Meiri letin í manni. Nenni engu orðið. Samt er fullt af skemmtilegu að gerast í kringum mig þessa dagana. Svo ekki leiðist mér. Fór í æfingabúðir síðustu helgi og verð nú bara að segja það að það var frekar skemmtilegt. Stífar æfingar á laugardeginum og dýrindis matur um kvöldið. Var með Huldu í herbergi og það var nú bara ekkert öðruvísi en það að við vorum hreinlega í svítu. Þvílíka stóra herbergið. Auka rúm í skáp svona til öryggis ef einhver hefði nú óvart sofnað á göngunum. hehe.. Sungum svo í messu á sunnudeginum, hmmmm, hefði nú alveg mátt sleppa því. En hvað um það. Mar lifði þetta sosem af. Fengum súpu og brauð að launum. Halelúlja, la o la. Kóræfing í kvöld og var hún asskoti góð. Komst að því að það er bara einn texti eftir sem þarf að berja í hausinn á mér og þá er ég klár. Klára það bara í þessari viku.. Er svo að fara í naglalögunartíma á morgun. þessar neglur sem vinkona Lilju setti á mig eru algjört drasl eða þá að hún er ekki nógu klár í þessu. Ég er sko engin skvísa lengur. Með þær ógeðslegustu neglur er ég hefi haft um ævina. Ojjjjjjj.........Fer á stofuna sem Lonni hefur farið á og aldrei lent í neinu veseni þar. Eins gott að það gangi betur. Annars er ég bara hætt þessu og verð með mínar stuttu og ljótu. Verst að þá verður svo áberandi hvað ég er með stutta putta. Svona mongolíta putta. Nó afens. En downs syndroms krakkar eru með ótrúlega stutta putta og mínir eru eiginlega alveg eins.... ullabjakk. Enda þegar við trúlofuðum okkur hér um árið var sko í tísku að vera með BREIÐA hringa og mín vildi sko breiða. Fengum okkur 9 mm. og ég gat varla beygt puttann. En hvað um það. Allt fyrir lúkkið..Og það besta við þetta allt er að bóndinn er líka með svona stutta putta. hehehe..... En nú er mál að linni . Góða nótt og fallegir draumar til ykkar.
Knús í krús......broskall...............
miðvikudagur, október 20, 2004
föstudagur, október 15, 2004
All of me,
why not take all of me.
Cant you see, I´m no good without you
Take my arms I´ll never use them,
take my libs I wanna loose them.
Your goodby,
left me whit eyes that cry´d
how can I go on live without you.
You took that part, that ones was my heart
So why not take all of me
Datt svona í hug að setja hér inn textann sem fyrirsögn þessa bloggteturs er tekin frá. Þetta lag er í algjöru uppáhaldi hjá mér og setur mig alltaf í samband við pabba og Hössa frænda, bróður pabba. Þeir voru sko bara flottastir þegar þeir sungu þetta og spiluðu undir á sinn hvorn gítarinn. En nú er hann farinn þessi elska, en það er ég viss um að hann er hjá okkur og fylgist með. Svo ég tali nú ekki um ættarmótin. Þar var hann alltaf manna kátastur og það er ég viss um að hann tekur undir með okkur þegar við syngjum þetta lag. Og aldrei hittumst við öðruvísi á þessum mótum án þess að syngja það svona einu sinni ef ekki tvisvar.
Ekki veit ég svo sem afhverju ég fór að skrifa þetta hér núna. En um leið og ég tengdi mig bara kom þetta. Skrítið. En Hössi var og verður alltaf uppáhalds frændinn minn, og því fær enginn breytt. Ljúfari og yndislegri persónu er vart hægt að hugsa sér. Og alltaf var hann mér og minni litlu fjölskyldu góður. Blessuð sé minning hans. Sakna hans enn þó bráðum séu árin orðin sex frá því að hann fór.
En nú er ég komin í helgarfrí og æfingabúðir á Selfossi um helgina og þá verður mikið sungið, bæði eftir nótum og svo bara eftir þörfum líka. Hlakka mikið til þess. Fór á kynningu til Haddýjar í kvöld. Þar var verið að kynna Skrappbooks. Veit sosem ekki hvort þetta er rétt skrifað eður ei. En omg. Dísös hvað þetta er flott. Og þar keypti ég mér efni í jólagjöf litla prinsinns hennar ömmu sinnar. Og Lonni bannað að segja Lilju frá. Heppin ég að hún getur ekki verið í tölvum þessi elska. Annars hefið ég ekki getað sagt ykkur frá þessu. Þetta eru svona albúm með allavegana bakgrunnum og svo klippir maður myndirnar til og setur allavegana dúllerrí. Ótrúlega krúttlegt. Hlakka til að byrja á þessu. En samt. Verð fyrst að klára kjólinn. Var að próna í saumó á þriðjudaginn og gerði vitleysu svo nú þarf ég að rekja upp rúmlega heila umferð og það er sko ekki það skemmtilegasta sem ég geri. Kannski ég fari bara til Olgu og láti hana gera það. Hún er svo asskoti snögg að þessu. hehehe......
En nóg í bili. Komin tími á ból enn eina ferðina.
Knús í krús.............broskallllllllllllllll...!!!!!!!!!!!!!!!!1

sunnudagur, október 10, 2004
Enn og aftur var fengið sér aðeins í tánna.
Alli og Anna buðu okkur í heimsókn í kvöld og smá bjór smakk. Tókum bara erfðaprinsinn með okkur. Ætluðum ekki að vera svo lengi. En eins og alltaf vill aðeins teygjast á tímanum. Komum heim rúmlega fjögur. Og mín að fara í magadans á morgun. (í dag). Held ég ætti að fara að koma mér í rúmið. Eldaði þennann dýrindis svínabóg í kvöld og Liljan mín kom í kaffi í dag og rak augun í þennann bóg í ísskápnum og bauð sér með það sama í mat. Stuttu seinna hringdi Lonni í hana og fékk þær fréttir að hún (Lilja) skyldi hér snæða og vildi þá hin líka fá mat. Og svo varð. Þannig að hér borðuð báðar dætur mínar og Baldur Lonniar. Mín voða rausnarleg og bauð rauðvín með matnum. Ég er náttúrulega svo rík af rauðvíni eftir síðasta drátt. En fattaði það um leið og ég var búin að opna flöskutetrið að engin rauðvínsglös eru til hér á heimili voru. Hér brotnaði allt sem brotnað gat þegar skápur vor hrundi í gólfið fyrir síðustu jól, er hjónin stóðu hér í stórræðum og máluðu allt hátt og lágt. Svo við drukkum rauðvín úr litlum vatnsglösum. *roðn**roðn* Eins gott að fara að fjárfesta í eins og fjórum rauðvínsglösum......... Verst hvað mar velur alltaf dýr glös að safna. Nú er ég að safna Stráinu frá Tékk kristal. Þau eru sko bara sæt og fín. En nú býð ég góðrar nætur og fer að sofa í minn litla og sæta haus.
