laugardagur, desember 13, 2008
Kojufyllerí
Góða nótt.
mánudagur, nóvember 24, 2008
Jólin eru að koma
miðvikudagur, nóvember 05, 2008
Útskýringar geta stundum orðið soldið snúnar.
föstudagur, október 31, 2008
Whatttttttt
Good by........
fimmtudagur, október 23, 2008
Ja hér.
Adio mi amigos......
sunnudagur, október 19, 2008
The winner take's it all.
Eða þannig sko. Fór á Óþverramótið fína í dag. Og hvað haldiði. Frúin vann. Var með hæsta skor. Fékk medalíu og alles. Ásdís fékk gulllið, vann flest spil, ég sifrið með hæsta skorið og Tania, æjæjæ hún fékk skammarverðlaunin. Bronsið....
Ó, ég er svo montin. Og þarna er frúin með nýju fínu brillurnar. Lonni var ekki par ánægð með móður sína þar sem aðeins tuttugu stig skildu okkur að. Hún vildi líka fá medalíu. Jebbs. Gaman að þessu. Svo er ég bara búin að vera að tjilla hér í kvöld. Ein í kotinu með voffana. Skrapp í smá göngu um hálf ellefu með þær. Svaka dugleg. Horfði svo á Singing bee í endusýningu. Og oh my lord. Mikið rosalega sem þær fara í nervurnar á mér þessar dansandi býflugur. Alveg á mörkunum að ég geti horft á þetta. Fyrir nú utna það hvað það getur verið þreytandi að heyra sama erindið endurtekið allt upp í sex sinnum. Komið sæl og blessuð. Stóð sig samt vel snótin í kvöld. Fór heim með hálfa millu. Ekki lélegt það. Og svo hef ég líka tekið eftir því að söngvararnir í hljómsveitinni fara stundum rangt með texta. Algjört lágmark að þau fari rétt með þar sem þetta er keppni um að kunna textana. Ekki meir að sinni ætla að fara og kúra í sænginni minni.
Adios amigos
laugardagur, október 18, 2008
Útsvar
Hér erum við Spánardósin í góðum fíl með Freddy Mercury. Þurfum að hitta þennan fíl aftur, ekki spurning. Og aftur að Kle-inu. Hann er sko búin að kaupa slott og mar verður náttla að kíkja á dæmið. Fá gott kaffi og kannski Grand. Enda ekki titlaður Herra Grand fyrir ekki neitt. Kannski ég fái Grand í Te. Já þið heyrðuð rétt. Fer ekkert frekar út þá sálma hér. Gæti sært Grand frumur annarra Grand drykkjumanna. hehehehehe.... Og nú held ég að nóg sé komið af bulli hér. Nenni ekki að tjá mig um ástand þjóðar vorar. Held ég flytji bara af klakanum eða eitthvað. Kanada hljómar vel í eyru mín um þessar mundi. Kannski ég tali bara við Mars frænda í Halifax. Fýla þá borg í ræmur.
Adios 'skurnar talk to ya later....
fimmtudagur, október 16, 2008
Well,
Mætt til vinnu og engin annar hér. Stelast til að krota smá hér. Búið að vera nóg að gera. Fyrsta jólakóræfingin á laugardagsmorguninn. Ótrúlega gaman að syngja jólajóla aftur. Fór á árshátíð á laugardaginn með bóndanum og gerðist ótrúlega ljót og stakk af fljótlega eftir matinn og fór í fimmtugsafmæli hjá Bryndísi Petru. Mikið gaman þar, samt voða stillt og komin heim upp úr eitt. Sunnudagurinn var letidagur dauðans. Klæddi mig ekki einu sinni. Svo bara vinna, vinna, vinna í Öflun á þriðjudagskvöldið, kóræfing í gærkvöldi og saumó hjá Kollu í kvöld. Og Útsvar annað kvöld. Sko sem áhorfandi ekki sem svarandi. hehehehehe.... Svo bara lazy helgi framundan. Dásamlegt. Veit ekki til þess að neitt standi til. Ekki nema ég fari með voffana í myndatöku. Jájá. Mar er náttla alveg komin í hundana. Núna tek ég myndir af voffunum mínum en ekki börnunum mínum. Var að rabba við Silluna mína um daginn og að sjálfsögðu komu voffamál þar við sögu. Og hún tjáði mér að Olvier hefði ekki svo fallegt höfuðlag. Annað en Nikki sem hefði svo ofboðslega falleg höfuð, alveg eins og börnin mín. Jebb svona er þetta. En nú er kanski lag að ég fari að hætta þessu bulli og fari að vinna. Bossinn var að labba hér inn með kaffibollan í hendi. Meira síðar.
