrir hverja glæsilega, smarta og vel greidda konu yfir fertugt, er sköllóttur, vambmikill forngripur í gulum buxum gerandi sig að fífli fyrir 22ja ára gengilbeinu. Konur, ég biðst afsökunar.

Til allra þeirra karla sem segja; "Afhverju að kaupa kúna þegar þú getur fengið mjólkina frítt?" þá eru hér nýjar upplýsingar:

Nú á tímum eru 80% kvenna á móti giftingum.

Hvers vegna? Vegna þess að konur gera sér grein fyrir að það borgar sig ekki að kaupa heilt svín þótt þær langi í smá pylsu!

Andy Rooney


Gefa einkunina 1Gefa einkunina 2Gefa einkunina 3Gefa einkunina 4Gefa einkunina 5 Bloggar | 7.8.2008 | 10:35 | Slóð | Athugasemdir (2

Engin ummæli: