miðvikudagur, október 24, 2007

Smá auglýsing hér.

Kvennakórinn Vox feminae heldur tónleika í Háteigskirkju laugardaginn 3. nóvember og sunnudaginn 4. nóvember og hefjast þeir kl. 17 báða dagana.

Á tónleikunum sem bera yfirskriftina Mater Dei, mun kórinn m.a. frumflytja nýtt verk, Stabat Mater, sem tónskáldið John A. Speight hefur samið sérstaklega fyrir Margréti J. Pálmadóttur og Vox feminae. Verkið byggir á hinu sígilda harmljóði, Stabat Mater Dolorosa, eftir ítalska ljóðskáldið Jacopo de Benedetti og fjallar um hinn djúpa skerandi harm móður sem stendur við kross sonar síns og fylgist með dauðastríði hans án þess að geta nokkuð að gert.

Stóð við krossinn mærin mæra,

Mændi´á soninn hjartakæra,-

Grátin sá, hvar Guðs son hékk.

Sorgin önd og sálu marði,

Svo að brjóstið treginn harði

Eins og sverð í gegnum gekk.

(ísl.þýðing Matthías Jochumson)

Verkið er skrifað fyrir kvennakór, mezzósópran, enskt horn (Cor Anglais) og strengjakvintett og tekur um 40 mínútur í flutningi.

Flytjendur á tónleikunum auk Vox feminae eru Sigríður Aðalsteinsdóttir, mezzósópran, Daði Kolbeinsson, enskt horn, Sif Tulinius, 1. fiðla og konsertmeistari, Pálína Árnadóttir, 2. fiðla, Svava Bernharðsdóttir, víóla, Sigurgeir Agnarsson, selló, Hávarður Tryggvason, bassi og Antonía Hevesi, orgel. Stjórnandi tónleikanna er Margrét J. Pálmadóttir en frumflutningi verksins Stabat Mater mun John A. Speight stjórna.

Tónleikarnir eru þeir fyrstu í röðinni af veglegri og glæsilegri dagskrá sem kórinn mun standa fyrir á afmælisári en í haust hóf kórinn sitt fimmtánda starfsár.

Miðaverð er kr. 2.500.-


Jæja gott fólk. Mæli með því að þið komið á þessa tónleika. Þeir eru sko bara flottastir.... Hafið bara samband við mig og ég mun með gleði selja ykkur miða....


Engin ummæli: