sunnudagur, september 28, 2008

"Whatever you give a woman, she's going to multiply.

If you give her sperm, she'll give you a baby.

If you give her a house, she'll give you a home .

If you give her groceries, she'll give you a meal.

If you give her a smile, she'll give you her heart.

She multiplies and enlarges what is given to her.

So - if you give her any crap, you will receive a ton of shit."

Aldeilis

frábær dagur að kveldi liðinn. Héldum upp á 70 ára afmæli mömmu í dag og kvöld með pomp með prakt. Og mamma vissi ekkert. Tókum hana alveg í nefið. Byrjuðum á því mágkonurnar, það er ég og Hlín, á því að fara með ma í Baðhúsið. Þar fengum við nudd, fórum í heita pottinn, í gufuna og þær fóru í ljós.


Ég reyndi. Ég get svo svarið það. Setti peninginn í raufina og ljósið í bekknum kveiknaði. Ég lagðist á bekkinn. Í hálfa mínútu. Stökk upp aftur, hljóp út og sagði mömmu að nota peninginn minn. Ég bara get ekki fyrir mitt litla líf legið í svona bekk. Er bara að kafna úr innilokunarkend. Jæja, en hvað um það. Við fengum freyðivín og jarðaber. Og höfðum það bara ógisslega kósý.



Hér er mamma á leið út úr baðhúsinu. Hver getur trúað því að þessi kona sé sjötug. Löbbuðum svo upp á Ruby thusday og fengum okkur hvítvínsglas og svo kom Bói bró að sækja okkur. Og við vorum búnar að gefa það svona í skin við mömmu að við værum að fara út að borða bara þrjár saman, og við vorum líka búnar að segja henni að við ætluðum að hafa kaffi fyrir hana á morgun í salnum inni á Sléttuvegi. Nema þegar Bói kemur segir hann að Diddi (sem by the way átti að vera á kvöldvakt) hefði hringt og sagt að við yrðum að fara og ná í lykilinn af salnum því að húsvörðurinn væri að fara út úr bænum og gæti ekki látið okkur hafa hann í fyrramálið. Þannig að við náttla brendum upp á Sléttuveg. Shettans mar. Þegar við komum inn á bílaplanið stendur áðurnefndur Diddi á miðju planinu og blaðrar í símann. Mamma tekur strax eftir honum og segir, hvað er Diddi þarna í jakkafötum ??. Við Hlín supum hveljur í aftursætinu. Rukum út úr bílnum og Bói segist vilja sjá salinn. Í því sem ég stíg út úr bílnum sé ég allar kórkonurnar mína koma. Og bara fæ netta. Sussa á þær og þær fatta strax hvað er í gangi, bakka hljóðlega fyrir hornið. Hlín drífur mömmu inn og við hálf hentum henni inn í salinn áður en hún gat velt sér upp úr því hvað Diddi væri að gera þarna. Og oh my god. Þar voru allir gestirnir og það sem mín var hissa. Gjörsamlega missti sig. Grenjaði úr sér augun. Skömmu síðar gengu kórkonurnar mínar inn og við Lonni blönduðumst í hópinn og sungum við fjögur lög. Og mamma grét. Salurinn allur skreyttur með borðdúkum skreyttum danska fánanum. Danskir fánar á borðum og Jónas vinur okkar sem lærði til kokks í Danaveldi og eldaði ofaní danina í 20 ár, eldaði þetta líka fullkomna danska hlaðborð.


Og hér er kokkurinn sjálfur. Pabbi hélt ræðu og mamma grét, Bói hélt ræðu og mamma grét, Tóta spilaði á þverflautuna og mamma grét, Hlíln las upp danskt ljóð og mamma grét, Kára vinkona mömmu hélt ræðu og mamma grét. Bergþór Pálsson kom og söng þrú lög og mamma grét.




Algjörlega fullkomin dagur. Hefði ekki getað verið betri. Yndislegt að hitta frænkur og frændur sem maður sér svo alltof sjaldan. Svo hringdi mamma í okkur eftir að við vorum komin og heim, þurfti að þakka aðeins meira fyrir sig og sagðist bara vera búin að VÖKVA músum í allan dag. Já, það eru sko ekki allir sem vökva músum en kannski einverjir sem vatna músum. hehehehehe.... Ekki meir um það. Þarf að fara að koma mér til kojs. Bói og family ætla að kíkja við á morgum áður en þau halda norður á ný. Tóta sko nebbla verður að sjá Opal í beinni.

