miðvikudagur, október 31, 2007

Jæja gullin mín

Komin tími á smá skrif hér. Konan rétt að jafna sig á rottudæminu. Sjæse. Never again. Fór á tónleikana hjá Gospelsystrum í gærkvöldi. Skundaði héðan að heiman ekki fyrr en tuttugu mínútur yfir átta. Sillan mín kom og sótti frúna. Svo náttla þurftum við kaffi áður en haldið var af stað. Svo við vorum svona frekar í seinni kantinum. Öll bílastæði löngu frátekin og kyrkjan troðfull. Fengum sæti nánast aftast. Fínir tónleikar. Verst hvað okkur langaði bara að stökkva upp og syngja með. MP kallaði reyndar í allar konur sem sungið höfðu Ave Maríu Björgvins að koma og syngja með. Ohhh,. það var svo gott og gaman. Er sko bara farin að hlakka til að syngja á jólatónleikunum með systrunum. Okkar Voxara tónleikar núna á laugardag og sunnudag. Allt eiginlega bara smollið inn, svona á síðustu metrunum. Nema Te deum. MP skellti því inn á mánudaginn siðasta og þá heyrði ég það lag líka í fyrsta sinn. Fékk vægt áfall. Dæs mar. Nú verð ég bara að vera með þetta lag í Ipod eyrunum og reyna að ná því. Liggur asskoti hátt. Ekki gott fyrir mína bassarödd. Well. If you dont make it, then fake it sagði kellingin. Er þaggi bara. Þarf að fara á morgun og sækja alla klóarann sem ég var svo dúgleg að selja. 15 pakkningar góðan daginn. Held barasta að ég þurfi sendibíl undir herleg heitin. Sjæse.....






Á ég ekki yndkislegustu barnabörn ever. Þau eru svo mikil krútt að ég gæti étið þau. Svo gaman hjá afa og ömmu. Nýbúin að borða íspinna, en ekki hvað. Fer svo með Yoko í andlitssnyrtingu á morgun. Ég get svo svarið það að hún fer oftar í klippingu en ég. Hmmmm. Er ekki eitthvað öfugsnúið við þá mynd. Hmmm.



Annars er ég að fara til Ríkeyjar á föstudaginn. Aldeilis komin tími til. Hef ekki farið síðan einhverntíman í ágúst. Allt of langt síðan. Og augabrúnirnar. Maður minn. Sú fær aldeilis að taka til í þeim garði. Þarf orðið að greiða frá. Sjæsen. En nú ætla ég í ból bjarnar enn eina ferðina. Fór allt of seint að sofa í gær, þannig að mín er bara búin að vera á geyspinu í dag.

Yfir og út krúsarknús.......................

föstudagur, október 26, 2007

Rottuskjól

Jebb, my sweeties.... Hér kom inn eitt stykki ROTTU kvikindi. Og þeir sem mig þekkja vita að ég er með feita fóbíu fyrir nagdýrum af öllum tegundum. Sama hvort það eru mýs, rottur, hamstur, naggrísir eða kanínur. Þoli ekki nagdýr. Fæ sveittan hroll bara að hugsa um þetta. En þetta byrjar allt á símtali frá spúsanum í vinnuna í morgun, sko klukkan rúmlega sjö.

Spúsinn: Það er mús hérna.
Ég.........: NEI.
Spúsinn: Jú, ef ekki bara rotta.
Ég..........: Þú lýgur því. Hvar sástu hana.
Spúsinn: Nú hérna.
Ég........: Hérna hvar. (orðin frekar hávær og taugatrekkt.)
Spúsinn: Sá hana hlaupa inn í tölvuherbergi.
Ég.........: (Farin að æpa) hvernig komst hún inn. Ég er flutt út.
Spúsinn: Sennilega inn um þvottaherbergisgluggan.
Ég.........: Og hvar er hún núna.
Spúsinn: Inni í tölvuherbergi.
Ég.......: Lokaðir þú ekki hurðinni. (komin með skjálfta og svitna í gríð og erg.)
Spúsinn: Auðvitað hvað heldurðu að ég sé.
Ég........: (þurka svitann sem lekur niður í augun á mér) Þú verður að ná henni.
Spúsinn: Já að sjálfsögðu.

