sunnudagur, júní 27, 2004

VONDAR MÖMMUR !


Var mamma þín vond ! Mín var það

Við áttum verstu mömmu í heiminum !

Þegar aðrir krakkar borðuðu nammi í morgunmat fengum við hafragraut.

Þegar aðrir krakkar fengu pepsí og súkkulaði fyrir hádegismat fengum við
samlokur.

Og menn geta bara rétt ímyndað sér hvað hún gaf okkur í kvöldmat,
allskonar MAT.

Mamma vildi alltaf vita hvar við vorum, ALLTAF, það hefði mátt halda að við
værum í fangelsi. Hún vildi vita hverjir voru vinir okkar og hvað við vorum
að gera með þeim.

Hún krafðist þess að ef við segðumst ætla að fara eitthvert í klukkutíma þá
væri það aldrei meira en klukkutími.

Þegar það var FRÍ í skólanum þurftum við að vinna. Við þurftum að þvo
diskana, búa um rúmin, læra að elda, þvo þvottinn og annast önnur leiðinleg
störf. Við héldum að hún lægi vakandi á nóttunni bara til að pæla út hvað
hún ætti að láta okkur gera daginn eftir

Hún lét okkur alltaf segja sannleikann, allann sannleikann og ekkert nema
sannleikann.

Þegar við vorum unglinga, gat hún lesið hugsanir okkar.

Þá var lífið ERFITT !

Þegar allir fengu að fara á djammið og skemmta sér 12 eða 13 ára, fengum
við ekki að gera neitt fyrr en við vorum 16. ára.

Mömmu vegna misstum við af fjölda mörgu og miklu sem aðrir krakkar gerðu.

Ekkert ekkar hefur verið tekin fyrir að stela úr búðum, eyðileggja fyrir
öðru fólki eða verið tekin fyrir nokkurt afbrot af neinu tagi. ALLT henni
að kenna.

Við urðum aldrei full, kunnum ekki að reykja, fengum ekki að vera úti allar
nætur og misstum því af að gera svo fjöldamargt sem unglingar annars fá að
gera.

Á sunnudögum þurftum við að fara í kirkju, og við misstum aldrei af messu.

Núna erum við flutt að heiman.

Guð-hrædd, menntuð og gott fólk.

Við gerum okkar besta að vera vondir foreldrar eins og mamma okkar var.

Ég held að það sé það sem er að í heiminum í dag.

Það er bara ekki nóg af vondum mömmum lengur.

Engin ummæli: