laugardagur, janúar 19, 2008

Held ég bloggi smá, held ég bloggi smá.

Og ekki mikið meir´en það. Skil bara ekkert í þessari endemisleti í mér þessa daganna. Finnst samt alveg sjálfsagt að ALLIR aðrir nenni að blogga og stend mig að því að verða hálf pirruð þegar ég sé sömu fyrirsögnina dag eftir dag eftir dag og dag eftir dag. Hmmm Kannast einhver við það. Lásinn er inn út, inn inn út. Blátt reiðhjól. Eða þannig sko. Svo nú er bara að hjóla í það. Kórinn byrjaður á fullu og mikið og margt framundan. Mikið gaman. En mikið verður samt gaman þegar þetta blessaða afmælisár er liðið. Og kórstarfið verður aftur á venjulegu róli. Endalaust af aukatónleikum og sona. En þetta er samt gaman. Partý annað kvöld hjá öðrum alt. Þetta árlega jú nó. Hlakka mikið til. Var alveg hryllilega gaman í fyrra. Erum svo að fara að syngja á þorrablóti alþingismanna og sendiherra næsta föstudag, á bóndadaginn sjálfan. Þá ætlaði reyndar 2 alt að vera með þorrablót í sönghúsi voru og bjóða Gospelsystrum. Og hafa þetta á þjóðlegunótunum. Mæta í sauðskinnsskóm og gæru. En við bara seinkuðum því og verðum með Góugleði seinnipart febrúar. Famous 11 Spurnig í hverju mar mætir í soliðis partey. Þannig að annað kvöld verður kanski einhver brainstormingur í gangi. Finna upp einhver skemmtiatriði og sona. Hmmmm. Einhverjar hugmyndir. Ha.


2 alt rúlar yeh
Custom Smiley

Að öðru. Er frekar fúl út í mína annars ágætis vinnu. Þannig er að fyrir ári síðan var farið að safna fyrir utanlandsferð. Mín skráði sig að sjálfsögðu og svona. Og gleymdi því svo pronto. Svo fyrir hálfum mánuði kemur Ingó sá sem er hausinn í þessu og fer að tala um þessa ferð. Sem ég var búin að gleyma. Nú á að fara út fyrstu eða aðra helgina í febrúar. Og það sem meira er, þetta er óvissuferð.
Map Mín verður voða kát og spyr hvað þurfi að borga í ferðina. ( er náttla búin að borga mánaðarlega í eitt ár.) Svona 15 þúsund kall segir kappinn. Jihýý... Ég fer sko með. Airplane Algjörlega tilbúnin í ferðalag, Iceland Svo á föstudag í síðustu viku kemur mail frá téðum Ingó. Með exel skjali um hverjir fara og hvað hver á að borga. Mín opnar skjalið hinn spenntasta og búmmmmmm....... Alltíeinu þarf að borga 42 þúsund. Ég er ekki að fara með. Sendi drengstaulanum mail þess eðlis og minnstis á þessa dæmalausu hækkun. Hef hvorki séð né heyrt í drengnum síðan. Fyndist nú alltílæ að senda manni svar og skýringar á þessari hækkun. Og því meir sem ég hugsa um þetta þá verð ég bara fúlli og fúlli. Finnst algjörlega ótækt að að vera með óvissuferð og það sitja ekki allir við sama borð. Bara sorry. Á ekki penge fyrir þessu núna. Þetta er ekki minna en 100 þúsund kall á einni helgi. Shitt og þau eru að fara fyrstu helgina í febrúar. Nú er ég orðin pirruð aftur svo nú er ég bara hætt þessu bulli.


Yfir og út krúsarknús...........Spray I Love You

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já það er stndum frekar pirrandi hvað allt kostar peninga, var á kóræfingu í gær og þegar magga var búin að fara yfir þau atriði sem gera lífið fallegra og svona þá var talað um :

New York ferðina = 160.000
Kóramót= 30.000 +
Ítalíuferð = 70.000 +
Söngnámskeið = 15.000
Annað námskeið hjá einhverjum gaur = 9.000 skiptið

Ég hinn fátæki námsmaður fór heim af þessari kóræfingu frekar döpur að geta ekki látið mér það duga að fara bara í kór 1* í viku :(
Alltaf eitthvað meira sem er í gangi ..... og ALLT kostar peninga.

svona er þetta...... 16.000 í kór á önn er semsagt ekki nóg, þetta er svona 200.000 kall á ári er maður ætlar að vera "partur af prógramminu"

annars er ég hress hehe :) kaffi BRÁÐUM !!!!!!!

Nafnlaus sagði...

Ég skil að þú sért pirruð elskan. Glatað þegar að það er búið að segja eitt við mann og svo kemur allt annað í ljós...og engar skýringar með því. Farðu bara á skrifstofuna og láttu kauða heyra það! ;-) URR & HVÆS!!!