Áttum svo ekki lengri samræður að þessu sinni. Hann kemur hins vegar í hádeginu til mín til að skipta um bíl við mig og segist ætla að kaupa hangikjöt í rottugildruna. Jamm flott skal það vera fyrir kvikindið..... Svo kem ég heim úr vinnu og tipla hér á tánum. Lokað inn i tölvuherbergi. Dreif mig í sturtu og kjól . Setti upp sparifeisið og dreif mig í kórinn. Vorum að syngja við opnun nýja anddyrisinns á Grand Hotel. Svo bara heim aftur. Og hvað haldið þið. ENGINN HEIMA. Ég mátti sem sagt vera eina heima með rottukvikindinu. Dreif mig úr kjól og hoppaði í náttföt. Lagaði mér mmmmmm gott kaffi með freyddri og sona. Inn í sjónvarpsherbergi og lokaði á eftir mér. Og sat þar þangað til kallin kom heim með hundinn. Og þá versnaði í því. Matur hundsinns er geymdur inn í tölvuherbergi og voffinn svangur. Svo hann segir við mig. Komdu og stattu hjá mér með kúst tilbúin að berja dýrið ef það skyldi stökkva út þegar ég opna. Og ég byrja að svitna. Og skjálfa. Segist skuli standa upp á stól. Ok. Hann nær í eitt stykki snjóskóflu út í geymslu og réttir mér. Ég upp á stól með skófluna og reddý. Eða þannig sko. Hann opnar, ofurvarlega og svo bara jibbý hún er dauð. Og ojbarasta. Ég þurfti endilega að reka augun í kvikindið. Jakk. Fékk ógeðshroll og hlóp inn í stofu, og sko hrollurinn fór niður í tær. Jakk. Nú verða sko settir vírar hér fyrir alla glugga. Og það ekki seinna en á morgun. Hér eru allir gluggar harðlæstir. Við að kafna úr hita. En það verður sko bara að hafa það. Ekki fleiri nagdýr í minn bæ. Gúdbæ....
Og hvað svo. Ætlar engin að kaupa miða á tónleikana hjá mér. Hvurslags stuðningur er þetta eiginlega. Koma svo. Þið getið sent mér mail á grana@mmedia.is

Gott í bili. Yfir og út krúsarknús....

miðvikudagur, október 24, 2007

Smá auglýsing hér.

Kvennakórinn Vox feminae heldur tónleika í Háteigskirkju laugardaginn 3. nóvember og sunnudaginn 4. nóvember og hefjast þeir kl. 17 báða dagana.

Á tónleikunum sem bera yfirskriftina Mater Dei, mun kórinn m.a. frumflytja nýtt verk, Stabat Mater, sem tónskáldið John A. Speight hefur samið sérstaklega fyrir Margréti J. Pálmadóttur og Vox feminae. Verkið byggir á hinu sígilda harmljóði, Stabat Mater Dolorosa, eftir ítalska ljóðskáldið Jacopo de Benedetti og fjallar um hinn djúpa skerandi harm móður sem stendur við kross sonar síns og fylgist með dauðastríði hans án þess að geta nokkuð að gert.

Stóð við krossinn mærin mæra,

Mændi´á soninn hjartakæra,-

Grátin sá, hvar Guðs son hékk.

Sorgin önd og sálu marði,

Svo að brjóstið treginn harði

Eins og sverð í gegnum gekk.

(ísl.þýðing Matthías Jochumson)

Verkið er skrifað fyrir kvennakór, mezzósópran, enskt horn (Cor Anglais) og strengjakvintett og tekur um 40 mínútur í flutningi.

Flytjendur á tónleikunum auk Vox feminae eru Sigríður Aðalsteinsdóttir, mezzósópran, Daði Kolbeinsson, enskt horn, Sif Tulinius, 1. fiðla og konsertmeistari, Pálína Árnadóttir, 2. fiðla, Svava Bernharðsdóttir, víóla, Sigurgeir Agnarsson, selló, Hávarður Tryggvason, bassi og Antonía Hevesi, orgel. Stjórnandi tónleikanna er Margrét J. Pálmadóttir en frumflutningi verksins Stabat Mater mun John A. Speight stjórna.

Tónleikarnir eru þeir fyrstu í röðinni af veglegri og glæsilegri dagskrá sem kórinn mun standa fyrir á afmælisári en í haust hóf kórinn sitt fimmtánda starfsár.

Miðaverð er kr. 2.500.-


Jæja gott fólk. Mæli með því að þið komið á þessa tónleika. Þeir eru sko bara flottastir.... Hafið bara samband við mig og ég mun með gleði selja ykkur miða....


mánudagur, október 22, 2007

Alltaf gaman að þessu


Leiðbeiningar aftan á þekktri "meik" tegund:
"Do not use on children under 6 months old."
(auðvitað byrjar maður ekki að mála börnin sín
fyrr en þau eru orðin 7 mánaða!!!)