Adios.
E.s. Enda er miklu betra að blogga í þessari tölvu heldur en tölvunni minni heima....
miðvikudagur, október 15, 2008
Held ég hafi nú aldrei verið svona slæm,
Vinkonur einar fóru á bar og drukku sig fullar eins og kvenna er siður þegar þær eru ekki með karlana með sér. Þegar þær voru að labba heim þurftu þær báðar nauðsynlega að pissa. Þær voru hjá kirkjugarðinum og ákvaðu að pissa bakvið einhvern legstein þar.
Sú sem fyrst pissaði þurrkaði sér á nærbuxunum sínum og henti þeim eitthvað út í loftið að því loknu. Vinkona hennar var aftur á móti í rokdýrum nærum sem hún vildi ekki tapa, en var svo heppin að hún gat teigt sig í borða af kransi á næsta leiði og þurrkað sér á honum. Vinkonurnar gátu nú haldið ferð sini áfram og komust heim heilar á húfi.
Daginn eftir hringdi eiginmaður annarrar þeirra í hinn og sagði; “Þessum kvennakvöldum þarf að fara að ljúka. Konan mín kom nærbuxnalaus heim í nótt.”“Það er nú ekkert,” sagði hinn, “Mín kom heim með samúðarkort á milli rasskinnanna og á því stóð, Frá okkur öllum á Slökkvistöðinni, við munum aldrei gleyma þér.”
þriðjudagur, október 14, 2008
Morgunleikfimi
.
Gamla fólkið á elliheimili úti á landi var orðið afar þrúgað og meðtekið af efnahagsbölsýnissíbyljunni í fjölmiðlunum. Forstöðukonan hafði miklar áhyggjur af þessu. Í morgun var leikfimi á heimilinu. Forstöðukonan bað íþróttafræðinginn að vera nú heldur á léttu nótunum og fyrir alla muni ekki minnast á efnahagsmál eða þrengingar. Þetta væri alveg að fara með gamla fólkið. Íþróttafræðingurinn sagði það ekki nema sjálfsagt.
Svona hóf hann tímann: "Kæru vinir! Í dag byrjum við á mjög léttri æfingu. Við réttum hendur út frá hliðunum, beygjum olnbogana og bönkum flötum lófum létt á bringuna, síðan réttum við úr höndunum og kreppum snöggt hnefana og endurtökum allt aftur og aftur," og svo hrópaði hann:
"Koma svo! Banka - kreppa, banka - kreppa, banka - kreppa......!"
sunnudagur, október 12, 2008
föstudagur, október 10, 2008
fimmtudagur, október 09, 2008
Hohoho sagði jólasveinninn
*"We have George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope, and Johnny Cash."*
*And an Icelander replied:
*"We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope, and no Cash".
sunnudagur, október 05, 2008
Endalaut fikt
Adios héðan úr bloggheimum.....
föstudagur, október 03, 2008
sunnudagur, september 28, 2008
If you give her sperm, she'll give you a baby.
If you give her a house, she'll give you a home .
If you give her groceries, she'll give you a meal.
If you give her a smile, she'll give you her heart.
She multiplies and enlarges what is given to her.
So - if you give her any crap, you will receive a ton of shit."
Aldeilis
Ég reyndi. Ég get svo svarið það. Setti peninginn í raufina og ljósið í bekknum kveiknaði. Ég lagðist á bekkinn. Í hálfa mínútu. Stökk upp aftur, hljóp út og sagði mömmu að nota peninginn minn. Ég bara get ekki fyrir mitt litla líf legið í svona bekk. Er bara að kafna úr innilokunarkend. Jæja, en hvað um það. Við fengum freyðivín og jarðaber. Og höfðum það bara ógisslega kósý.
Hér er mamma á leið út úr baðhúsinu. Hver getur trúað því að þessi kona sé sjötug. Löbbuðum svo upp á Ruby thusday og fengum okkur hvítvínsglas og svo kom Bói bró að sækja okkur. Og við vorum búnar að gefa það svona í skin við mömmu að við værum að fara út að borða bara þrjár saman, og við vorum líka búnar að segja henni að við ætluðum að hafa kaffi fyrir hana á morgun í salnum inni á Sléttuvegi. Nema þegar Bói kemur segir hann að Diddi (sem by the way átti að vera á kvöldvakt) hefði hringt og sagt að við yrðum að fara og ná í lykilinn af salnum því að húsvörðurinn væri að fara út úr bænum og gæti ekki látið okkur hafa hann í fyrramálið. Þannig að við náttla brendum upp á Sléttuveg. Shettans mar. Þegar við komum inn á bílaplanið stendur áðurnefndur Diddi á miðju planinu og blaðrar í símann. Mamma tekur strax eftir honum og segir, hvað er Diddi þarna í jakkafötum ??. Við Hlín supum hveljur í aftursætinu. Rukum út úr bílnum og Bói segist vilja sjá salinn. Í því sem ég stíg út úr bílnum sé ég allar kórkonurnar mína koma. Og bara fæ netta. Sussa á þær og þær fatta strax hvað er í gangi, bakka hljóðlega fyrir hornið. Hlín drífur mömmu inn og við hálf hentum henni inn í salinn áður en hún gat velt sér upp úr því hvað Diddi væri að gera þarna. Og oh my god. Þar voru allir gestirnir og það sem mín var hissa. Gjörsamlega missti sig. Grenjaði úr sér augun. Skömmu síðar gengu kórkonurnar mínar inn og við Lonni blönduðumst í hópinn og sungum við fjögur lög. Og mamma grét. Salurinn allur skreyttur með borðdúkum skreyttum danska fánanum. Danskir fánar á borðum og Jónas vinur okkar sem lærði til kokks í Danaveldi og eldaði ofaní danina í 20 ár, eldaði þetta líka fullkomna danska hlaðborð.
Og hér er kokkurinn sjálfur. Pabbi hélt ræðu og mamma grét, Bói hélt ræðu og mamma grét, Tóta spilaði á þverflautuna og mamma grét, Hlíln las upp danskt ljóð og mamma grét, Kára vinkona mömmu hélt ræðu og mamma grét. Bergþór Pálsson kom og söng þrú lög og mamma grét.
Algjörlega fullkomin dagur. Hefði ekki getað verið betri. Yndislegt að hitta frænkur og frændur sem maður sér svo alltof sjaldan. Svo hringdi mamma í okkur eftir að við vorum komin og heim, þurfti að þakka aðeins meira fyrir sig og sagðist bara vera búin að VÖKVA músum í allan dag. Já, það eru sko ekki allir sem vökva músum en kannski einverjir sem vatna músum. hehehehehe.... Ekki meir um það. Þarf að fara að koma mér til kojs. Bói og family ætla að kíkja við á morgum áður en þau halda norður á ný. Tóta sko nebbla verður að sjá Opal í beinni.
God natt og ka i har det gott.
sunnudagur, september 21, 2008
Get svo svarið það
Sjáiði bara litlu sætu nöfnuna mína. Algjört rassgat. Og svo má ég til með að deila öðru hér með ykkur. Sjáiði bara hvað ég fékk í póstinum.
Þetta er sem sagt, Alla amma standandi aftast. Svo mamma og við systkynin. Við erum sko að tala um það að það eru engar myndir til af okkur þegar við vorum svona lítil, svo þetta er algjör fjársjóður að fá svona. Ætli ég sé ekki svona 3ja og Bói um 1 árs. Dásamlegt alveg. En allavega þá er ég búin að gleypa þessar 3 rándýru töflur og eru þær hverrar krónu virði. Er miklu betri og ætla bara að skella mér til vinnu í fyrró. Hins vegar liggur spúsinn hér dauðslappur inni í lata strák hóstar og hóstar. Ja sko, eitthvað þurfti kvefið að fara frá mér. Vona bara að ég hafi ekki smitað Þóurnni sem var hér alla helgina. Hún er nú alveg miljón þessi unga snót. Í gær vildi hún fá að horfa á Mikka. Svo ég segi við hana að fara og tala við afa sem var í tv herb. Og þá segir hún. Hann nennir ekki að hlusta á mig, koddu með mér. Hahahahahaha.... Hún var sko ekki einu sinni búin að reyna að tala við hann. Svo varð hún eitthvað grumpí á einum tímapunkti í gær og sagði þá ef maður yrti á hana. Ekki tala við mig núna. Algjör hershöfðingi. Veit ekki hvaðan hún hefur þetta barnið... En nú held ég að þetta sé orðið gott á einni helgi. Heyrumst síðar. Alltílagi að commenta svona öðruhverju svo ég viti að þið vitið að ég er flutt enn eina ferðina.
Adios
Klukkitíklukk
Ráðskona í sveit, sumarið sem ég varð 14 ára. Passa 3 börn föðurbróður míns austur í Breiðdal. Sumarið sem ég lærði að elda, þvo þvott og taka til.
Unglingavinnan. Og það var sumarið sem ég kynntist Ellý og hún kenndi mér að spila á gítar.
Söluturninn við Breiðholtskjör. Sem þá var gamaldags lúgusjoppa. Þar kynntist ég Hrönn, Villu og Gullu. Er með Hrönn í saumaklúbb í dag.
Skálatúnsheimilið. Þar var ég í sex ár og þar kynntist ég Guðnýju og Olgu. Og þær eru miklar vinkonur mínar í dag.
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
Öskubuska
Gone whit the wind
Rauða akurliljan
Stella í orlofi
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Reykjavík 109-107-110-111
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Missing
Grey's anatomy
Ally Macbeal
So you think you can dance
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
USA
Danmörk
Ítalía
Portugal
Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan bloggsíður):
mbl.is
fasteignir.is
man ekki í augnablikinu eftir meiru
Fernt matarkyns sem ég held upp á:
kjúklingur
Kea skyr
fiskur
buffið hans Didda
Fjórar bækur/blöð sem ég les oft:
Les nú ekki sömu bækurnar oft, en les á hverju kvöldi
og svo flettir maður blöðunum
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
rúmið mitt
Einhvers staðar í sólinni
Heitum potti
Fjórir bloggarar sem ég klukka:
Lonni Björg
Ása Björg
Jóna Hlín
laugardagur, september 20, 2008
Námskeið á Háskólanum á Bifröst
MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI
Kannast einhver við þetta. Mátti til að henda þessu hér inn. Fékk þetta í maili frá ónefndri vinkonu minni. Takk baby....
föstudagur, september 19, 2008
Hóst, hóst.
Ég sendi spúsann út í búð að versla í dag. Og hann átti að kaupa flakkara, sem hann og gerði. Svo komu Kolla og Binni hér í kvöld og ömmingja Binni búin að sitja við tölvudýrið meira og minna að redda því sem hægt er að redda. Allar myndir og Itunes-ið inn á flakkarann. Svo sjáum við til hvernig dýrið verður. Finnst hún nú strax hraðari. Ekki eins löt og hún hefur verið. En nú er nóg komið af bulli. Ætla að skríða í ból og klára bókina sem ég er að lesa núna. Áður en ég dey, heitir hún og svakalega átakanleg. Samt mjög húmorísk á köflum. Svo ég bíð bara góðrar nætur.
Adios amigos.....
fimmtudagur, september 18, 2008
Jæja
Sí ja leiter geiter...
miðvikudagur, september 17, 2008
Enn þá heima
Og enn og aftur. Mia Micaels. Hún er bara ekkert venjuleg. En málið er bara það að ég er eiginlega farin að drullufíla hipp hopp líka og þá sérstaklega dansana eftir hjónakornin fögru. Þessi hér.
Jamm og jámms. En núna ætla ég að kíkja á spóluna góðu frá Lonni og gá hvað er meira gúddýs á henni. Mér dauðleiðist og finnst ekkert gaman að vera heima veik. Kóræfing í kvöld og ég má alls ekki við því að missa af henni. Eitthvert Alþingisgigg í næstu viku held ég barasta. Jájá, bara byrjað með trukki. Ekki að spyrja að því. En allavega, farin á vit sjónrænnarskemmtunar.
Adios.....
þriðjudagur, september 16, 2008
hehehehehee.
Dag nokkurn þegar maðurinn kemur heim frá vinnu sinni kemur hann að öllu gjörsamlega á hvolfi í húsinu.. |
Það er alveg
Adios.....
Loksins
að þetta var að byrja á föstudaginn og svo bara seinni part á laugardaginn. Búmm. Hiti, hósti hósti hósti hósti hósti...... Svo ég er búin að vera heima frá vinnu í dag og í gær. Er að spá í að fara í fyrramálið. Málið er bara að ég svolítið erfitt með að tala í síma. Ekki gott að fá hóstakast í miðju símtali við einhvern sem er að panta. Oh nei. En hvað um það. Best að fara að tékka á linkum og svona hér á spotinu. Þarf sjálfsagt að laga einhverja og bæta við.
Adios í bili
Brjálað Kynlíf...
Fullorðin hjón voru að halda upp á 50 ára brúðkaupsafmælið sitt á lítilli
sveitakrá nálægt heimilinu sínu.
Eiginmaðurinn hallaði sér upp að frúnni og sagði: Manstu eftir því þegar við
elskuðumst í fyrsta skipti fyrir rúmlega 50 árum ?
'Þú studdir þig upp við girðinguna og ég tók þig aftan frá.'
Já ég man þetta vel segir konan með dreymnum svip og brosir við bónda sínum.
Hvernig væri að endurtaka þetta ? Bara svona upp á gamla tímann .
Girðingin er
hérna rétt hjá ?
Ooooooohhhhh , Stebbi .... segir frúin feimin, þú littli skratti.... Mér
finnst
þetta frábær hugmynd.
Maðurinn við næsta borð heyrði á tal hjónanna og trúði varla sínum eigin
eyrum .
Hann ætlaði sko ekki að miss af þessu og elti þau út.
Gömlu hjónin lölluðu af stað með stafina sína og hölluðu sér hvort upp að
öðru
til að fá betri stuðning.
Þegar þau komu að girðingunni, lyfti sú gamla pilsinu og smeygði sér úr
naríunum
og sá gamli lét sínar buxur sömuleiðis falla. Um leið og frúin hallaði sér
upp
að girðingunni , laumaði karlinn sér inn að aftanverðu.
Skyndilega upphófust einhverjar fjörlegustu og kraftmestu samfarir sem
maðurinn
hafði nokkru sinni orðið vitni að. Gömlu hjónin hristust og skulfu og létu
eins
og brjálæðingar upp við girðinguna og héldu þannig áfram í rúmlega 40
mínútur.
Konan ákallaði guð og sá gamli hékk aftan á henni eins og það væri hans
síðasta. Skyndilega var eins og allur vindur væri úr þeim og þau féllu
niður í
grasið.
Maðurinn sem varð vitni að þessu starði næstum úr sér augun. Honum varð
hugsað
til foreldra sinna, hvort þeir stunduðu enn svona villt og galið kynlíf.
Hann átti bágt með að trúa því.
Þegar kynlífsparið hafði legið í þrjátíu mínútur í grasinu til að jafna sig ,
risu þau gömlu á lappir og komu flíkunum í réttar skorður.
Ég verð að spyrja þann gamla hvernig hann fór að þessu , sagði sá ungi með
sjálfum sér. Þau voru eins og miðnæturhraðlest! Gjörssamlega óstöðvandi.
Þegar gömlu hjónin gegnu fram hjá manninum sagði hann. Þetta var ekkert
smáræði.
Þið hljótið að hafa verið að í 40 mínútur. Hvernig fóruð þið að þessu ???
Er það
kannski leyndarmál ?
Nei sko það er ekki leyndarmál sagði gamli maðurinn og ranghvolfdi
augunum....
nema hvað að fyrir 50 árum var þetta ekki ramagnsgirðing!!
Jamm og já. Konan nýklippt og fín. Og með geðveikt flotta liti. Og það sem meira er, ég er ósemitrísk. Já, held að það heiti það. Bóndanum leist ekkert á þetta og sonurinn sagði "nei mamma". En það er allt í lagi. Mér finnst þetta hrikalega flott. Aldrei að vita nema ég skelli inn einni mynd eða svo. Bara ekki núna. Það nebblega sko lak öll fína greiðslan og blásturinn úr hárinu á mér í dag í rigningunni, á leiðinni heim úr vinnu.Mín algjörleg að fíla sig í bílnum með nýja hárið ótrúlega "heppin" eða hitt þá heldur að einhver drengstauli kyssti aftan á bílinn hjá mér. Og akkúrat á þeim tímapunkti í dag rigndi eins og hellt væri úr fötu. Hann ekki með tjónaskýrslu svo ég fer að gramsa í hanskahólfinu og að sjálfsögðu var ég með skýrslu, nema að hann færir bílinn og sest inn. Ég fer með snepilinn til hann og það er sko ekki fyrr en að það er hægt að vinda mig sem hann býður mér að setjast inn. Og öll fína greiðslan lekin í ræsið. Oh mæ oh mæ. Engin meiddist, ekkert mál, bara smá erfitt að opna og loka skottinu.
Bloggar | 28.8.2008 | 00:32 | Slóð | Athugasemdir (2)
daradandadada dararandandararandada klipping á morgun. Læt ég klippa mig stutt, læt ég klippa mig sítt, eða bara sítt að aftan. Verð ég blond, eða rauð eða brúnhærð. Fæ ég mér strípur eða ekki. Jebb, þetta eru þær spurningar sem sveima um í kollinum á mér þessa stundina. Hef ekki haft svona sítt hár í mörg herrans ár. Búin að hafa fyrir því að láta það vaxa, og nú bara veit ég ekki. Hvað segið þið. Sko sem þekkið mig, og vitið hvursu ótrúlega sæt ég er með sítt og stutt. Var að klára í gær að glápa á spólu frá Moi Lonni. Tveir þættir af Svo þú heldur að þú getir dansað. Algjörlega elska þessa þætti. Sjá alla þessa hæfileikaríku krakka. Margir hafa aldrei fengið neina leiðsögn eða kennslu í dansi. Svo kviss bamm búmm. Koma þarna og hafa einhverja fárálega fáa tíma til að læra þennan eða hinn dansstílinn. Love it. Og það er annað í þessum þáttum sem ég elska mest af öllu og það er Mia Micaels. Oh my god. Gæti nánast grenjað yfir öllum dönsunum sem hún semur fyrir krakkana. Þegar ég verð stór ætla ég að fara í danstíma hjá henni. Hef aldrei séð eins "fallega" dansa. Segi það og stend við það. Annars allt í gúddíi. Fór náttla á tónleikana með Clapton, geðveikt, saknaði samt nokkurra laga. En það er ekki allt fengið. Skipulag tónleikanna fannst mér í slakara lagi. Nenni ekkert að fara út í það hér. Svo er ég búin að fara tvisvar á Mama Mia. Jebb. Tvisvar. Einu sinni á venjulega sýningu og svo á sing along. Og mein herr. Hefði aldrei trúað því að það væri svona gaman í bíó. Dönsuðum og sungum, veifuðum höndum kveiktum á kveikjurum í rólegu lögunum og alles. Svo nú þarf ég bara að komast til Londontown og sjá Mama Mía á sviði. Einhver til í tuskið. Bara algjört must. Hundalífið gengur bara ágætlega. Opal reyndar pissar svoldið mikið inni enn. Vonandi að þessu fari að ljúka. Orðin soldið þreytt á þessu pissustandi í harðfullorðinni tíkinni. Hún er samt sætust. Og þær báðar. Bannað að gera upp á milli. Fékk bækling inn um lúguna frá Hreyfingu. Og þar er eitt námskeið sem mer líst slatta vel á. Það heitir Árangur dans. Og það er tekið fram að það sé ekki fyrir taktlausa. Og þar sem ég er náttla ótrúlega taktföst kona þá er ég bara að hugsa um að drífa mig á eitt námskeið. Það er salsa, rúmba, bodyjam og brjáluð tónlist. Hver er í stuði með. 6 vikna námskeið. Ég er farin að hljóma eins og ég geti ekki gert neitt ein. Auglýsi eftir fólki til að vera memm. Hljóma eins og vinasnauð piparjónka. Oh boy oh boy. Hver er með í klippingu á morgun. hehehehe. Nei bara grín. Ég er svo mikill grínisti. En ætla að skella mér í koj. Opal hrýtur hér hástöfum undi fótum mér. Best að koma þeim í bælið og lesa svo smá. Held að ég hafi aldrei verið eins lengi með neina bók og þá sem ég er að lesa núna. Ekki það að hún sé svona leiðinleg, nei, bara sofna eftir 2 blaðsíður. Öðruvísi mér áður brá.
Bloggar | 26.8.2008 | 22:38 | Slóð | Athugasemdir (2)
Fjörtíu og átta ára fögur frú
fagran sönginn flytur.
Voxin hún velur og er honum trú
við stjórnvölin Magga þar situr.
Ef hefð’ hún ei sönginn til að létta sér lund
lífsleiðin yrði ei greið.
Því þunglyndið hverfur á þeirri stund
þar sem raddböndin þenjast í söngvaseið.
Jaháá. Þetta beið mín í morgun þegar ég vaknaði. En ekki tók ég eftir því þá. Oh nei. En hinsvegar þá rumska ég við það undir morgun að spúsinn fer á fætur. Og ég eitthvað í svefnrofunum að hugsa hvað hann sé að gera á fætur núna. Vissi ekki til þess að hann ætti morgunvakt. En það hlyti bara að vera og að hann hefði gleymt að segja mér frá því. Annað eins getur nú gerst í dagsins amstri. En allavega. Ég skríð mygluð á fætur svona 7.20 og fer fram í eldhús. Og hvað haldiðið. Liggur ekki þá þessi líka sæti pakki á borðinu og ein rauð rós. Og lítið kort. Nú ég er hin rólegasta og passa mig á að tapa mér ekki í pakkagleðinni. Tek rósina, næ í vasa inn í stofu og set hana í vatn. Tek kortið úr umslaginu, ægilega sætt, svart flauelisglimmer með gullhjörtum og les það sem þar stendur. Og orðrétt þá stendur þar.
Það er sagt að leiðin að hjarta konunnar liggi í gegnum magann. Til hamingju með daginn. Feðgarnir.
Nú ég er bara alveg hissa á þessu. Hvað skyldi vera í pakkanum. Svo ég ríf nú utanaf ræflinum og bara jibbý. Nammi namm. Og svo skall það á mér. What!!!! Þetta er bara eins og að henda brennivínsflösku til óvirks alka sem er alveg að fara á límingunum. Sem sagt. Eitt stykki STÓR Nóa Siríus konfektkassi. Ekki það að ég var búin að fá afmælisgjöf og átti alls ekki von á þessu. Lagði kassaófetið frá mér og fór til vinnu. Svo hringir spúsinn í mig um hádegið og óskar mér til hamingju með daginn og ég þakka honum fyrir fallegt kort. Nú en ekki hitt. Og þá benti ég honum á þetta með alkann. Hann hló nú bara og sagðist skyldi fela kassann og gefa mér einn mola á dag. Jæja. Svo var afmæli hjá gullmolanum Mikael í kvöld og þegar við komum heim sest ég við eldhúsborðið og fæ mér smók og spjall. Tek upp kortið og fer að segja hvað mér finnist það flott. Og þá bara búmm. Sem sagt. Ég tók ekkert eftir þessum krúttlegu vísum í morgun. Greinilega bara verið með annað augað opið og ekki getað lesið báðum megin.
En mátti bara til með að deila þessu með ykkur. Er núna farin að lúlla í hausinn minn. Afmælið hans Mikael var voða fínt. Og ég er svo södd að það hálfa væri hellingur. Ætla svo að skunda á Laugarvatnið fagra annað kvöld með syninum og njóta sveitasælunnar hjá Olgu fram á sunnudag. Algjörlega komin tími á að skreppa aðeins í annað umhverfi. Diddinn að vinna alla helgina eins og allar helgar. Svo hann verður einn í kotinu á milli vakta.
Svo þakka ég allar góðar kveðjur í dag bæði hér á bloggi voru sem og í síma vorum.
Söngfuglinn kveður með harið á allar áttir....
Bloggar | 21.8.2008 | 23:23 | Slóð | Athugasemdir (1)
Jebb. Hlýtur að vera í lagi að slóra örlítið á afmælisdaginn sinn. Það á náttla að vera í lögum að marður eigi frí á afmælisdaginn. Er þaggi.... Annars bara allt fínt. Allir búnir að eiga afmæli í þessum mánuði og það eru sko ekkert fáir. Baldur Mikkapabbi varð 30. Oh my. Daði Olgumaður varð 50. Æjæjæjæ.... Og við fórum í partý hjá þeim skötuhjúum. Rosa flott veisla og mikið stuð. Mikið,mikið sungið. Svo átti spúsinn minn afmæli í fyrradag og er orðin 51. Æji, sárt. Svo litla ömmugullið hann Mikael Orri var sko 4ra ára í gær. Orðin svo stór og flottur gæi. Algjörlega dásamlegur. Svo er hann byrjaður á nýjum leikskóla og kippir sér sko ekkert upp við það. Tekur því með hinu mesta æðruleysi, en ekki hvað. Núh, svo á frúin sjálf afmæli í dag, og er orðin ?8 ára. Kaffi í kvöld hjá Mikeal fyrir ömmur og afa. Svo krakka ammili seinna. En nú er best að ég fari að vinna. Þið verðið bara að sorryja það að ég skuli vera svona löt að blogga þessa daganna. Nenni óttalega lítið að vera í tölvunni heima, eftir að sitja fyrir framan hana hér í vinnunni alla daga. Og svo fer tölvugeimsluherbergið alveg óstjórnlega í skapið á mér þessa daganna. Þoli það hreinlega ekki. Mig vantar eitt herbergi í viðbót. Eða geymslu. Eða bara eitthvað. Maður er í stór hættu þarna inni. Gæti fengi tjald í hausinn, eða kannski ferðatösku. Aldrei að vita. Þannig að í augnablikinu NENNI ég ekki að vera þarna inni......
Adios.....Afmælisstelpan....