Knús í krús...............broskall.........
Knús í krús...............broskall.........
laugardagur, október 09, 2004
Enn og aftur er klukkan orðin allof margt
og aldrei drattast ég í bælið á skikkanlegum tíma. Enda nóttin besti tími sólarhringsins. Svo sem ekkert merkilegt á minn dag drifið í dag. Var að vinna til sex og svo var bóndinn svo elskulegur og bauð okkur Erni út að borða. Jámm. Á bærjarins bestu. Nammi namm. Alltaf jafn góðar. Nentum engan vegin að elda þegar við komum heim. Lonni og Boldur fóru líka út að borða í kvöld. Á Italiu. Ussu svei má mar þá bara biðja um bæjarins bestu. hehehe...... Ein öfundsjúk. Adda kom í kvöld og að sjálfsögðu óþverruðumst við aðeins. Tókum þrjá. 2-1 fóru leikar og ekki verður farið nánar út í það.....Yndisleg fríhelgi framundan og magadans á sunnudaginn. húlla, húlla....... Hlakka gekt til. Eins og unglingarnir segja. Nenni ekki meir að sinni.
God nat alla hoppar.
knús í krús.........................broskall
God nat alla hoppar.
knús í krús.........................broskall
föstudagur, október 08, 2004
Hversu marga þarf í þínu stjörnumerki til að skifta um eina ljósaperu?
HRÚTUR : Bara einn. Viltu gera mál úr því eða ?
NAUT: Einn, en reyndu að koma nautinu í skilning um að sprungna peran sé ónýt og að það sé best að skipta um hana og að það eigi síðan að henda henni.
TVÍBURI: Tveir, en þeir skipta aldrei um peruna-- þeir ræða í sífellu um hver á að skipta um hana, hvernig er best að skipta um hana og af hverju þarf að skipta um peruna !
KRABBI: Bara einn. En það tekur geðlækni þrjú ár að hjálpa krabbanum að komast yfir áfallið og í gegnum sorgarferlið.
LJÓN: Ljón skipta ekki um ljósaperur, en stundum fá umboðsmennirnir þeirra Meyju til þess að gera það fyrir þau á meðan þau eru úti.
MEYJA: Um það bil 1.000.000 með skekkjumörkunum +/- ein milljón.
VOG: Humm, tvær. Eða kannski eina. Nei, annars höfum það tvær. Ef þér er sama ?
SPORÐDREKI: Þessar upplýsingar eru algert leyndarmál og einungis deilt með þeim Upplýstu í Stjörnusal hinnar Eldgömlu Reglu.
BOGMAÐUR: Sólin skín, dagurinn er ungur, allt lífið er framundan og þú ert inni, með áhyggjur af einhverri eldgamalli sprunginni peru ?
STEINGEIT: Ég eyði ekki tíma mínum í þessa barnalegu brandara.
VATNSBERI: Sko, þú þarft að minnast þess að allt í umhverfi okkar er hrein orka svo að.....
FISKAR: Ljósaperu? Hvaða ljósaperu?
Þetta er sko gargandi snild. Get nú ekki annað sagt. Sé móður mína alveg gjörsamlega og föður minn líka. Þeirra merki eru sko bara um þau. hehehehehehe........Hef annars lítið að segja, var að vinna í kvöld og á stubb á morgun og svo komin í tveggja daga frí. Jibbíkóla.......broskall.
Annars datt ég inn á síðu í gær bonsaikitten.com og þvílíkur vibbi og mannvonska. Hvað er að verða með þennann heim sem við lifum í,. Rækta ketti í krukku. Shitt mar. Ég var gjörsamlega yfir mig hneyksluð. Harpa ekki kíkja. Nei ekki kíkja. Allavega haltu kisunum þínum frá tölvunni á meðan. Þetta er ógjó........ Annars ekki fleira í fréttum að sinni.
Knús í krús..............

fimmtudagur, október 07, 2004
Ekkert svo sem markvert
að frétta af þessum bænum. Hélt náttlega hér þetta fína partý síðasta laugardag og var að sjálfsögðu mikið sungið og svoldið drukkið. Bara pent, enginn ofurölvi. Allt eins og það á að vera. Nema ég fór ekki að sofa fyrr en hálf sjö og var frekar slæpt þegar ég svo mætti í Kramhúsið með mínum elskulega kór. Og það var sko hrikalega skemmtilegt. Orvil var þarna með okkur og kenndi okkur einhvern svona afrískan dans. Og O.M.G. sviti dauðans. Það lak sko í stríðum straumum. Ekki þurr blettur á mér eftir þennan tveggja klukkuktíma tíma. Og svo förum við aftur næsta sunnudag og þá verður okkur kenndur MAGADANS. Yes. Eruð þið ekki að sjá mig fyrir ykkur. Húlla, húlla. Hlakka mikið til. Svo er mar bara búin að vera að vinna og svona. Kóræfing í gærkveldi og svo kom Sillan mín til mín eftir æfingu hjá Léttunum og við skönnuðum netið í leit að Digital voice rekorder. Og fundum tvö sem hennta okkur alveg sérdeilis vel. Það verður sko munur að halda á þessu á æfingum heldur en þessum segulbandstækjum. Þau eru sko ekki stærri en hálfur sígó pakki. Og talandi um það. Er ekki komin tími til að hætta þessu bulli. Pakkinn kominn í 525 krónur í minni sjoppu. Shitt mar. Við erum að tala um fyrir par um það bil 370 þús á ári. Vantar ekki mikið upp á hálfu milluna. *sviti**sviti* Well well tölum um eitthvað skemmtilegra. Lonni og Boldur loksins búin að fá greiðslumatið. Svo nú geta þau farið á fullt að finna íbúð. Alles is good hjá litlu family í efri byggðum. Eitthvað er hann nú samt búinn að vera slappur litla skinnið. Heldur engu niðri. Upp og niður sindrom í gangi þar. Fóru með hann á barnavaktina í kvöld og var sagt að kaupa einhverja saltupplausn í apóteki og gefa honum og ef hann ekki hefði haldið því niðri áttu þau að koma með hann upp á Borgó og fá í æð. En sem betur fer drakk hann smá og hélt því innanbúks. Og svo er hann loksins búinn að brosa fyrir ömmuna sína. Og það var svo sætt. Fékk sko alveg strumpabólur í hjartað. Well darlings komin tími á ból.
Knús í krús ....... broskall.
Es. I miss my broskalls.,,,,,,,,,,,,, ;~((
Knús í krús ....... broskall.
Es. I miss my broskalls.,,,,,,,,,,,,, ;~((
sunnudagur, október 03, 2004
Komin með hiksta og á leiðinni í rúmið
Bara láta vita að partýið gekk glimrandi vel. stopp. allir í stuði. stopp. unga fólkið fór að sjálfsögðu. stopp. í bæinn ásamt Stebbu. stopp sem flokkast ekki undir unga fólkið. stopp. Lonni hringdi stopp og kom svo ásamt stopp Baldri og Tryggva stopp. Eru ný farin. stopp. Segi meira frá seinna. stopp.
Góða nótt eða það sem eftir er af henni. stopp
Góða nótt eða það sem eftir er af henni. stopp
miðvikudagur, september 29, 2004
Jesús kristur
.
Það er sko hálfgerð fötlun að fá alltíeinu svona langar neglur. Þær þvælast sko bara fyrir mér í vinnunni, verð svo að vanda mig við að ná upp smámynntinni úr peningaskúffunni og dísös ef ég nú missi pening í gólfið. Það gerðist reyndar í dag. Og ég var sko í alvarlegum vandræðum með að ná tíkallinum upp. Og loksins þegar það tókst eftir langa mæðu, hvað gerist ha, missi hann aftur. :(((
Gömlu komu frá Portugal í dag (ma & pa) Diddi sótti þau út á völl. Og svo eftir kóræfingu brunaði ég að sjálfsögðu beint uppeftir til þeirra en þá var bara enginn heima. Þá hafði Diddi eldað þessa dýrindis sjávarréttasúpu og boðið þeim í mat. Svo ég náttlega fór bara heim og hitti þau þar. Og haldiði ekki að þau hafi keypt þetta líka fína veski handa mér. Mín var nú ekki ósátt við það. Mar á sko aldrei nógu mikið af veskjum...... Þau náttlega voða brún og sæt, sérstaklega mamma. Eins og svertingi. Þarf ekki nema rétt að reka nefið upp í sólina og barbabrella, mín orðin brún. Óréttlæti heimsinns er mikið já. Það er annað en ég. Þyrfti helst að liggja samfellt í 4 mánuði til að ná sama lit og hún.
Svekkelsi dauðanns........Vinnu og kveðju partý hér um helgina, svo nú verð ég að drífa mig í að þrífa aðeins til hér. Gengur náttla ekki að bjóða hér heim fólki og allt vaðandi í drullu og skít. Hef verið svona frekar löt við þessi endalausu þrif. Er annars komin með þá dillu í hausinn að flytja. Og er búin að finna íbúðina sem mig langar í. Laufásvegurinn fíni, rétt hjá Miðbæjarskóla. Keyrði þarna fram hjá í dag og lenti í svona dejavú dæmi. Keyrði eftir Miðstrætinu og búmm. Hef sko ekki komið þarna í nokkur ár, og það ansi mörg. Sem sagt nú vil ég flytja á Laufásveginn og ekkert annað kemst að í mínum haus þessa dagana. Elska svona gömul hús og þetta tiltekna hús var sko byggt árið 1900. I love it. Íbúðin geggjuð, öllu uppgerð og þarf ekkert að gera nema að flytja og drífa sig í nuddbaðkarið sem þar er. Ahhhhhhh....................Ég er sko mikið meira fyrir svona gömul hús með sál en þessa nýja kubbalda. En bódinn segir, huh timburkofi huh........... Þarf að ala hann aðeins betur....Svo er ég komin með aðra dellu. Hef svona oft verið að hugsa að það væri gaman að læra að setja svona neglur, og núna þegar ég er búin að prufa sjálf er ég gjörsamlega orðin sjúk, vil bara drífa í að læra þetta. Kannski mar spái í það eftir áramótin. Aldrei að vita upp á hverju mar tekur. En ekki meir af mér að sinni.
Knús í krús..................broskall

mánudagur, september 27, 2004
Neglur dauðans
.
Hjúkkidísjúkk mar. Haldiði ekki að mín hafi verið að fá sér neglur, sko gervi jú nó. Og french manicure. Oh my god ég er svo mikil gella. Verst hvað það er erfitt að pikka á lyklaborðið. En það hlýtur að venjast eins og allt annað. Oh svo er ég með rauðan "demant" á baugfingursnögl vinstri handar. Úllala.........ÉG hef svo sem alltaf verið með frekar langar neglur þar til ég byrjaði að vinna á Select. Síðan þá bara brotna þær endalaust. Og talandi um Select. Ég tók aukavakt í nótt sem leið upp í Suðurfelli og mæli hér með eindregið með því að fólk forðist það að fá sér pylsu eða eitthvað úr bakaríinu þar. Jísös kræst. Þvílíkur skítur og sóðaskapur. Mun þetta kallast Subbufell héðan í frá. Ofninn þar hefur sko ekki verið þrifinn þar í að minnsta kosti 2 ef ekki 3 mánuði og þegar ég þreif pönnuna og lyfti henni upp til að þrífa undan henni bara hreinlega brá mér. Enda spurði ég drenginn sem var að vinna hvort þau væru ekki að grínast, þau væru að selja MAT........... Viss um að hann óskar ekki eftir því að fá mig aftur á aukavakt. Lét hann sko alveg vita mitt álit á þessu. Svo ef ykkur langar í pylsu eða gott bakkelsi komiði bara á Bústaðaveginn. Þar er sko allt sterilserða... og hana nú.............Og talandi um drasl og skít. Hér í blokkinni búa tvær fjölskyldur í einni íbúð sem þau leigja og eru búin að vera með sófa á svölunum hjá sér í nokkra mánuði, en tóku svo upp á því að henda honum út. Og það hér út í garð, eða við gaflinn á blokkinni. Og ég náttlega hélt að þau væru bara að bíða eftir einhverjum sem ætlaði að taka hann og henda. En nei. Nú er búið að brjóta helvítis sófan í spað og dreifa um allt tún. Og svo liggur svampurinn út um allt. Krakkarnir sjálfsagt búin að vera að dreifa þessu. Hvað er að svona fólki. Held að formaðurinn ætti að gera eitthvað í þessu máli. Annars verðum við bara að gera það. Djö..................Well,well,well. Nóg komið af bulli í bili.
