laugardagur, ágúst 21, 2004

Ég er orðin amma, liggaliggalái

Já nú er hann kominn þessi elska. Og hann er algjörlega hreint yndislegur. Kom í heiminn klukkan 17.40 og mældist tæplega 14 og hálf mörk og 53.50 cm að lengd. Og OMG þvílík upplifun. Ég er búin að vera í þvílíkum tilfinningar rússíbana í dag að það hálfa væri sko hellingur. Horfa upp á "barnið" sitt "þjást" var alveg að fara með mig. Og svo kom þessi týpíski pirringur. Allt fór í taugarnar á þessari elsku. Sama hvað var. Og svo að SJÁ drenginn koma út. Ég fór sko bara að grenja. Og skalf eins og lauf í vindi. Sat svo aðeins með hann og horfði á hann og þá komu bara tár í augun á mér. Þetta er einhver yndislegasta upplifun sem ég hef átt. Og geymi hana í hjarta mér um ókomin ár. Úff mar, nú er ég orðin frekar væmin. En svona er þetta bara. I Love You BannerÉg fylltist þvílíkri ást til þessa litla kraftaverks. Ég verð næstum því klökk bara að skrifa þetta hér. Hjúkk. Annars er ég búin að setja inn helling af myndum, smá vandræði samt að barnalandi, á eftir að minnka nokkrar. Og nú bara verðið þið að fara strax og kíkja og skrifa í gestabókina. ÉG SAGÐI NÚNA STRAX. Nei, bara djók.... Skrapp aðeins til Guðnýjar og Sigga að monnta mig með eins og 4 myndir og svo til Olgu. Og nú er sko að koma tími á ból hjá mér. Orðin ansi þreytt. Sofnaði ekki fyrr en 5 í morgun og var komin á fætur hálf átta. Diddi minn átti afmæli í gær og ég á morgun svo hann kúrir þarna á milli afa og ömmu.
Knús í krús................. Heart Glasses






föstudagur, ágúst 20, 2004

Síðasta útkall

Bara að láta ykkur vita að nú er þetta allt að koma. Lilja á að mæta klukkan hálf níu í fyrramálið og verður þá sett af stað. Og mín fer að sjálfsögðu með. Hlakka alveg ótrúlega mikið til að fá að upplifa þessa reynslu. Það er sko allt annað en þegar maður liggur sjálf á bekknum.
Knús í krús.............. It's A Smiley!






fimmtudagur, ágúst 19, 2004

Hmmmmmmmmmm.

Enn bíðum við eftir prinsinum og komi hann ekki að sjálfum sér verður daman sett af stað á föstudaginn. Gaman væri samt að hann kæmi í dag(fimmtudag)því þá á Diddi afmæli eða þá bara á laugardaginn því þá á ég afmæli. Nema bara að hann kúri sér þarna á milli afa og ömmu. Jís hvað það er skrítið að segja eða skrifa svona. Afi og amma. Er ekki alveg að kaupa þetta sko. I've Got It Annars er ég komin í sumarfrí aftur og það er sko bara gott. Fór í klippingu í morgun til Ríkeyjar og núna er ég sko orðin dökkhærð. Hef aldrei verið svona dökk áður. Alltaf gaman að prufa eitthvað nýtt. Hef svo sem aldrei verið hrædd við að prufa eitthvað nýtt í hausinn á mér. Þetta vex allt aftur. Reyndar var maðurinn minn elskulegur svo "elskulegur" að panta tíma fyrir mig og hringdi bara í mig í vinnuna í gærkveldi og lét mig vita að ég ætti að mæta klukkan 10 í morgun. Og þeir sem mig þekkja vita sko alveg að ÉG hefði aldrei pantað tíma klukkan 10. Var sko að vinna til eitt í nótt og fór svo að skúra og það þurfti að taka allt heila klabbið svo ég kom ekki heim fyrr en að verða hálf fjögur, og ekki sofnuð fyrr en fimm. Enda var ég enn með stýrurnar í augunum þegar ég mætti 20 mínútum of seint til Ríkeyjar. Ætli það megi ekki segja að ég hafi hangið einhvern vegin svona í stólnum í morgun.The Dream Og svo hafa orðið smá breytingar í utanlandsferð vorri. Nú ætla Lonni og Boldur að koma út með Erni Aroni á fimmtudeginum og vera fram á sunnudag. Og það sem drengnum var létt að þurfa ekki að ferðast einn. Hann sem var búinn að bera sig svo vel og fullyrða það að hann væri ekkert smeykur við það. En þegar hann frétti að þau ætluðu með honum voru tekin nokkur spor í regndansinum í bland við stríðsdansinn. hehe.. Rave Og ef þið haldið að ég hafið skrifað nafnið hans Baldurs vitlaust þá er það ekki svo. Nú hefi ég fundið upp það snjallræði að kalla Balur Lonniar Boldur og Baldur Lilju Bildur. Híhí. Er ég ekki sniðug. Þær þurftu nú aðeins að hugsa dætur mínar afthverju mér datt þetta í hug. Nú getur fólk vitað hvorn maður á við án þess að þurfa alltaf að spyrja, Baldur hvor ? Bildur og Boldur skal það vera.

