Koma svo..... Harpa skarpa, Óföf kláraðu mig alveg og taka mömmsuna sína með. Inga Öddudóttla og taka mömmsuna sína með. Spánardósin líka. Koma svo. Kallinn verður settur í eldhúsið með svuntu og hatt, mun hita ekta súkkulaði með rjóma og bera fram með því smákökur.Og Ólöf, þú getur sko alveg líka fengi KAFFI. Þú veist úr nýju fínu vélinni minni.
laugardagur, nóvember 24, 2007
Andvaka dauðans....
Koma svo..... Harpa skarpa, Óföf kláraðu mig alveg og taka mömmsuna sína með. Inga Öddudóttla og taka mömmsuna sína með. Spánardósin líka. Koma svo. Kallinn verður settur í eldhúsið með svuntu og hatt, mun hita ekta súkkulaði með rjóma og bera fram með því smákökur.Og Ólöf, þú getur sko alveg líka fengi KAFFI. Þú veist úr nýju fínu vélinni minni.
miðvikudagur, nóvember 21, 2007
KALORÍUREGLUR FYRIR JÓLIN
Maturinn sem þú borðar þegar enginn sér til hefur engar kaloríur
Matur sem er neytt af læknisfræðilegum ástæðum (t.d. jólaglögg, heitt súkkulaði, rauðvín o.s.frv.) inniheldur aldrei kaloríur
Því meira sem þú fitar þá sem þú umgengst daglega því grennri sýnist þú
Matur (t.d. poppkorn, kartöfluflögur,hnetur, gos, súkkulaði og brjóstsykur) sem er borðaður í kvikmyndahúsi eða þegar horft er á myndband er kaloríulaus vegna þess að hann er hluti af skemmtuninni.
Kökusneiðar og smákökur innihalda ekki kaloríur þar sem þær molna úr þegar bitið er í þær.
Allt sem er sleikt af sleikjum, sleifum, og innan úr skálum eða sem ratar upp í þig á meðan þú eldar matinn inniheldur ekki kaloríur vegna þess að þetta er liður í matseldinni.
Matur sem hefur samskonar lit hefur sama kaloríufjölda (t.d. tómatar = jarðaberjasulta, næpur = hvítt súkkulaði)
Matur sem er frosinn inniheldur ekki kaloríur því kaloríur eru hitaeiningar
HENGIST Á ÍSSKÁPINN
þriðjudagur, nóvember 20, 2007
Ekki svo mikið að frétta
En nú er nóg komið af engu. Eins og ég sagði í upphafi. Ekkert að frétta.
Yfir og út krúsarknús.............
sunnudagur, nóvember 18, 2007
Halelujah.....
Held bara að ég hafi aldrei séð gamla svona kjaftstopp þegar hann losnaði við augnumbúðirnar. Algjörlega dásamlegt. Yndislegt kvöld í alla staði. Lilja Bryndís og Gyrðir voru með smá tölu.
Er hann ekki smart í skotabuxunum. Ég átti nú svona pils þegar ég var lítil stúlka....
Nokkrir vinir pabba einnig. Hundur í óskilum kom og komst held ég bara til skila. Þessir menn eru algjörir snillingar. Held barasta að við ættum að senda þá í Úrvisjón.... Árni Ísleifs kom með bandið og slógu þeir í gegn.

Lilja mágkona, ég og sonurinn.... Myndarlegt fólk ekki satt..
Að sjálfsögðu tóku þau smá swing við undirleik Árna Ísleifs og co......
Pabbi söng All of me. En ekki hvað. Jebb. Frábær dagur og kvöld í alla staði. Og nú er ég farin að lúlla. Ætla sko að lúlla til hádegis og ekki minna en það.....Yfir og út krúsarknús.............
Es. Dúndra svo inn myndum á flickrið við tækifæri.....
fimmtudagur, nóvember 15, 2007
Vonbrigði
Hann á afmæli í dag.
Hann á afmæli í dag.
Hann á afmæl´hann pabbi.
Hann á afmlæli í dag.
Til hamingju með það elsku pabbi.....
Hann ber nú aldurinn skratti vel kallinn. Lítur úr fyrir að vera ekki deginum eldri en sextugur. Verð nú að segja það. Vonandi að ég verði svona hress þegar ég kemst á þeirra aldur. Það má sko þakka fyrir það. Annars er ég að hugsa um að fara í náttfötin góðu. Henda mér í lata strák og láta hann gæli við mig.
Yfir og út krúsarknús.........
miðvikudagur, nóvember 14, 2007
Ok, það er runnið af mér.
Yfir og út krúsarknús..........
laugardagur, nóvember 10, 2007
fimmtudagur, nóvember 08, 2007
miðvikudagur, nóvember 07, 2007
Jellú......
Yfir og út krúsarknús.................
sunnudagur, nóvember 04, 2007
Tónleikahelgin búin.

Silla; Ömurlega leiðinlegt.

Stína stuð.:.. obboslega fallegir tónar. en rosalega þungt.

Sigrún.... Algjörlega æðislegt. Grenjaði út úr mér augun.

Rannvegi.... Frábært. Ydislegt......
Mamma. Alveg yndislegt. Átti sko bara ekki til orð til að lýsa þessu....
Rannveigar mömmu fannst yndislegt. Hitti ekki Ingibjörgu. Hitti hanan síðar. Sillu fannst mamma hins vegar með frábært hár. Fóum á eftir á Thorvaldssens bar og borðuðum saman. Mæli EKKI með þeim stað til að borða á . Pantaði mér kjúlla jungle kurry. Og ég get svarið það að ég fékk þrjá kjúlla bita. Hitt var bara hrísgrjón. Og fyrir þetta mátti ég reyða fram 2000 þúsund kall. Ekki meir í kvöld....
Yfir og út krúsarknús...............
laugardagur, nóvember 03, 2007
Góður.........
fimmtudagur, nóvember 01, 2007
Smá þjófnaður í gangi.
miðvikudagur, október 31, 2007
Jæja gullin mín


Á ég ekki yndkislegustu barnabörn ever. Þau eru svo mikil krútt að ég gæti étið þau. Svo gaman hjá afa og ömmu. Nýbúin að borða íspinna, en ekki hvað. Fer svo með Yoko í andlitssnyrtingu á morgun. Ég get svo svarið það að hún fer oftar í klippingu en ég. Hmmmm. Er ekki eitthvað öfugsnúið við þá mynd. Hmmm.

Annars er ég að fara til Ríkeyjar á föstudaginn. Aldeilis komin tími til. Hef ekki farið síðan einhverntíman í ágúst. Allt of langt síðan. Og augabrúnirnar. Maður minn. Sú fær aldeilis að taka til í þeim garði. Þarf orðið að greiða frá. Sjæsen. En nú ætla ég í ból bjarnar enn eina ferðina. Fór allt of seint að sofa í gær, þannig að mín er bara búin að vera á geyspinu í dag.
Yfir og út krúsarknús.......................
föstudagur, október 26, 2007
Rottuskjól
Spúsinn: Það er mús hérna.
Ég.........: NEI.
Spúsinn: Jú, ef ekki bara rotta.
Ég..........: Þú lýgur því. Hvar sástu hana.
Spúsinn: Nú hérna.
Ég........: Hérna hvar. (orðin frekar hávær og taugatrekkt.)
Spúsinn: Sá hana hlaupa inn í tölvuherbergi.
Ég.........: (Farin að æpa) hvernig komst hún inn. Ég er flutt út.
Spúsinn: Sennilega inn um þvottaherbergisgluggan.
Ég.........: Og hvar er hún núna.
Spúsinn: Inni í tölvuherbergi.
Ég.......: Lokaðir þú ekki hurðinni. (komin með skjálfta og svitna í gríð og erg.)
Spúsinn: Auðvitað hvað heldurðu að ég sé.
Ég........: (þurka svitann sem lekur niður í augun á mér) Þú verður að ná henni.
Spúsinn: Já að sjálfsögðu.
Áttum svo ekki lengri samræður að þessu sinni. Hann kemur hins vegar í hádeginu til mín til að skipta um bíl við mig og segist ætla að kaupa hangikjöt í rottugildruna. Jamm flott skal það vera fyrir kvikindið..... Svo kem ég heim úr vinnu og tipla hér á tánum. Lokað inn i tölvuherbergi. Dreif mig í sturtu og kjól .
Og hvað svo. Ætlar engin að kaupa miða á tónleikana hjá mér. Hvurslags stuðningur er þetta eiginlega. Koma svo. Þið getið sent mér mail á grana@mmedia.is
Gott í bili. Yfir og út krúsarknús....