Knús í krús.................broskall

þriðjudagur, september 21, 2004
Skál og syngja
Segi nú ekki meir. Sýnist á öllu að þetta haust verði jafn brjálað og það síðasta. Endalaust verið að ákveða partý og annað slíkt. Partý í minni heittelskuðu vinnu verður trúlega haldið hér á mínu dásamlega aðra helgi. Tilefni, haustið og að kveðja Stebbu sem nú heldur til annarra starfa innan sama fyrirtækis. Orðin stöðvarstjóri skvísan, gott hjá henni. Og svo er verið að plana æfingabúðir með mínum yndis skemmtilega kór og verður það fyrstu, aðra eða þriðju helgi október nánaðar. Vona svo sannarlega að ekki verði fyrsta helgin valin. Þá er mín sko í vondum málum. Og ekkert tralalalalalalalalalala með það. Og eins og þið sjálfsagt vitið þá tekur Lonni mín upp fyrir mig á stöð 2 svona hina og þessa áhugaverða þætti og svona svo ég sé nú inn. Og í fyrradag var ég að horfa á þáttinn um litlu stelpuna sem brann sökum sígarettu sem móðir hennar sofnaði út frá. Oh my god. Ég frammleiddi örugglega heila skúringarfötu af tárum. Þvílíkt og annað eins. Og það sem þetta litla barn er glatt og hamingjusamt. En það er ég ansi hrædd um að hún eigi eftir að eiga erftitt líf þegar fram í sækir. Jesús góður það sem lagt er á sumt fólk. Og svo er ég að kvarta. Held að ég ætti að taka mig saman í andlitinu og þakka fyrir það sem ég hef. Og hana nú. Og hugsið ykkur, það eina sem ekki brann á líkama þessa barns er bleiju svæðið. Því að bleija var blaut. Jæja, ekki meir um það. Nú held ég að drengurinn minn sé sofnaður svo nú get ég fært hann og farið sjálf að sofa. Og by the way, ég auglýsi hér með eftir eins og tveimur aukahelgum í október fyrir hana Sillu mína svo hún geti haldið upp á afmæli Johns og klárað allt hitt sem hún þarf að gera. Og svo hélt ég að ég hefði mikið að gera. O nei....
Knús í krús.................
Es... Var að setja inn nýjar myndir af liltla kútnum. Endilega kíkja á þær og svo setti ég eina í fjölskyldualbúmið af langafa Gesti og langömmu Ragheiði, sem Diddi fann á einhverri vefsíðu. Þau eru svo ótrúlega krúttleg. Og b.t.w. Þau sitja í sófa þeim er ég hafði sem rúm er ég bjó í þessari íbúð sem myndin er tekin í. Sko. Þau áttu heima þarna fyrst og svo við og svo Didda og Lalli og svo afi og amma. Þannig að það má eiginlega segja að þetta sé svona nokkurskonar Southfork okkar afleggjara Gests og Ragnheiðar. End of Es........

mánudagur, september 20, 2004
Kannski að mar setji hér eitthvað inn
til að róa suma. Er búin að vera að vinna smá mikið, tekið nokkrar aukavaktir og svona, svo lítill tími hefur verið til bloggs. Fór á kóræfingu síðasta þriðjudag og það var náttla meiriháttar. Byrjum veturinn með trompi og höldum brjálaða Gospel tónleika í byrjun nóvember. húhú. Og nú hlakkar mig bara til að mæta á æfingu á morgun. Komst svo að því að mar er alveg ótrúlega háður rafmagni. Kom heim úr vinnu á fimmtudagskvöldið síðasta og um leið og ég geng inn fer allt rafmagn af húsinu. Og mig sem var svo farið að hlakka til að horfa á spóluna frá Lonni og svona. Svo mín ráfaði um í myrkrinu og fann kerti og kveikti á þeim. Og það sem mér leiddist. Alveg til helvítis og aftur til baka. Ætlaði aldrei að sofna, hafði ekkert að lesa, kallinn hraut og barnið líka. Svo það endaði með því að ég settist við eldhúsborðið og hlustaði á kóræfinu með headsettinu, sem var svo sem ágætt nema að því leiti að ég gat ekki sungið með. Orggggggggg.
Nú er farið að koma einhver djö..... vírus viðvörun í sambandi við broskallana mína, og er ég nú frekar fúl yfir því. Finnst þeir gefa þessu pári smá karakter. En verð að bíða með þá að sinni. Fór í Ikea á laugardaginn og keypti mér vínrekka fyrir allar rauðvínsflöskurnar mínar og nú tróna þær eins og drottningar í stofunni minni. Fór reyndar með eina og gaf Sigga og Guðnýju svona bara í gamni, eða kannski aðþví að þau eru flutt í fína húsið eða kannski bara afþví að mér þykir ótrúlega vænt um þau. Litli snúðurinn vex og dafnar eins og best verður á kosið. Farinn að brosa eins og hershöfðingi að sögn foreldranna. Ekki hef ég nú fengið að sjá það enn. Fer nú að verða abbó....Fórum í afmæli til Jóa hanns Ella Más, bróðir hanns Didda á föstudagskvöldið og drukkum þar ógrynni af bjór og borðuðum mikið tabas. Rosa gott. Mikið fjör og mikið gaman. Jæja dúllís nú er komin tími á ból því ég þarf að vakna fyrir sjö og verð að vinna til fimm og svo beint á æfingu, svo nýliðafundur eftir æfingu og hann verð ég víst að sitja, svo ég sé ekki fram á að ég verði komin heim fyrr en um 10 annað kvöld.
Knús í krús.....................

Usssssssssss, ekki svona hátt
ég er að stelast í vinnunni. Bara hvíslast. Datt svona í hug hvort eitthvað væri um að vera á bloggsíðum dauðans, og sé þá að einhver er ekki ánægður með mig. Lofa að skrifa í kvöld. Slatti búið að vera að gera og svona, drekka bjór og fara í afmæli. Láta sér leiðast til helvítis og aftur til baka í rafmagnsleysi. En segi meira frá því í kvöld. Bææææ.
Knús í krús...............
Knús í krús...............
mánudagur, september 13, 2004
10 flöskur af rauðvíni, hangandi upp á vegg.
Jahá, haldiði ekki að ég hafi unnið rauvínspottinn í vinnunni í gær. Er búin að vera með í tveimur "dráttum" og vinn svo bara í annað skiptið. Góður gróði það. Græddi sko heilar átta flöskur.
Annars er ekki mikið í fréttum á þessum bænum frekar en öðrum hér á blosssíðum dauðans. Nú er mar búin að vera að þessu bloggi í eitt ár og eitthvað er mar farin að slappast. Svo byrjar kórin aftur á fullu næsta þriðjudag, svo nú fer allt að komast í sínar föstu skorður. Hlakka sko endalaust til að byrja aftur. Do re mi fa so la ti............... Svo var ég að finna helv.... flotta síðu með fullt af flottum "skinnum" fyrir bloggsíður. Er búin að sitja sveitt yfir þessu dóti, er ekki alveg að fatta hvernig mar setur þetta inn. Get alveg copy-að javascriptina inn í template-ið en þá kemur ekki allt það sem ég hefi ritað hér. Þarf að liggja aðeins betur yfir þessu. Er nebbilega búin að finna ógeðslega krúttlegt "skinn" sem ég vil nota. Kannski að mar bara böggi Silluna
sína og athugi hvot hún fatti þetta ekki. Hún er nú svo ótrúlega fattin kona.
Svo vorum við Harpa búnar að ákveða að hittast næsta laugardagskvöld og fá okkur smá rautt. En svo hringdi Jói bróðursonur Didda og bauð okkur í fertugsafmælið
sitt svo við Harpa veðum að hittast síðar. Ótrúlegt hvað getur allt í einu orðið mikið að gera hjá manni. Og svo ekkert þess á milli í langann tíma. En svona er þetta bara. Ekki meir að sinni, er eiginlega hætt að sjá á skjáinn fyrir sibbu.
Knús í krús..............
Annars er ekki mikið í fréttum á þessum bænum frekar en öðrum hér á blosssíðum dauðans. Nú er mar búin að vera að þessu bloggi í eitt ár og eitthvað er mar farin að slappast. Svo byrjar kórin aftur á fullu næsta þriðjudag, svo nú fer allt að komast í sínar föstu skorður. Hlakka sko endalaust til að byrja aftur. Do re mi fa so la ti............... Svo var ég að finna helv.... flotta síðu með fullt af flottum "skinnum" fyrir bloggsíður. Er búin að sitja sveitt yfir þessu dóti, er ekki alveg að fatta hvernig mar setur þetta inn. Get alveg copy-að javascriptina inn í template-ið en þá kemur ekki allt það sem ég hefi ritað hér. Þarf að liggja aðeins betur yfir þessu. Er nebbilega búin að finna ógeðslega krúttlegt "skinn" sem ég vil nota. Kannski að mar bara böggi Silluna
sína og athugi hvot hún fatti þetta ekki. Hún er nú svo ótrúlega fattin kona.
Knús í krús..............
föstudagur, september 10, 2004
Hahahahahahahahaha
Var að lesa frásögn Carolu um sandorminn mikla. Er búin að hlægja mig í hel. En besta sagan hennar er tvímælalaust um það þegar hún var að æfa sig í að vera blind. Hélt ég myndi hreinlega drepast úr hlátri þá. Er búin að fylgjast með skrifum þessarar ágætu konu frá upphafi og eitt það skemmtilegasta sem ég les hér á bloggvefnum. Þið sem ekki hafið lesið hana þá er hún hér í link til hliðar undir LÉTTIR LUNDINA. Mana ykkur til að lesa hana. Hún léttir svo sannarlega lundina. Vildi svo sannarlega að ég gæti skrifað svona skemmtilega. En það vill nú svo til að ég þekki eina sem hefur svona skemmtilegann penna fasta við lúkuna á sér. Nefni nú engin nöfn en fyrsti stafurinn í nafninu hennar er DIDDA BESTASKINN. Er búina að vera að reyna að dobbla hana til að leyfa mér að setja sögurnar hennar inn á bloggsíðu sem ég myndi bara sjá um og hún gæti bara verið naflaus. Finnst algjört möst að hún leyfi öðrum að njóta. Og hafðu það elskan.
Held ég sé komin að lendingu í þessu aðgerðar máli mínu. Er eiginlega búin að komast að því að ef ég fer ekki þá komi ég alltaf til með að sjá eftir því. Og að svo komnu er ég hætt að hugsa um þetta. Fer þegar kallið kemur og ekki meira með það. Og hana nú...... Skaust aðeins til Lilju og Baldurs eftir vinnu að sækja Örn Aron sem fór að hjálpa til í fluttningum, og þar var að sjálfsögðu allt á fullu. Þetta verður alveg æðislegt hjá þeim, íbúðin er æðislega skemmtileg og rúmgóð. Sko alveg hægt að halda gott gítarpartý þar og dansa. Fékk náttlega í leiðinni tækifæri til að halda á litla manninum og það var voða gott.
Leila greyið var nú hálfrugluð á þessu öllu. Vissi ekki alveg hvernig hún átti að vera. En hún venst þessu fjlótt.
Og þá er einn dagur liðinn af þessari þriggja daga vinnuhelgi og leið bara ótrúlega fljótt. Drengurinn minn er bara að standa sig vel í skólanum svona í byrjun. Er voða áhugasamur og lærir möglunarlaust þegar hann er beðinn um það. Vona svo sannarlega að hann haldi því áfram. Allt svo miklu auðveldara þegar ekki þarf að nöldra og nauða í hvert skipti sem þarf að opna námsbækurnar.
Svo skrifar hann svo vel að það er með ólíkindum. Svona miðað við það að hann er karlmaður. Á einn frænda sem skrifar svo illa að hann getur ekki lesið sína eigin skrift. Ekki gott, og hann er sko ekki læknir heldur flugmaður. Algjör dúlla samt.
Bíðiði aðeins, þarf að lesa smá fyrir drenginn svo hann geti sofnað og fara með bænirnar. Sama rútinan á hverju kvöldi..............................................................................................................................
....................................................................................................................................
Jæja komin aftur. Erum núna að lesa norsk ævintýri eftir Asbjörnsens og Moe. Endalausar sögur um konungssyni og konungsdætur og tröll með svo og svo mörg höfuð. Sögur síðan 1943 og hann hefur svo gaman af þeim. Síðan er farið með bænir og svo endar hann alltaf á því að segja.
I cote. "Góða nótt, Guð geymi þig og gefi þér fallega drauma, I love you og ég elska þig til tunglins og aftur til baka. End of cote. Oh þetta er svo sætt. Eða mér finnst það allavega.
Jæja ætli þetta sé ekki komið gott í bili. Best að koma sér í bólið svo mar vakni í fyrramálið.
Knús í krús.................
....................................................................................................................................
Jæja komin aftur. Erum núna að lesa norsk ævintýri eftir Asbjörnsens og Moe. Endalausar sögur um konungssyni og konungsdætur og tröll með svo og svo mörg höfuð. Sögur síðan 1943 og hann hefur svo gaman af þeim. Síðan er farið með bænir og svo endar hann alltaf á því að segja.
I cote. "Góða nótt, Guð geymi þig og gefi þér fallega drauma, I love you og ég elska þig til tunglins og aftur til baka. End of cote. Oh þetta er svo sætt. Eða mér finnst það allavega.
Knús í krús.................
Obbsadeisí
Lalalalalalalalalalalala...................... Ein frekar tóm í hausnum. Veit eiginlega ekki hvað ég á að skrifa hér. Adda kom í dag og tókum við tvo óþverra. Hún vann einn og ég einn. Svo kom Gugga svilkona í kaffi líka. Hef sko ekki séð hana í tvo mánuði örugglega. Ótrúlegt hvað tíminn flýgur. Skarpp svo út eftir kvöldmat og fór í Kaskó að versla, og þá var Olga að vinna. Aldeilis sem hún er sæl með jobbið sitt. Nýbyrjuð þarna og hefur alltaf átt sér þann draum að vera búðarkona. Sé nú samt ekkert merkilegt við það starf. Hef sjálf unnið við það í þónokkur árin og myndi nú ekki segja að það væri draumajobbið. En hver hefur sinn smekk með það eins og annað. Skaust svo til Lilju og Baldurs og hitti þá bróður minn þar á bílastæðinu. Hann er í bænum vegna einhvers alheims ráðstefnu Hotel Express. Hann lofaði mér nú því að fara ekki heim án þess að gefa mér eins og 10 mínútur. Við sjáumst alltof sjaldan. Svo upp til þeirra nýbökuðu og fékk að skoða nýju íbúðina. Þau eru sko að flytja niður um eina hæð. Voru svo heppinn að strákurinn sem á þá íbúð fannst hún of stór fyrir sig einan og þau eru alveg að kafna í litlu einstaklingsíbúðinn svo þau höfðu bara makaskipti. Húrra fyrir þeim. Þau fá sko örugglega víðáttubrjálæði þegar þau eru flutt. Sem gerist á morgun. Risastórt svefnherbergi og mjög stórt barnaherbergi og risalega stórt eldhús og fullt fullt fullt af skápum. Í báðum herbergjunum og eldhúsinu. Rosa munur fyrir þau.
Munur að flytja svona á milli hæða. Engin sendiferðabíll og óþarfi að pakka öllu voða vel inn. Hún er reyndar búin að flytja eldhúsið niður og ég aðstoðaði hana aðeins við að ganga frá í skápana. Og þau brosa bæði út að eyrum. Voða happy með þetta. Svo eru Lonni og Baldur farin að skoða íbúðir. Alveg eins gott fyrir þau að borga um 50 þúsund á mánuði í eigin vasa eins og að leigja þessa holu á 40 þúsund á mánuði.
Jæja læt þetta duga að sinni og vona svo sannarlega að hún Didda mín haldi sönsum. Ekki vil ég hafa það á samviskunni að hún verði lögð inn á deild 13. Ussusss.
Knús í krús.................................
Knús í krús.................................
fimmtudagur, september 09, 2004
Ekki mikið í fréttum
þessa dagana. Var á kvöldvakt síðustu tvö kvöld og missti þar af leiðandi af því að syngja fyrir svía konug og hans family. Frekar leiðinlegt. Skemmtileg lögin sem systurnar sungu. Fæ kanski tækifæri til að syngja þau seinna. Allavega myndi Pollyanna segja það. hehehe..Uppgötvaði mér svo til mikillar skelfingar þegar ég kom heim í gærkvöldi að ég gleymdi gemsanum mínum í vinnunni. Bömmer. Sendi Lonni því sms úr tölvunni áður en ég fór að sofa og bað hana að sækja hann fyrir mig í dag, því hún ætlaði að koma og óþverrast aðeins. Og enn meiri bömmer. Hún fékk ekki smsin. Ekki hægt að treysta þessu tölvudóti. Svo ég mátti bíða þar til Jóna Hlín var búin að vinna í kvöld klukkan hálf tólf og þá kom hún með hann í leiðinn heim til sín. Ekki gott að vera bíllaus. Maður er gjörsamlega háður þessu dóti. Hvort sem er bíll eða gsm. Lilja kom hér líka í dag með snúllann. Ég verð aldrei þreytt á því að horfa á drenginn. Og Didda mín. Lilja er ekki búin að fá pakkann frá þér.
Hlýtur að fara að koma. Svo er ég búin að vera gjörsamlega hoppandi hægri, vinstri út af ákveðinni aðgerð sem ég er að hugsa um að fara í. Er alveg ákveðin þessa stundina og þá næstu er ég hætt við. Ég er algjörlega andsetin af hugsunum um það hvað ég á að gera. This is for life. Eins og sakir standa er ég ekki tilbúin að útlista hér hvaða aðgerð ég er að tala um, en mátti bara til með að skrifa þetta aðeins frá mér.
I´m going crazy. Nóg um það. Vinnuhelgi framundan. Veit fátt skemmtilegra. Er reyndar í fríi á morgun og er að hugsa um að taka aðeins til hendinni hér. Er gjörsamlega að drepast úr leti þessa dagana. Nenni engu. Og svo var ég voða dugleg og setti inn myndir frá Danmerkur för okka hjóna og barna. Endilega kíkið á þær ef þið hafið áhuga á því.
Nenni ekki meir í bili, held ég fari að sofa svo ég geti vaknað með drengnum í fyrramálið.
Knús í krús............
Nenni ekki meir í bili, held ég fari að sofa svo ég geti vaknað með drengnum í fyrramálið.
Knús í krús............
fimmtudagur, september 02, 2004
Er ekki tími til komin að tengja, er ..........
Jú og það fyrir löngu síðan. Hef bara ekki haft nokkra nennu til að setjast við tölvuna nema rétt til að athuga með póst.
Eins og á öllu má sjá erum við hjónin komin frá útlandinu, og þetta var alveg hreint meiriháttar ferð. Finnst alltaf ég vera komin heim þegar ég er þarna úti. Sterkar taugar til þessa dásamlega lands. Komum um hádegisbilið og beint á hótelið með töskurnar og svo bara út að labba. Vorum sem betur fer með kort af borginni því við vorum ekki alveg í centralinu og hefðum aldrei ratað á torgið án þess. Öskrandi sól og steikjandi hiti þennann fyrsta dag okkar. Fórum og hittum Jónas vin okkar sem þarna býr og er kokkur, um kvöldið og borðuðum hjá honum. Snemma svo í bólið því mín var þá búin að vaka í rúmlega einn og hálfan sólarhring. Enda var ég varla lögst á koddann þegar ég dó og vissi ekki meir af mér fyrr en um hálf ellefu næsta morgun.
Og svo var bara labbað meir og meir og enn meira á miðvikudaginn. Keyptum okkur svona útsýnisferð með bus og lékum ekta túrista. Borðuðum á Hereford á midvikudeginum og nammi namm. Hef sjaldan fengið eins góða steik. Svo var spúsinn eitthvað farinn að kvarta undan þessu labbi mínu, sagði að ég myndi drepa sig með þessu áframhaldi. Hmm. Aldrei hægt að gera fólki til hæfis. Svo kvartar hann undan því að ég nenni ekki að labba hér heima. hehehe.... Enda lítið gaman að því að labba hring í Breiðholtinu. Miklu skemmtilegra í útlandinu, og svona þegar mar er að ferðast. Hvort sem er hér heima eða erlendis. Ég hef oft reynt að fara út að labba heiman frá mér en mér bara finnst það svo TILGANGSLAUST. Ekkert nýtt að sjá og svona. Ég er svo skrítin.
Kannski ég ætti að fá mér hund. Þá verð ég að fara út að labba með hann. Spurning.. En hvað um það. Svo komu krakkarnir á fimmtudeginum og þá byrjaði ballið fyrir alvöru. Byrjuðum á því að fara í Madam Tousod (hvernig sem það er nú skrifað). Og Lonni mín þarf náttla alltaf að láta bera á sér og steig upp á einhvern pall og med det samme byrjaði allt að væla og BLIKKA. Og vörðurinn bara hreinlega birtist þarna á ótrúlega stuttum tíma.
Svo í Tivoli. Nema það að ég hafði tekið með mér eina Tia Maria í poka og meðan við biðum eftir Lonni og Boldri sátum við úti og fengum okkur öl, og haldiði ekki að ég hafi gleymt pokanum. Það hefur vonandi verið einhver þurfandi sem fann hann. snökt. Sá pínu eftir honum.
Og í Tivoli var að sjálfsögðu gengið á línuna. Tækjalínuna. *hóst*. Ég er gjörsamlega brjáluð í Tívoli. Elska þessi tæki, gæti verið þarna í marga daga. Haga mér eins og versti unglingur. Vil fara í allt og gera allt og gambla líka. Annað en minn ekta maður. Fór ekki í eitt einasta tæki. Bakkinn var svo tekin með stæl kvöldið eftir og ekki skánaði ég þá. Varð verri ef það er hægt. Enda þegar ég vaknaði á laugardeginum kom ekki eitt einasta hljóð upp úr mínum fagra hálsi. Hef aldrei á ævi minni orðið svona algjörlega þegjandi hás. Komst líka að því að sonur minn elskulegur er forfallinn spilafíkill. Það var sko ekki fyrr en hann gat gamlað eitthvað að hann tímdi að taka upp budduna sína. Og jú, ekki má gleyma því að hann keypti turpassann sinn í Bakkann sjálfur og bauð aldraðri móður sinni líka.
Og árangurinn af þessu basli drengsins er risastór froskur, heljarinnar gulur gormur, og tveir minni bangsar. Enda þurfti að kaupa ferðatösku áður en haldið var heim. Ekki að það væri slæmt, því mig nebblega vantaði akkurat svona tösku fyrir öll kórferðalögin sem ég á eftir að fara í. Rauð voða sæt og önnur minni svona handtaska.
Svo var brunað til Billund í Legoland og haldið þar til í einn dag og vorum komin til baka um kvöldmat. Vorum með þennann rosalega flotta bílaleigubíl, var eiginlega að hugsa um að setja hann í nýju töskuna og taka með heim. Toyoyta Avensis flunkunýr. Sem sagt góð ferð og vonandi kemst ég aftur sem fyrst til þessa flata dásamlega lands þar sem allir hjóla. Var að vinna í gær og dag og átti svo að eiga langt helgarfrí. En nei nú er mín gráðug og er búin að taka aukavaktir bæði föstu og laugardags nætur. Ekki veitir af. Það kemur VISA um næstu mánaðarmót. Hjúkk og sviti. En den tid den sort. Fór á kóræfingu í gær og mikið var gaman að hitta þessar kellur allar aftur. Var svo sannarlega komin í söngþörf. Og Sillan mín elskuleg ætlar að gefa þessu sjéns aftur og mikið er ég glöð yfir því. Eigum að syngja fyrir Svía konung á þriðjudagskvöldið og æfing á mánudaginn. Mín auddað svo heppin að vera á kvöldvakt báða daganna. Verður að koma í ljós hvort mér tekst að fá mig lausa.
Lilja kom hér á þriðjudaginn og aftur í dag með litla kútinn. Jís hvað hann er yndislegur. Hann horfir á mann með þessum stóru augum og bræðir mann alveg. Fæ sko sting í hjartað að horfa á hann. Og nú verð ég sko að koma mér í prjóna gírinn aftur. Er rúmlega hálfnuð svo þetta er nú allt að koma.
Örn Aron er líka alveg dolfallinn yfir þessum dreng og er að springa úr monnti. Reddaði sér sjálfur og prentaði út myndir af honum til að taka með í skóla og sýna. Alveg vitlaus í að halda á honum og Lilja vill að hann sitji með hann, sé ekki að labba um. Og svo segir hún þessi elska í dag við mig. Nú skil ég þig mamma, ég var ellefu þegar Örn fæddist og mátti ekki labba með hann fyrst um sinn. Svona kemur alltaf að því að blessuð börnin fatta það að maður er ekki bara að vera leiðinlegur. Held ég láti þetta duga í bili.
Knús í krús..........
Svo var brunað til Billund í Legoland og haldið þar til í einn dag og vorum komin til baka um kvöldmat. Vorum með þennann rosalega flotta bílaleigubíl, var eiginlega að hugsa um að setja hann í nýju töskuna og taka með heim. Toyoyta Avensis flunkunýr. Sem sagt góð ferð og vonandi kemst ég aftur sem fyrst til þessa flata dásamlega lands þar sem allir hjóla. Var að vinna í gær og dag og átti svo að eiga langt helgarfrí. En nei nú er mín gráðug og er búin að taka aukavaktir bæði föstu og laugardags nætur. Ekki veitir af. Það kemur VISA um næstu mánaðarmót. Hjúkk og sviti. En den tid den sort. Fór á kóræfingu í gær og mikið var gaman að hitta þessar kellur allar aftur. Var svo sannarlega komin í söngþörf. Og Sillan mín elskuleg ætlar að gefa þessu sjéns aftur og mikið er ég glöð yfir því. Eigum að syngja fyrir Svía konung á þriðjudagskvöldið og æfing á mánudaginn. Mín auddað svo heppin að vera á kvöldvakt báða daganna. Verður að koma í ljós hvort mér tekst að fá mig lausa.
Knús í krús..........
þriðjudagur, ágúst 24, 2004
Og nu er min mann skideful.....
Nei, nei, bara jok. Rett ad lata vita af mer. Erum buin ad labba Kaupmannahøfn enda a milli. Drekka ansi mikinn fad øl. Mmmm... Misstum reyndar af morgunverdi hotelsins i morgun. Diddi var svo snidugur ad stilla klukkuna i simanum og gleymdi ad færa klukkuna fram um tvo tima. Hann er svo sneddi. Buin ad hitta Jonas lika og hann baud okkur i mat annad kvold heim til sin. Ekki slæmt tad. Hann er nu ekki meistarkokkur fyrir ekki neitt. Bordudum i gær a stadnum sem hann vinnur a. Hansens gamle family have. Hrikalega godur matur. Er eiginlega farin ad ottast tad hvernig vid hjonin munum lita ut er vid lendum a okkar ylhyra aftur. Og svo koma bornin min stor og sma a fimmtudaginn og ta byrjar ballid fyrst af alvoru. Ekkert afslappesli ta. Tivoli, Legoland, Bakkinn og dyragardurinn.
En ekki meir ad sinni. Ordin frekar treytt a ad vanda mig vid tessi skrif, tvi her eru engi islenskir stafi, svo eg geri litid annad en ad leidretta.
Knus i krus..............
En ekki meir ad sinni. Ordin frekar treytt a ad vanda mig vid tessi skrif, tvi her eru engi islenskir stafi, svo eg geri litid annad en ad leidretta.
Knus i krus..............
mánudagur, ágúst 23, 2004
Denmark nu kommer jeg........
Ja, nu skal vi resje til Denmark i morgen tidlig. Jeg skulle bare lige sige farvel og kan i har det godt her oppe pa Island til jeg kommer igen. Ok, nóg af þessari dönsku. Bara að kveðja, aldrei að vita nema mar komist í tölvu í útlandinu og færi inn nokkrar fréttir. Fórum að sjálfsögðu að kveðja litla ömmukútinn og ég held að ég verði bara alltaf meira ástfangin af þessari elsku. Hann er voða góður og duglegur að taka brjóstið hjá mömmunni sinni.
Bæ,bæ
knús í krús................
Bæ,bæ
knús í krús................
sunnudagur, ágúst 22, 2004
Spennufall
Já ég held að ég hljóti að hafa verið í einhverskonar spennufalli í dag. Var svona fljótandi, syndandi og hafði ekki dug í nokkurn hlut. Pabbi og mamma komu hér með þessar líka dásamlegu rósir í tilefni afmælis okkar hjóna. Verst að við fáum ekki notið þeirra nógu lengi, því nú tekur Danmörk við okkur um hádegi á mánudag.
Skruppum í dag þegar spúsinn var búinn að vinna í Smáralindina að kaupa í skólann fyrir drenginn og í þá verslun er Íslendingum þykir hvað skemmtilegast að versla í, og versluðum þar nokkra boli á undirritaða. Bóndinn sagðist ekki fara með mér í utanlandsferð og mín gangandi í gömlum vinnubolum merktum Select. Skil bara ekkert í honum. Þessir líka fínu bolir.
Og aldrei slíku vant fann ég bara þrjú stykki sem hentuðu mér. Veit ekkert leiðinlegra en að kaupa mér föt. Hafið þið heyrt þennann áður? Örugglega ekki. Svo þegar við löbbuðum framhjá ungbarnadeildinni hreinlega skransaði ég. Og ég sem ætlaði sko ekki að kaupa neitt fatalegt á drenginn, hann á svo mikið. Endaði samt með því að ég keypti einn náttgalla og svo að sjálfsögðu varð Örn Aron að kaupa einn líka og fékk að velja sjálfur. Og hann var svo glaður með það, hann er hreinlega að springa úr monnti með litla gaurinn. Finnst hann SVO sætur. Svo til Dóra að sækja smá drykkjarföng fyrir Sigga og Guðný og svo til þeirra. Og það sem þau eru búin að lyfta mörgum Grettistökum í þessu húsi og það alveg ein. Tekur því ekki að nefna þetta ponsulitla sem ég hefi lagt þar að mörkum. Nóg er samt til af börnum þeirra 6 stykki og ég verð að segja það að ég bara á ekki til orð. Þau hafa nákvæmlega ekkert lagt af mörkum. Fussu svei. Sæi mig ekki í anda hanga heima og dúlla mér á meðan foreldra mínir stæðu í svona stórræðum. En, svona eru börnin í hnotskurn í dag. Hafa fengið allt upp í hendurnar og dettur sko ekki í hug að gefa eitthvað til baka.
En nóg um það. Fórum svo til Lilju og Bildurs að kíkja á prinsinn. Þau eru komin heim með hann. Ohhhh. Hann er æði. Svo sléttur og fínn. Leila(hundurinn þeirra) þarf mikið að skoða þennann nýjasta fjölskyldumeðlim. Og þegar sá stutti grætur, grætur hún með honum. Og þegar við tókum hann upp þá snusaði hún svo í kringum okkur og þurfti að þefa af honum.
En þau voru orðin ansi þreytt þessi nýbökuðu. Bildur hefur ekki sofið síðan við fórum á deildina í gær og Lilja sat í hálfgerðri þoku í sófanum. Vona svo sannarlega að sá stutti verið góður við pabba og mömmu og sofi vel í nótt. Komum svo heim að verða ellefu og minn maður datt strax í bælið og hrýtur nú eins og ég veit ekki hvað. Eins gott að hann sofi ekki Danmörk af sér. Búinn að vinna svo brjálæðislega í allt sumar. Hefur ekki átt einn frídag síðan 5 júli og vinnur svona 12 til 15 tíma á dag.
Það er annað en ég. Búin að vera meira og minna í húsmæðraorlofi í allt sumar fyrir utan nokkrar vaktir sem ég hef tekið.
Jamm hef svona frekar verið í fríi frá svona húsverkum. Enda engin ástæða til að ég sé í verkum. híhíhí.....Kallinn að vinna á morgun til sex og ég verð heima að þvo og þvo svo allt sé nú tilbúið fyrir ferðina góðu. Þarf líka að pakka fyrir Örn Aron. Vil gera það sjálf, svo það verði almennilegt. Sorry Lonni mín.
Get ekkert að þessu gert. Búin að þrífa hér allt út úr dyrum, þoli ekki að koma heim úr fríi og allt í drasli og skít.. Hate it. Eins gott að Lonni og Boldur gangi vel um hér þessa daga sem þau verða hér. Og svo koma þau út með Erni Aroni og það held ég að við mæðgur eigum eftir að skemmta okkur í Tivoli og Bakkanum. Báðar spennufíklar af verstu gerð. Svo ætlum við Boldur að fara saman og fá okkur tatto. hehehe.
Ógeðslega verðum við flott. Me and my son in law.
Held að ég láti þetta duga í bili.
Knús í krús.......................
Held að ég láti þetta duga í bili.
Knús í krús.......................
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)