Knús í krús.................. Too Happy 1






mánudagur, ágúst 16, 2004

Shit,shit,shit,shit....

Hér var ég búin að skirfa þessi heilu ósköp og þegar ég publisa þá bara hvarf allt. En þá er bara að prufa aftur, veit nú ekki hvort ég nenni að skrifa þetta allt aftur. En sem sagt. Drengurinn er ekki kominn en. Lætur bara bíða endalaust eftir sér. Hún (Lilja) upplýsti mig nú um það að hún hefði prufað að laxera en það bara virkaði ekki betur á hana en þetta. Svo náttúran verður bara að hafa sinn gang með þetta eins og annað. Svo hún verður bara að bíða með okkur hinum.I'm WaitingSvo fór ég bara ansi víða í dag. Byrjaði á að sækja Lilju og fór svo til Guðnýjar og Sigga að tékka á málum þar. Siggi var að setja upp klóið og Guðný úti á stétt að mála gamla kommóðu. Asskoti flott hjá stelpunni. Svo fann hún einhverja gamla hillu og málaði hana líka svona rústrauða. Verst að hún er svo hrifin af þessum lit að ég óttast að hún gleymi sér og máli allt draslið. Paint Can Svo heim og þá var Diddi búinn að elda Londonlamb og brúnar potatos. Svo við snæddum og svo keyrði ég hann í vinnuna. Og þá fórum við Örn Aron að skúra. Hann er búinn að vera alveg hreint ótrúlega duglegur að hjálpa mér og það alveg óbeðinn. Finnst rosa sport að skúra með moppunni og vinda hana í þar til gerðum vagni. Ég ætti kannski að fá mér svona græju til að hann verður duglegri að taka til hendinni hér heima við.. Mopping Núh, svo heim í sturtu og svo til Olgu að taka inn þvottinn fyrir hana og brjóta saman. Og einhvers staðar á þessari leið minn datt ég inn í sjoppu og kaupa gos og sígó. Datt þá í hug að taka eina dvd mynd fyrir kvöldið. Hef ekki tekið mér mynd á leigu í 2 til 3 ár. Enda varð bóndinn aldeilis hissa þegar hann kom heim úr vinnu og sá myndina. Tók spennutrillinn Gothika, og OMG þvílík spenna. Maður var í spennu frá A-Ö. Lonni kom hér við til að fá einn óþverra, og vann mig að sjálfögðu. Ég er sko alger lúser í þessu spili. En, hún settist svo aðeins niður með mér þegar ég ætlaði að fara að horfa. Bara smá. Klukkan líka orðin rúmlega eitt. But I´m so sorry, hún stóð sko ekki upp fyrr en myndin var búin. Ég mæli sko eindregið með þessar mynd fyrir þá sem hafa gaman að svona spennu og yfirnáttúrulegum hlutum.. Screaming En nú er ég hætt að sinni.

Knús í krús.................. Horse Flottir fimleikarnir á Olympiuleikunum.









laugardagur, ágúst 14, 2004

Neibb, ekki kominn enn

Hann ætlar að láta bíða eftir sér þessi elska. Bólar ekkert á honum enn. Kíkti til Olgu í gærkvöldi. Hún er orðin ansi aum þessi elska, lenti í árekstri um daginn við eitt stykki rútu. Ekkert kom út úr skoðun upp á slysó. Vika síðan þetta gerðist. Og núna er hún svo aum í öxlinni og handleggnum að hún getur sig varla hreyft. Nennti ekki að fara að skúra í kvöld, svo nú verð ég að fara á morgun í staðinn. Jís mar. Minnið mig endilega á það að ég nenni ekki að skúra þetta stykki aftur. Það er einn staður þarna uppfrá sem er svo heitur að ég byrja að svitna um leið og ég geng inn í húsið. Og sóðaskapurinn maður minn. Ég er sko alveg búin að komast að því að vinnustaður karla er ekki til fyrirmyndar. Henda tómum sígópökkum á gólfið og svo er sturtuaðstaða þarna og þar liggja handklæði, illa þefjandi sokkar og annar fatnaður út um allt. Ojjjjjjjjjjjjjjjj. Nei takk, held ég leysi hana Öddu mína ekki aftur af með þetta. Give Me The DirtAnnars var ég bara heima í dag, Lilja Bryndís kom og við tókum einn óþverra. Og svo afrekaði ég að ryksuga hér og þvo þvott. Og svo er ég búin að prjóna bara slatta mikið. Þetta er allt að koma. Knitting Nenni ekki meir í kvöld

Knús í krús................................................. Shy






föstudagur, ágúst 13, 2004

Og við bíðum og bíðum og bíðum og bíðum!!!!!!!!!!!!

Já við bíðum og bíðum. Ekkert bólar á litla manninum. Honum þykir greinilega gott að kúra í mömmumalla. Lilja fór í mæðraskoðun í dag og ljósa sagðist nú alveg eiga von á því að hann kæmi um helgina. Hann er kominn svo neðarlega. En ef ekki á hún að koma í mónitor á mánudaginn og svo aftur skildist mér á þriðjudaginn og þá yrði hún sennilega sett af stað. Og hún var heldur betur kát þessi elska. Sér loksins fyrir endann á þessu. Talar orðið ekki um annað en hvað hana hlakkar til að fá hann í hendurnar. Æ hvað ég get skilið hana. Mom And Baby Ekki hef ég nú verið nógu dugleg við prjónana þessa síðustu og heitustu daga. Verð að fara að taka mig á. Er rúmlega hálfnuð. Og þykir það bara nokkuð gott. Er komin í helgarfrí í 3 daga og svo 2 kvöldvaktir og svo aftur komin í sumarfrí. Jeyyyyyy. Tókst loksins að setja nýjar myndir inn á barnalandið góða. Endilega kíkja á það og gösso vel að kvitta fyrir í gestabókina. Takk fyrir takk. En komin tími á ból.
Knús í krús............. Sandy Beach