God natt og ka i har det gott.

sunnudagur, september 21, 2008

Get svo svarið það

Mætti halda að ég væri að blogga fyrir lífstíð. Geri ekki annað. En það er svona að vera bara að dangla heima hjá sér og vera ekki að vinna. Og svo er tölvan mín náttla allt önnur Ella eftir að Binni kom og tók til í henni. Henti einu og öðru og setti annað og betra í staðin. Og svo gerir flakkarinn minn örugglega sitt líka. Bara allt annað líf. Get opnað Itunes og Ipodið á sama tíma án þess að dósin frjósi eða slökkvi á sér. Henti samt út Itunesinu sem ég var með og halaði niður nýju. Binni sagði mér að gera það. Og viola. Miklu betra. Gunnhildur María kom hér í gær í smá pössun og ég má til með að skella inn mynd af henni.


Sjáiði bara litlu sætu nöfnuna mína. Algjört rassgat. Og svo má ég til með að deila öðru hér með ykkur. Sjáiði bara hvað ég fékk í póstinum.


Þetta er sem sagt, Alla amma standandi aftast. Svo mamma og við systkynin. Við erum sko að tala um það að það eru engar myndir til af okkur þegar við vorum svona lítil, svo þetta er algjör fjársjóður að fá svona. Ætli ég sé ekki svona 3ja og Bói um 1 árs. Dásamlegt alveg. En allavega þá er ég búin að gleypa þessar 3 rándýru töflur og eru þær hverrar krónu virði. Er miklu betri og ætla bara að skella mér til vinnu í fyrró. Hins vegar liggur spúsinn hér dauðslappur inni í lata strák hóstar og hóstar. Ja sko, eitthvað þurfti kvefið að fara frá mér. Vona bara að ég hafi ekki smitað Þóurnni sem var hér alla helgina. Hún er nú alveg miljón þessi unga snót. Í gær vildi hún fá að horfa á Mikka. Svo ég segi við hana að fara og tala við afa sem var í tv herb. Og þá segir hún. Hann nennir ekki að hlusta á mig, koddu með mér. Hahahahahaha.... Hún var sko ekki einu sinni búin að reyna að tala við hann. Svo varð hún eitthvað grumpí á einum tímapunkti í gær og sagði þá ef maður yrti á hana. Ekki tala við mig núna. Algjör hershöfðingi. Veit ekki hvaðan hún hefur þetta barnið... En nú held ég að þetta sé orðið gott á einni helgi. Heyrumst síðar. Alltílagi að commenta svona öðruhverju svo ég viti að þið vitið að ég er flutt enn eina ferðina.
Adios

Klukkitíklukk

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Ráðskona í sveit, sumarið sem ég varð 14 ára. Passa 3 börn föðurbróður míns austur í Breiðdal. Sumarið sem ég lærði að elda, þvo þvott og taka til.
Unglingavinnan. Og það var sumarið sem ég kynntist Ellý og hún kenndi mér að spila á gítar.
Söluturninn við Breiðholtskjör. Sem þá var gamaldags lúgusjoppa. Þar kynntist ég Hrönn, Villu og Gullu. Er með Hrönn í saumaklúbb í dag.
Skálatúnsheimilið. Þar var ég í sex ár og þar kynntist ég Guðnýju og Olgu. Og þær eru miklar vinkonur mínar í dag.

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

Öskubuska
Gone whit the wind
Rauða akurliljan
Stella í orlofi

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Reykjavík 109-107-110-111


Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Missing
Grey's anatomy
Ally Macbeal
So you think you can dance


Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
USA
Danmörk
Ítalía
Portugal

Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan bloggsíður):
mbl.is
facebook
fasteignir.is
man ekki í augnablikinu eftir meiru

Fernt matarkyns sem ég held upp á:
kjúklingur
Kea skyr
fiskur
buffið hans Didda

Fjórar bækur/blöð sem ég les oft:
Les nú ekki sömu bækurnar oft, en les á hverju kvöldi
og svo flettir maður blöðunum


Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:

Lata strák

rúmið mitt

Einhvers staðar í sólinni

Heitum potti

Hér hafið þið það. Best að drífa þetta af. Silla klukkaði mig og hér eru þeir sem ég klukka

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

Lilja Bryndís
Lonni Björg
Ása Björg
Jóna Hlín

laugardagur, september 20, 2008

Námskeið á Háskólanum á Bifröst

NÁMSKEIÐ FYRIR KARLA!!!
Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:

HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT ?
Skref fyrir skref með glærusýningu.

KLÓSETTRÚLLUR: VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM?
Hringborðsumræður.

MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel).

DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA?
Pallborðsumræður; nokkrir sérfræðingar.

LÆRA AÐ FINNA HLUTI
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi -
Opin umræða.

TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?
Hópvinna og hlutverkaleikir.

HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM
PowerPoint kynning.

SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar.

ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?
Ökuhermir.

AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI OG MAKA
Fyrirlestur og hlutverkaleikir.

HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni.

AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR
Komdu með dagatalið þitt í tímann.

AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR
Einstaklingsráðgjöf og samtöl.

Skráning er hafin í s. 666-9999.

Kannast einhver við þetta. Mátti til að henda þessu hér inn. Fékk þetta í maili frá ónefndri vinkonu minni. Takk baby....

föstudagur, september 19, 2008

Hóst, hóst.

Jú, jú. Konan enn hóstandi. En nú er þetta allt að koma. Dreif mig til vinnu í morgun, var orðin eins og slytti á hádegi og fór heim um eitt. Bara gat ekki meir. Tók svo þá ákvörðun að fara á læknavaktina og láta hlusta lungnaræflana. Ákvað líka að vera sniðug og mæta fyrir fimm. Sko það opnar fimm. Var komin tíu í fimm og Sææælllll.... Það voru örugglega 10 á undan mér. En þetta gekk nú allt frekar hratt fyrir sig. Lengsti tíminn fór í að bíða í apótekinu. En sem sagt, konan er með lungabólgu. Hmm. Fékk lyf við því. Og það eru bara held ég dýrustu töflur sem ég á ævi minni hef fengið. Ég fékk sem sagt heilar þrjár pillur. Og mátti sko borga 4000 þúsund krónur fyrir þær. Ekki það að mér finnst náttla æði að þurfa bara að taka inn í 3 daga. Heldur en að vera að drolla við þetta í hálfan mánuð eða svo. Þannig að, ég er bara góð. Þórunn Emilía er að lúlla hjá afa og ömmu Gú. Og hún ætlar sko að horfa á Mikka mús í fyrramálið. Alveg ákveðin í því litla skottan mín. Svo var hún svo ótrúlega montin hér í kvöld. Var í nýjum buxum. Vindbuxum. Og þetta eru sko VINNUBUXUR. Og hana nú. Ekki útibuxur, nei vinnubuxur. Bara fyndin. Hún þurfti auðvitað að fá kaffi í bollann sinn. Jájá. Og að sjálfsögðu fékk hún kaffi í bollann sinn, en ekki hvað. Ég á svona expressó kaffibolla jú nó, svona pinkulitla og hún á þessa bolla. Og í hann fær hún rétt botnfylli af kaffi og svo freydda mjólk með dassi af kanilsykri yfir. Og það sem henni finnst þetta gott. Algjör kaffikellling.




Ég sendi spúsann út í búð að versla í dag. Og hann átti að kaupa flakkara, sem hann og gerði. Svo komu Kolla og Binni hér í kvöld og ömmingja Binni búin að sitja við tölvudýrið meira og minna að redda því sem hægt er að redda. Allar myndir og Itunes-ið inn á flakkarann. Svo sjáum við til hvernig dýrið verður. Finnst hún nú strax hraðari. Ekki eins löt og hún hefur verið. En nú er nóg komið af bulli. Ætla að skríða í ból og klára bókina sem ég er að lesa núna. Áður en ég dey, heitir hún og svakalega átakanleg. Samt mjög húmorísk á köflum. Svo ég bíð bara góðrar nætur.
Adios amigos.....

fimmtudagur, september 18, 2008

Jæja

Þá er þetta nú orðið nokkuð gott. Búin að vera að mygla hér heima í 4 daga. Algjörlega 4 dögum of mikið. Sæll. Ég ætla að mæta í fyrramálið og ekki orð um það meir. Bara get ekki verið heima einn dag enn. Hósta samt enn eins og ég veit ekki hvað. Hef bara ekki verið lasin í svona marga daga í mörg ár, held ég bara. Búin að missa af gommu þessa viku. Dansleikfimin x 2, vinna í Öflun x 1, kóræfing x 1 og saumaklúbb í kvöld. Arg og garg. Búin að glápa á sjónvarp miklu meir en góðu hófi gegnir. Augun orðin kassalaga held ég bara. Svo verður nóg að gera um helgina. Þórunn Emilía ætlar að gista hér, á meðan foreldrarnir fara í sumó og skemmta sér. Kóræfing á laugardagsmorguninn, verð sennilega að vinna í Öflun annað kvöld í staðin fyrir mánudagskvöldið. Og svo ætla ég að reyna að vera dugleg að fara út að labba með hundana. Ma og pa að koma heim úr ferðalaginu góða á laugardaginn. Spurning hvort maður bjóði þeim ekki í mat á laugardagskveldið. Diddinn í fríi þessa helgi. Best að láta hann elda eitthvað gúmmelaði. Anyways, ætla að henda mér í bólið.
Sí ja leiter geiter...

miðvikudagur, september 17, 2008

Enn þá heima

Var að spá í að drífa mig í morgun en hætti við. Hringdi og Sólborg svaraði og sagði hún að það væri ekkert gaman að tala við mig í símann. Þetta samtal var náttla hún að reyna að yfirgnæfa hóstann í mér. Lonni kom með spólu til sjúklingsins í gær. Og ég skellti henni í tækið í gærkvöldi. Horfði á einn þátt af So you think you can dance. Ég bara ELSKA þessa þætti.


Og enn og aftur. Mia Micaels. Hún er bara ekkert venjuleg. En málið er bara það að ég er eiginlega farin að drullufíla hipp hopp líka og þá sérstaklega dansana eftir hjónakornin fögru. Þessi hér.



Jamm og jámms. En núna ætla ég að kíkja á spóluna góðu frá Lonni og gá hvað er meira gúddýs á henni. Mér dauðleiðist og finnst ekkert gaman að vera heima veik. Kóræfing í kvöld og ég má alls ekki við því að missa af henni. Eitthvert Alþingisgigg í næstu viku held ég barasta. Jájá, bara byrjað með trukki. Ekki að spyrja að því. En allavega, farin á vit sjónrænnarskemmtunar.

Adios.....

þriðjudagur, september 16, 2008

hehehehehee.

Dag nokkurn þegar maðurinn kemur heim frá vinnu sinni kemur hann að öllu gjörsamlega á hvolfi í húsinu..
Börnin hans 3 voru úti, ennþá í náttfötunum að leika sér í drullunni með nestisboxin tóm og umbúðapappír var stráð ut um alla lóðina…
Dyrnar voru opnar á bíl frúarinnar, sama sagan var með útidyrnar á húsinu..
Þegar hann kom inn í forstofuna blasti við honum enn meiri óreiða.
Lampi hafðu verið felldur um koll, gólfmottan var kuðluð við einn vegginn.
Í næsta herbergi var teiknimynd í TV og á hæsta styrk og leikföng af öllum stærðum og gerðum voru dreifð um allt herbergið.
Í eldhúsinu .. diskarnir flæddu út úr vaskinum.. morgunmaturinn var sullaður út um allt borð.. hundamatur út um allt gólf….
brotið glas var undir borðinu, smá sandhrúga var við bakdyrnar .
Hann hraðaði sér upp stigann, troðandi á leikföngunum og fatahrúgum í leit að konu sinni.
Hann hafði áhyggjur af því hvort hún hefði orðið veik eða eitthvað alvarlegt hefði komið fyrir.
Hann fann hana hangsandi inni í svefnherbergi, ennþá í krumpuðum náttfötunum að lesa smásögu.
Hún leit brosandi á hann og spurði hvernig dagurinn hefði verið.
Hann leit á hana ringlaðurog spurði, 'Hvað skeði hér í dag?'
Hún leit aftur brosandi á hann og svaraði:
'Þú spyrð mig á hverjum degi þegar þú kemur úr vinnunni hvað ég hafi eiginlega verið að gera í allan dag?'
'Já' segir hann tortrygginn.
Hún svarar. 'Jæja, í dag gerði ég ekkert!!!'

Það er alveg

greinilegt að ég hef akkúrat ekkert að gera. Er bara búin að vera að chilla í tölvunni. Karlarnir að horfa á boltann svo sjónvarpið er ekki á lausu heldur. Ætla samt að horfa á lokaþátt Designing star á skjánum á eftir. Núna er ég búin að vera að skoða mig hér um í bloggspot umhverfinu. Búið að breyta miklu síðan ég var hér síðast. Núna get ég líka fylgst með hverjir eru búnir að blogga og ekki. Það er eitt af því sem mér fannst svo sneddý á moggabloggi. Þarf þá ekki að sakna þess. Jybbi.. Kollan að klára dansleikfimi tímann núna. Og ég ógeðslega spæld að komast ekki. Ég þoli ekki pestar. Mig er gjörsamlega farið að verkja í rifin af hósta. My god. En gott í bili. Ætla að halda áfram og skoða og kanna.
Adios.....

Loksins

Þá er ég búin að copy-paste öllum færslunum af moggablogginu og mun ég nú formlega hætta að nota það. Blogspot er málið. En þar sem ég er svo ótrúlega nýjungagjörn þá þarf ég alltaf að prufa það nýjasta hverju sinni. Kanski að ég sé loksins búin að fatta þetta. Grasið er ekki alltaf grænna hinu megin. Annars hangi ég heima og læt mér leiðast. Er að drepast í hvel... flensudruslu. Fann
að þetta var að byrja á föstudaginn og svo bara seinni part á laugardaginn. Búmm. Hiti, hósti hósti hósti hósti hósti...... Svo ég er búin að vera heima frá vinnu í dag og í gær. Er að spá í að fara í fyrramálið. Málið er bara að ég svolítið erfitt með að tala í síma. Ekki gott að fá hóstakast í miðju símtali við einhvern sem er að panta. Oh nei. En hvað um það. Best að fara að tékka á linkum og svona hér á spotinu. Þarf sjálfsagt að laga einhverja og bæta við.
Adios í bili

Mátti til. Ég dó þegar ég las þennan. Sko úr hlátri....

Brjálað Kynlíf...

Fullorðin hjón voru að halda upp á 50 ára brúðkaupsafmælið sitt á lítilli
sveitakrá nálægt heimilinu sínu.

Eiginmaðurinn hallaði sér upp að frúnni og sagði: Manstu eftir því þegar við
elskuðumst í fyrsta skipti fyrir rúmlega 50 árum ?

'Þú studdir þig upp við girðinguna og ég tók þig aftan frá.'

Já ég man þetta vel segir konan með dreymnum svip og brosir við bónda sínum.

Hvernig væri að endurtaka þetta ? Bara svona upp á gamla tímann .
Girðingin er
hérna rétt hjá ?

Ooooooohhhhh , Stebbi .... segir frúin feimin, þú littli skratti.... Mér
finnst
þetta frábær hugmynd.

Maðurinn við næsta borð heyrði á tal hjónanna og trúði varla sínum eigin
eyrum .
Hann ætlaði sko ekki að miss af þessu og elti þau út.

Gömlu hjónin lölluðu af stað með stafina sína og hölluðu sér hvort upp að
öðru
til að fá betri stuðning.

Þegar þau komu að girðingunni, lyfti sú gamla pilsinu og smeygði sér úr
naríunum
og sá gamli lét sínar buxur sömuleiðis falla. Um leið og frúin hallaði sér
upp
að girðingunni , laumaði karlinn sér inn að aftanverðu.