laugardagur, ágúst 07, 2004

Biðin langa

Þá er hún víst formlega hafin þessi eilílfa bið eftir fæðingu barns. Ásetti dagurinn var í gær svo nú erum við formlega farin að bíða. Og það með óþreyju skal ég segja ykkur. Nú er hún dóttir mín orðin svo þreytt og lúin að það hálfa væri nóg. Sama hvernig hún liggur, þá fær hún brjóstsviða og svo getur hún bara legið á hliðinni og þá er henni svo illt í mjöðmunum þegar hún vaknar að hún kemst varla framúr bælinu. Elsku kellingin. Svona er þetta, og flestar gerum við þetta nú samt oftar en einu sinni. Já elskurnar mínar, það er nú svona að vera kona........
Annars er hér allt í hers höndum. Hún er sjaldan stök þessi bára sem allir tala um. Hér bilaði þurrkarinn minn. Slitnaði í honum reimin sem snýr tromlunni. Washing Machine Bóndinn fór og keypti nýja reim og taldi það nú lítið mál að setja hana í. En annað kom á daginn. Þá kom Halli Palli stóri bró og ætlaði að hjálpa til. En nei, þeir voru ekki alveg að fatta hvernig átti að setja hana í. Svo það var kallað á viðgerðarmann. Og oh my god. Ég grét hástöfum þegar ég borgaði kalli fyrir. Hann var í heilar 7 mínútur að þessu og ég mátt gösso vel og reiða fram 6.200 krónur. Argggggggggg. En nú vælir þurrkarinn eins og breima læða svo ég verð að fá þennann viðgerðarmann aftur. Ætla sko ekki að borga þá. Það hefur aldrei heyrst svo mikið sem stuna frá þessu tæki fyrr en nú. En svo að hinni bárunni. Eins og þið vitið þá var skipt hér um blöndunartæki í eldhúsinu fyrir sotlu síðan. Gott mál. Nema að helv..... heitavatnskraninn inní skápnum er búinn að leka síðan. Bara svona í rólegheitum og beint niður í gólf svo að við urðum ekki vör við neitt. Fyrr en að allt í einu rís parketið upp og mótmælir. Svo þá kom tryggingarmaðurinn góði og kíkti á þetta. Hann kallaði á pípara til að koma og laga kranann og svo á smiðinn til að kíkja á skemmdirnar. Ok. Píparinn kom og það tveir og skiptu um krana. Sawing Svo kom smiðurinn og BRAUT botninn í skápnum. Hann var orðin alveg morkinn. Og svo er ég svo heppinn að innréttingin er í heilu lagi en ekki svona einingar eins og er í dag, þannig að það þarf að rífa hana alla frá og smíða nýjann botn í hana. Og núna er ég með heljarinnar þurrkara í ruslaskápnum sem blæs í gólfið og þurrkar það og hávaðinn er að gera okkur öll heyrnarlaus, og þetta á að ganga til þriðjudags. En ég fékk nú samt náðarsamlegt leyfi til að slökkva á þessum fjanda á nóttinni. Ætlaði að setja inn nokkrar myndir á barnalandinu góða en það er ekki að ganga núna. Eitthvað verið að breyta og laga á því heimilinu. Fékk nefnilega myndir að pabba Baldurs og hans konu og þeirra börnum. Er svona skemmtilegra að hafa líka myndir af hans fólki þar. Vona bara að þessar breytingar gangi fljótt og vel fyrir sig. Jæja held að þetta sé komið gott í bili. Best að taka prjónana og taka eins og tvo til þrjá hringi fyrir svefnin.

Knús í krús....................Smiley Hedge







fimmtudagur, ágúst 05, 2004

Íslenskutími 1

Já það er ekki seinna að vænna að fara að læra stafsetningu. Og rétta málfræði. Sé hér á kommenti minu að ég er ekki eins góð og ég hélt. Hmmmm. En mar er aldrei of gamall til að læra. Student Head Explodes Æ,jæja. Ég skal reyna að bæta mig dúllurnar mínar. Annars er það af mér að frétta að ég fór í vinnuna í dag. Var kannski ekki eins hress og ég hélt. Þegar klukkan var að nálgast tíu var ég orðin ansi sloj, og haldið ykkur bara. Og svo þurfti ég að fara upp í BM Vallá að skúra. Tók að mér það yndislega verk að leysa Öddu vinkonu af til 16 ágúst. Ryk og sviti og enn meira ryk og sviti.. Mopping Í stjórnstöðinni var mér alveg fyrimunað að finna ljósarofann, svo ég held að þetta hafi nú verið meiri drulludreifing en þvottur á því gólfinu. Verð að muna eftir að hringja í Ingu hennar Öddu á morgun og spyrja hana hvar rofinn sé.. Svo hefði ég nú ekki haft neitt mikið á móti því að eiga baðkar þegar ég kom heim. Það er akkurat á svona stundum sem mig vantar baðkar.. Soaking En það kemur seinna. Ekkert er farið á bóla á ömmukút enn. Verst að þegar ég er á kvöldvakt vinnst enginn tími til að prjóna. Verð bara að vera dugleg um helgina. Vildi helst vera að mestu leiti búin með skírnarkjólinn áður en við förum til kóngsinns Copenhage. Íííííííííííííííííííííííííjey það er sko aldeilis farið að styttast. Ekki nema 18 dagar í brottför.
Nóg í bili.
Knús í krús...................






miðvikudagur, ágúst 04, 2004

Spræk,sprækari,sprækust

Jamm og já. Mín er öll að sprækast. Orðin bara þokkalega hress en hósta samt enn þessi lifandis ósköp. Hljóma eins og gamall traktor að fara í gang. En þetta er allt að koma. Er búin að vera nokkuð dugleg við skírnakjólinn síðustu tvo dag og er núna hálfnuð. Lilja orðin annsi óþolinmóð, hringdi í mig í kvöld og vildi fá samþykki mitt fyrir því að fara og kaupa sér laxerolíu. Ég sagðist ekki ætla að taka þá ákvörðun fyrir hana. Fyndist að hún ætti bara að láta náttúruna um þetta. FaintingÉg var frekar hneyksluð. Vinna á morgun og þið trúið því aldrei, mig hlakkar til að mæta. Er eiginlega farin að sakna þessa furðulega fólks sem ég vinn með. híhí.....

En nóg í bili, er frekar tóm. Knús í krús.......... Waitress









sunnudagur, ágúst 01, 2004

Allt að koma

Jæja nú held ég að Þetta sé allt að koma. Fór á fimmtudaginn upp á læknavakt. Þetta var bara ekki að ganga hjá mér. Það fékk ég að vita það að ég er með asma-kennda berkjubólgu.. Fékk sýklalyf við því ásamt stera innhalator. Svona púst. MedicineOg gungan ég þorði ekki að soga þetta dót að mér fyrr en í dag. Veit ekki alveg hvað það var en mér fannt þetta eitthvað mjög svo fráhrindandi, hélt að þetta væri örugglega ógeðslelga vont. En surprise, fann ekkert fyrir því nema hvað það var léttara að anda,. Sem sagt í hnotskurn, mér er að batna. Enda kominn tími til. Þetta er orðin rúm vika hjá mér. Ég er gjörsamlega að mygla hér heima. Lokuð innan þessa fjögurra veggja. I need air......... You're Full Of Hot AirEr nú að hugsa um að vera óþekk stelpa á morgun og stelast í svona klukkutíma til Guðnýjar og sjá hvað þau eru búin að vera dugleg í endurbóta vinnunni við húsið sitt nýja. Svo hringdi Örn Aron áðan voða glaður, hafði tekið þátt í minigolf móti í Hraunborgum og fékk medaliu fyrir það. Jibbý kóla.... Setti líka inn nýja bumbumyndir af Lilju Bryndísi áðan sem teknar voru í dag. Hún er orðin annsi þreyutleg þessi elska. 5 dagar í settan fæðingardag, svo er bara að bíða og sjá.

Knús í krús.............................. Chillen






laugardagur, júlí 31, 2004

ARRRRGGGGGGGGGGGGGGGGGG

ÉG ER ENNÞÁ MEÐ FLENSU. ER GJÖRSAMLEGA AÐ MYGLA HÉR HEIMA HJÁ MÉR. ALEIN Í KOTINU. ÖRN ARON FÓR MEÐ AFA OG ÖMMU UPP Í SUMÓ OG SPÚSINN AÐ VINNA. I´M ONLY THE LONLY...................

fimmtudagur, júlí 29, 2004

Ja hérna

það var aldrei að ég fengi ekki flensu. Er ennþá að drepast úr hósta og hausverk. Farin að fá það á tilfinninguna að það fari að blæða úr hálsi mér með þessu áframhaldi. Með þessa líka fínu wisky rödd og alles. Dramatic DeathOg núna er mér svo kallt að ég er hreinlega að frjósa.. Freezing My Butt Off Er með einhverja hitavellu, ohhhhhhhhh. Ef það er eitthvað sem ég þoli ekki, þá er það að vera veik.
Ekki veit ég hvað hún Jóhanna mín segir ef ég kem ekki í vinnu á föstudaginn.   Verslunarmannahelgin framundan og ekkert fólk að fá í vinnu. Shitt. Eins gott að ég hristi þetta af mér á morgun.. 
Var að setja sónarmyndir inn á síðuna hjá kútnum hennar ömmu sinnar. Edilega kíkið á þær. Ótrúlega skýrar og krúttlegar myndir. Annars er hún Lilja mín orðin annsi þreytt og vill bara að þessu fari að ljúka. Hún var í skoðun í dag og allt í góðu og ljósa sagðist eiga bágt með að trúa því að hún færi fram yfir tímann. Svo mín var voða glöð með það. Balloon Heart Ég er nú líka orðin annsi mikið spennt. Verst að ég er ekki búin að vera nógu dugleg að prjóna. Hef ekkert í mér þessa dagana að gera nokkurn skapaðan hlut. Verð að fara að taka mig á í þessum málum. Gengur náttla ekki að skíra drenginn í hálfum kjól....

Get ekki meir að sinni
knús í krús.......................... Sleeping 





miðvikudagur, júlí 28, 2004

Enn í flensu........................

Shitt,shitt,shitt.... og hafiði það. Er enn að drepast í flensudruslu, síðan á fimmtudaginn.  Sick In Bed  Fór nú samt á Gospelmótið og það var algjört æði. Spurning hvort maður verði bara ekki fastagestur þarna.  En frekar var nú úthaldið lítið hjá mér. Meikaði ekki að standa meðan verið var að æfa, svo ég bara sat og sat.. Tók svo ekki þátt í tónleikunum sem voru svo í lokinn. Heldur sat út í sal og hóstaði og hóstaði og hlustaði og hlustaði. Og VÁÁ.  Það sem hægt er að kenna á einni helgi. Ótrúlegt.  Við Rannveig sem er með mér í rödd í kórnum fórum saman og urðum aldeilis hissa þegar við hittum svo þrjár aðrar úr kórnum. Mikil gleði það.   High Five Kom  svo heim um miðnættið á sunnudagskvöldið og skreið með það sama í ból og var að mestu í bóli allann mánudaginn og lungað úr deginum í dag. Búin að éta heilann stauk að Treo og heilt glas af norskum brjóstdropum og sjúga heilann innhalator í mitt nef.  Pill Bottle  Please let me die, hausinn er að springa og rifbein orðin annsi hreint aum og svo hef ég það á tillfinningunni að hálsinn sé rifinn að innann. Dramatic Death Held að þetta sé eitthvað að ganga. Lonni mín er heima og er í sömu stöðu og ég.  Annars keypti ég mér tvöfaldann geisladisk þarna fyrir austan með Oslo Gospel Choir. Og hann er algjört æði. Ótrúlega flott lög á honum og meðal annars nokkur sem við Systur höfum sungið.   Music  Aðeins búin að taka hann út í heddinu og fékk nettar strumpabólur.
Hér er verið að skipta um þak á blokkinni og þvílíkur djö....... hávaði.  Hamrað og barið frá klukkan átta á morgnanna. Og minns með þennann líka fína hausverk. Er orðin annsi þreytt á þessu.   Lumpy Annars sýnist mér að einhver blogglægð sé í gangi. Allir frekar latir við að tjá sig hér á bloggsíðum dauðanns. Og ekki er ég duglegust, hef akkurat enga nennu til að sitja við tölvuna þessa daganna. Og þá er sko eitthvað mikið að minni. Skildi dr. Saxi vita af þessu......

Nóg í bili og knús í krús.................... Sicky