Skyndilega upphófust einhverjar fjörlegustu og kraftmestu samfarir sem
maðurinn
hafði nokkru sinni orðið vitni að. Gömlu hjónin hristust og skulfu og létu
eins
og brjálæðingar upp við girðinguna og héldu þannig áfram í rúmlega 40
mínútur.
Konan ákallaði guð og sá gamli hékk aftan á henni eins og það væri hans
síðasta. Skyndilega var eins og allur vindur væri úr þeim og þau féllu
niður í
grasið.

Maðurinn sem varð vitni að þessu starði næstum úr sér augun. Honum varð
hugsað
til foreldra sinna, hvort þeir stunduðu enn svona villt og galið kynlíf.

Hann átti bágt með að trúa því.

Þegar kynlífsparið hafði legið í þrjátíu mínútur í grasinu til að jafna sig ,
risu þau gömlu á lappir og komu flíkunum í réttar skorður.

Ég verð að spyrja þann gamla hvernig hann fór að þessu , sagði sá ungi með
sjálfum sér. Þau voru eins og miðnæturhraðlest! Gjörssamlega óstöðvandi.

Þegar gömlu hjónin gegnu fram hjá manninum sagði hann. Þetta var ekkert
smáræði.
Þið hljótið að hafa verið að í 40 mínútur. Hvernig fóruð þið að þessu ???
Er það
kannski leyndarmál ?

Nei sko það er ekki leyndarmál sagði gamli maðurinn og ranghvolfdi
augunum....
nema hvað að fyrir 50 árum var þetta ekki ramagnsgirðing!!


Gefa einkunina 1Gefa einkunina 2Gefa einkunina 3Gefa einkunina 4Gefa einkunina 5 Bloggar | 4.9.2008 | 10:21 | Slóð | Athugasemdir (3

Atburður hefur átt sér stað

Jamm og já. Konan nýklippt og fín. Og með geðveikt flotta liti. Og það sem meira er, ég er ósemitrísk. Já, held að það heiti það. Bóndanum leist ekkert á þetta og sonurinn sagði "nei mamma". En það er allt í lagi. Mér finnst þetta hrikalega flott. Aldrei að vita nema ég skelli inn einni mynd eða svo. Bara ekki núna. Það nebblega sko lak öll fína greiðslan og blásturinn úr hárinu á mér í dag í rigningunni, á leiðinni heim úr vinnu.Mín algjörleg að fíla sig í bílnum með nýja hárið Convertible Female ótrúlega "heppin" eða hitt þá heldur að einhver drengstauli kyssti aftan á bílinn hjá mér. Og akkúrat á þeim tímapunkti í dag rigndi eins og hellt væri úr fötu.Cloud Hann ekki með tjónaskýrslu svo ég fer að gramsa í hanskahólfinu og að sjálfsögðu var ég með skýrslu, nema að hann færir bílinn og sest inn. Ég fer með snepilinn til hann og það er sko ekki fyrr en að það er hægt að vinda mig sem hann býður mér að setjast inn. Og öll fína greiðslan lekin í ræsið. WetOh mæ oh mæ. Engin meiddist, ekkert mál, bara smá erfitt að opna og loka skottinu.

Leiter geiter....Pulling My Hair Out


I'ts a final countdown

daradandadada dararandandararandada klipping á morgun. Læt ég klippa mig stutt, læt ég klippa mig sítt, eða bara sítt að aftan. Verð ég blond, eða rauð eða brúnhærð. Fæ ég mér strípur eða ekki. Jebb, þetta eru þær spurningar sem sveima um í kollinum á mér þessa stundina. Hef ekki haft svona sítt hár í mörg herrans ár. Búin að hafa fyrir því að láta það vaxa, og nú bara veit ég ekki. Hvað segið þið. Sko sem þekkið mig, og vitið hvursu ótrúlega sæt ég er með sítt og stutt. Undecided Var að klára í gær að glápa á spólu frá Moi Lonni. Tveir þættir af Svo þú heldur að þú getir dansað. Breakin' Algjörlega elska þessa þætti. Sjá alla þessa hæfileikaríku krakka. Margir hafa aldrei fengið neina leiðsögn eða kennslu í dansi. Svo kviss bamm búmm. Koma þarna og hafa einhverja fárálega fáa tíma til að læra þennan eða hinn dansstílinn. Love it. Og það er annað í þessum þáttum sem ég elska mest af öllu og það er Mia Micaels. Oh my god. Gæti nánast grenjað yfir öllum dönsunum sem hún semur fyrir krakkana. Þegar ég verð stór ætla ég að fara í danstíma hjá henni. Hef aldrei séð eins "fallega" dansa. Segi það og stend við það. Annars allt í gúddíi. Fór náttla á tónleikana með Clapton, geðveikt, saknaði samt nokkurra laga. En það er ekki allt fengið. Skipulag tónleikanna fannst mér í slakara lagi. Nenni ekkert að fara út í það hér. Svo er ég búin að fara tvisvar á Mama Mia. Jebb. Tvisvar. Einu sinni á venjulega sýningu og svo á sing along. Og mein herr. Hefði aldrei trúað því að það væri svona gaman í bíó. Dönsuðum og sungum, veifuðum höndum kveiktum á kveikjurum í rólegu lögunum og alles. Svo nú þarf ég bara að komast til Londontown og sjá Mama Mía á sviði. Einhver til í tuskið. Bara algjört must. Oscar Red Carpet 1 Hundalífið gengur bara ágætlega. Opal reyndar pissar svoldið mikið inni enn. Vonandi að þessu fari að ljúka. Orðin soldið þreytt á þessu pissustandi í harðfullorðinni tíkinni. Hún er samt sætust. Og þær báðar. Bannað að gera upp á milli. Puppy 2Puppy 3 Fékk bækling inn um lúguna frá Hreyfingu. Og þar er eitt námskeið sem mer líst slatta vel á. Það heitir Árangur dans. Og það er tekið fram að það sé ekki fyrir taktlausa. Og þar sem ég er náttla ótrúlega taktföst kona þá er ég bara að hugsa um að drífa mig á eitt námskeið. Það er salsa, rúmba, bodyjam og brjáluð tónlist.Aerobics Hver er í stuði með. 6 vikna námskeið. Ég er farin að hljóma eins og ég geti ekki gert neitt ein. Auglýsi eftir fólki til að vera memm. Hljóma eins og vinasnauð piparjónka. Oh boy oh boy. Hver er með í klippingu á morgun. hehehehe. Nei bara grín. Ég er svo mikill grínisti. En ætla að skella mér í koj. Opal hrýtur hér hástöfum undi fótum mér. Best að koma þeim í bælið og lesa svo smá. Held að ég hafi aldrei verið eins lengi með neina bók og þá sem ég er að lesa núna. Ekki það að hún sé svona leiðinleg, nei, bara sofna eftir 2 blaðsíður. Öðruvísi mér áður brá.

Siðar......Books


Í korti.

Fjörtíu og átta ára fögur frú

fagran sönginn flytur.

Voxin hún velur og er honum trú

við stjórnvölin Magga þar situr.

Ef hefð’ hún ei sönginn til að létta sér lund

lífsleiðin yrði ei greið.

Því þunglyndið hverfur á þeirri stund

þar sem raddböndin þenjast í söngvaseið. HeartHeartHeart

Jaháá. Þetta beið mín í morgun þegar ég vaknaði. En ekki tók ég eftir því þá. Oh nei. En hinsvegar þá rumska ég við það undir morgun að spúsinn fer á fætur. Og ég eitthvað í svefnrofunum að hugsa hvað hann sé að gera á fætur núna. Vissi ekki til þess að hann ætti morgunvakt. En það hlyti bara að vera og að hann hefði gleymt að segja mér frá því. Annað eins getur nú gerst í dagsins amstri. En allavega. Ég skríð mygluð á fætur svona 7.20 og fer fram í eldhús. Og hvað haldiðið. Liggur ekki þá þessi líka sæti pakki á borðinu og ein rauð rós. Og lítið kort. Nú ég er hin rólegasta og passa mig á að tapa mér ekki í pakkagleðinni. Tek rósina, næ í vasa inn í stofu og set hana í vatn. Tek kortið úr umslaginu, ægilega sætt, svart flauelisglimmer með gullhjörtum og les það sem þar stendur. Og orðrétt þá stendur þar.

Það er sagt að leiðin að hjarta konunnar liggi í gegnum magann. Til hamingju með daginn. Feðgarnir.

Nú ég er bara alveg hissa á þessu. Hvað skyldi vera í pakkanum. Svo ég ríf nú utanaf ræflinum og bara jibbý. Nammi namm. Og svo skall það á mér. What!!!! Þetta er bara eins og að henda brennivínsflösku til óvirks alka sem er alveg að fara á límingunum. Sem sagt. Eitt stykki STÓR Nóa Siríus konfektkassi. W00t Ekki það að ég var búin að fá afmælisgjöf og átti alls ekki von á þessu. Lagði kassaófetið frá mér og fór til vinnu. Svo hringir spúsinn í mig um hádegið og óskar mér til hamingju með daginn og ég þakka honum fyrir fallegt kort. Nú en ekki hitt. Og þá benti ég honum á þetta með alkann. Hann hló nú bara og sagðist skyldi fela kassann og gefa mér einn mola á dag. Jæja. Svo var afmæli hjá gullmolanum Mikael í kvöld og þegar við komum heim sest ég við eldhúsborðið og fæ mér smók og spjall. Tek upp kortið og fer að segja hvað mér finnist það flott. Og þá bara búmm. Sem sagt. Ég tók ekkert eftir þessum krúttlegu vísum í morgun. Greinilega bara verið með annað augað opið og ekki getað lesið báðum megin. Light Bulb

En mátti bara til með að deila þessu með ykkur. Er núna farin að lúlla í hausinn minn. Afmælið hans Mikael var voða fínt. Og ég er svo södd að það hálfa væri hellingur. Ætla svo að skunda á Laugarvatnið fagra annað kvöld með syninum og njóta sveitasælunnar hjá Olgu fram á sunnudag. Algjörlega komin tími á að skreppa aðeins í annað umhverfi. Diddinn að vinna alla helgina eins og allar helgar. Svo hann verður einn í kotinu á milli vakta.

Svo þakka ég allar góðar kveðjur í dag bæði hér á bloggi voru sem og í síma vorum.

Söngfuglinn kveður með harið á allar áttir....Bad Hair Day


Slóri slór

Jebb. Hlýtur að vera í lagi að slóra örlítið á afmælisdaginn sinn. Það á náttla að vera í lögum að marður eigi frí á afmælisdaginn. Cool Er þaggi.... Annars bara allt fínt. Allir búnir að eiga afmæli í þessum mánuði og það eru sko ekkert fáir. Baldur Mikkapabbi varð 30. Oh my. Daði Olgumaður varð 50. Æjæjæjæ.... Og við fórum í partý hjá þeim skötuhjúum. Rosa flott veisla og mikið stuð. Mikið,mikið sungið. Svo átti spúsinn minn afmæli í fyrradag og er orðin 51. Æji, sárt. Svo litla ömmugullið hann Mikael Orri var sko 4ra ára í gær. Orðin svo stór og flottur gæi. Algjörlega dásamlegur. Svo er hann byrjaður á nýjum leikskóla og kippir sér sko ekkert upp við það. Tekur því með hinu mesta æðruleysi, en ekki hvað. Núh, svo á frúin sjálf afmæli í dag, og er orðin ?8 ára. Wizard Kaffi í kvöld hjá Mikeal fyrir ömmur og afa. Svo krakka ammili seinna. En nú er best að ég fari að vinna. Þið verðið bara að sorryja það að ég skuli vera svona löt að blogga þessa daganna. Nenni óttalega lítið að vera í tölvunni heima, eftir að sitja fyrir framan hana hér í vinnunni alla daga. Og svo fer tölvugeimsluherbergið alveg óstjórnlega í skapið á mér þessa daganna. Þoli það hreinlega ekki. Mig vantar eitt herbergi í viðbót. Eða geymslu. Eða bara eitthvað. Maður er í stór hættu þarna inni. Gæti fengi tjald í hausinn, eða kannski ferðatösku. Aldrei að vita. Þannig að í augnablikinu NENNI ég ekki að vera þarna inni......

Adios.....Afmælisstelpan....Whistling


Gefa einkunina 1Gefa einkunina 2Gefa einkunina 3Gefa einkunina 4Gefa einkunina 5 Bloggar | 21.8.2008 | 15:01 | Slóð | Athugasemdir (2