Leiðbeiningar á Sears hárblásurum:
"Do not use while sleeping"
(Einmitt þegar mér finnst skemmtilegast að dúlla í hárinu á mér)

Þetta stóð á umbúðum utan af Dial sápu:
"Use like regular soap"
(Og hvernig á aftur að nota svoleiðis?)

Á umbúðum af SWANN frystimat:
"Serving suggestion: Defrost"
(Mundu samt...þetta er bara uppástunga)

Hótel lét baðhettu í boxi fylgja með hverju herbergi, og á boxinu stóð:
"Fits one head."
(Sérðu ekki fyrir þér...einhverja tvo vitleysinga... með eina baðhettu...)

Á botninum af Tiramisu dessertinum frá Tesco stendur:
"Do not turn upside down."
(Úps, of seinn)

Þetta stendur á búðing frá Marks & Spencer:
"Product will be hot after heating."
(Það er nefnilega það)

Á pakkningum af Rowenta straujárni:
"Do not iron clothes on body."
(En myndi það nú ekki spara mikinn tíma!)

Á hóstameðali fyrir börn frá Boots:
"Do not drive car or operate machinery"
(Þannig að Gunni litli fær ekkert að leika sér á
lyftaranum þegar hann kemur heim)

Á flösku af "Nytol sleep aid" má sjá þetta:
"Warning: may cause drowsiness"
(Maður skyldi nú rétt vona það!)

Hnífasett frá Kóreu var merkt þannig:
"Warning keep OUT OF children"
(okí dókí!!!)

Jólasería frá Kína var merkt á eftirfarandi hátt:
"For indoor or outdoor use only"
(En ekki hvar...???)

Matarvinnsluvél frá Japan var merkt svona:
"Not to be used for the other use."
(Ok...núna er ég orðinn mjög forvitin)

Hnetupoki frá Sainsburys: "Warning:contains nuts"
(Jamm... ég fer mjög varlega)

Á poka af hnetum frá Amerísku flugfélagi stóð þetta:
"Instructions: open packet, eat nuts"
(Imbafrítt eða hvað?)

Leiðbeiningar sem voru á miða með blá, hvít og rauðköflóttri skyrtu segir:
"Munið að þvo liti aðskilda"
(Ehhh...já...áttu nokkuð skæri)

Leiðbeiningar á ónefndri örbylgju popp tegund segir manni að
"taka plastið af áður en sett er í örbylgju"
Málið er, að til að geta lesið leiðbeingarnar verður þú að vera búinn að taka plastið af og fletta pokanum í sundur...

Framan á kassa af "Töfradóti" fyrir krakka, er mynd af strák sem er klæddur eins og töframaður. Aftan á kassanum stendur:
"Notice, little boy not included"
(Ohhhhh.......ég sem var farin að hlakka svo til að eignast vin)

Ég keypti svona kisunammi fyrir köttinn minn. Á pokanum stendur "new and improved shapes"
(Aaaa...einmitt það sem kötturinn minn er búinn að vera að nöldra út af)

Lítill miði var festur á "Superman" búning, á honum stóð:
"Warning: This cape will not make you fly"
(Núúúúú...þá kaupi ég hann ekki)

Á keðjusögum stendur oft viðvörunin
"Do NOT touch the rotating chain"
(Er það ekki nú nokkuð ljóst..haaaa??)

Eitt sem ég skil ekki "Waterproof" maskarar...á þeim stendur:
"Washes off easily with water"
(Hmmm...hver er þá tilgangurinn?)

sunnudagur, október 21, 2007

Hellisheiðin

er ekki vinur manns í myrkri, rigningu og ÞOKU. Skrapp austur á Hellu í gærkvöldi og dró Silluna mína með mér. Og þegar við erum að nálgast Skíðaskálann skellur á þessi líka þoka. Hún var svo svört að ég rétt sá í svona tvær stikur eða svo. Samt fóru tveir bílar framm úr mér á fljúgandi siglingu. Djöfulsins kæruleysi dauðans. Ekki liggur mér lífið svona á. Ó nei. Enda þegar við komun niður af heiðinni þá voru alltíeinu svona 15 bílar fyrir framan okkur. Og vorum við síst að skilja hvaðan þessir bílar kæmu. hehehe....Áttum svo bara kósí og notó kvöld við spall og svona við nýja borðstofuborð þeirra mektar hjóna Diddu besta skinns og Lalla gallblöður. Núh, þegar við svo komum í bæinn ákváðum við að skoða friðarsúlu Yoko Ono. En sorry you gays. No friðarsúla. Keyrðu alveg út á Laugarnestanga og engin súla. Ætli Orkuveitan sé búin að loka á þau. Okkur er bara spurt. Þannig að ég keyrði Silluna bara heim og engin súludans þetta kvöldið. Þreif svo hér allt út að dyrum í dag. Var alveg að gefast upp á þessu ryki og drulludraslsveseni hér á bæ. Nenni eiginlega ekki að þrífa hér heima eftir að ég byrjaði að þrífa hjá tannsa. En það er náttla ekki að ganga. Druslaðist svo í sturtu eftir öll ósköpin. Svo kom Rannveig mín Gospel systir til margra ára til min í kvöld. Drukkum eins og tvær rauðar og smökkuðum á þessu ókennilega sem ég kaupti í Halifax ríkinu um daginn. Og það var bara rosa gott í kaffi úr fínu vélinni minni.(Ólöf ertu að koma í kaffi. ) Planlögðum næstu útilegu í Þakgil. Ætlum að taka með okkur allar skemmtilegu konurnar úr Gospelnum. Sko útlvaldar. Eða þannig. Mikael Orri var hjá okkur í dag. Og hann er sko bara skemmtilegastur. Ekki spurning. Jæja klukkan er orðin allof mikið og mér veitir ekki af að fara að lúlla í hausinn á mér.

Yfir og út krúsarknús.............

fimmtudagur, október 18, 2007

Allt brál

Jamm það er sko ekki orðum ofaukið. Konan alveg á yfirdrifinu. Spurning hvenær það gefur sig. Fór í æfingabúðir síðustu helgi í Skálholt. Yndislegur staður. Hmmmm, hef sko aldrei komið þar áður, skömm frá að segja. Ótrúlega góð herbergi. Ótrúlega góður matur. Ótrúlega vinnusöm helgi. Svo ótrúlega vinnusöm að maður var sko bara komin í bælið um miðnættið á laugardagskvöldinu. Annað eins hefur sko ekki átt sér stað í æfingabúðum fyrr né síðar. En mikið hafði ég gott af þessu. Stabat Mater er sko alveg að detta inn. Ekki seinna að vænna, ekki nema hálfur mánuður í tónleikana. Var ég búin að segja ykkur hvað ég á ótrúlega gáfaðan hund. Hún sko skilur kúka. Þegar við förum út með hana og segjum kúka þá kúkar hún. Þó hún þurfi að kreista út einu litlu sparði. hehehe.. Svo hlýðin þessi elska. Er alveg hætt að kúka innandyra. Kemur samt enn fyrir að hún leki smá inni. En þetta er allt að koma. Slapp létt út úr þrifum hjá tannsa í dag. Heita vatns æð fór í sundur í Kópavogi, svo mín hafði ekkert heitt vatn að skúra með. Þannig að ég ryksugaði bara voða vel, en sem sagt ekkert skúr..... Olga orðin hunda-amma enn eina ferðina. Fékk fimm stykki. Verð endilega að gefa mér tíma til að fara og skoða snúllurnar. En ekki fékk hún alhvítan eins og hana langaði. Mar fær víst ekki allt sem mann langar. Er jafnvel að spá í að skreppa á Helluna um helgina. Sjá slektið og sýna mig. Og svo náttla dobbla Lallann að sauma upptökuIpodtösku fyrir moi und Sillu. Manninum er náttla ekki viðbjargandi. Held barasta að það sé ekkert sem hann ekki getur. Hér í þá gömlu og góðu gekk Lalla frú í heimasaumuðm dressum, kjólum og kápum. Drengirnir í heimasaumuðum leðurjökkum og alles. Og allt saumað af Lalla. Ekki amalegt að eiga svoleiðis kall. Hmmmm. Ég þarf að fá allt mitt í dýrum búðum og sona. Og þá aðalegea í Ysju. Það er sko búð búðanna. Eða sko þangað til ég hefi efni á að fara í Karen Millen og versla mér eitt stykki kjól eða svo. Hef kannski efni á tvinnanum í kjólinn eins og staðan er í dag. Og by the way. Er að selja klóara. Endilega kommenta hér að neðan um það hvað þið viljið margar pakkningar. Og það er sko frí heimsending og svo náttla fáið þið að sjá MOI í leiðinni. Ekki leiðinlegt það. Anyway. Þetta er einhver eðal prinsessupappír og kosta litla 2800 pakkningin. Og þá sko losnið þið við að bera þetta pappírsdrasl heim úr bónus, og vitið að þið hafið gert góðverk dagsins. Það er að losa mig við dótið. Koma so. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Annars bara allt í góðu. Fékk Silluna mína í kaffi í dag eftir vinnu. Eftir vinnu sem minnir mig á það að ég LÆSTI mig úti í dag. Keyrði Örn í vinnuna og þegar ég kom heim hljóp Yoko beint í garði og gerði öll sín stykki. Svo mín mátti fara inn og ná í poka. Hendi hús og bíllyklum á eldhúsborðið og út aftur. Og slamm. Hurðin læst. Eins gott að ég var með símann um hálsinn. Hringdi í Lonni sos. Núna strax. Mér mál á dolluna og svona. Þannig að þær komu hér mæðgur og björguðu ömmunni. Hjúkk mar. En nú er ég hætt.
Ætla að fara í ból bjarnar og lesa endalokin í Galdrameistaranum. Verð svo defenatly að finna Ríkið í ljósinu, til að geta haldið áfram að fylgjast með Móra, Dólgi, Sunnu, Þengli og öllum hinum.

Yfir og út krúsarknús.......................

mánudagur, október 15, 2007

Tarot er cool


You are The Moon


Hope, expectation, Bright promises.


The Moon is a card of magic and mystery - when prominent you know that nothing is as it seems, particularly when it concerns relationships. All logic is thrown out the window.


The Moon is all about visions and illusions, madness, genius and poetry. This is a card that has to do with sleep, and so with both dreams and nightmares. It is a scary card in that it warns that there might be hidden enemies, tricks and falsehoods. But it should also be remembered that this is a card of great creativity, of powerful magic, primal feelings and intuition. You may be going through a time of emotional and mental trial; if you have any past mental problems, you must be vigilant in taking your medication but avoid drugs or alcohol, as abuse of either will cause them irreparable damage. This time however, can also result in great creativity, psychic powers, visions and insight. You can and should trust your intuition.


What Tarot Card are You?
Take the Test to Find Out.

mánudagur, október 08, 2007

American Cities That Best Fit You:

60% Austin

60% Denver

50% Honolulu

50% Las Vegas

50% Los Angeles
You Could Maybe Be a Vegetarian

You may think being vegetarian is a great idea, but you don't have all the tools to get started.
Find a local vegetarian group or buy a few vegetarian books.
Even if you don't go completely veggie, you can introduce more vegetarian foods into your diet!
You Are Elektra

There's really no superhero with more style than you.
Because who could beat being sexy assasin ninja?

sunnudagur, október 07, 2007

Hundasýning...

Jebb, þá er hundasýninginn afstaðinn. Yoko mín fríða lenti í 5 sæti. Átt svo sem ekki von á því að hún myndi næla sér í verðlaun. Svoddan óþekktarormur. Hins vegar sá ég það alveg út að ef sýnandinn er vanur og kann sitt fag, þá vinna þeir. Það er nefnilega ekki sama hvernig þú berð þig að. Svo að ef ég fer aftur með Yoko á hundasýningu þá mun Karen sýna hana. Það er sú sem við keyptum hundinn af. Hún samþykkti það góðfúslega.
Hér er sonurinn að reyna að stilla henni upp.


Karen með Twidy, Örn Aron með Yoko og Helena dóttir Karenar með hund sem ég veit ekki hvað heitir....Þetta er Freyja Lísa tíkin hennar Olgu... Krúttíbolla....

Svo fór hópurinn á Red Chilli að borða í kvöld. Skemmtilegt kvöld. Unglingarnir skemmtu sér konunglega líka. Voru með sér borð og svona.

Og þá er úti ævintýri....

Yfir og út krúsarknús.........................

laugardagur, október 06, 2007

Er ekki komin tími til að tengja,,,,,,,,,

Eða þannig. Algjörlega brjál að gera hjá konunni. Held barasta að mín verði að hætta að vinna til að geta stundað áhugamálin og hundamálin. Hjúkkidíhjúkk. Það náttla er sko ekki að gera sig að vinnan skuli tefja fyrir hobbýinu. hehehehe.... Kórinn minn fagri Vox Feminae er 15 ára á þessu ári og allt vitlaust þar að gera. Frumfluttningur á verki sem samið var sérstaklega fyrir kórinn, núna í nóvember. Spk tónleikar, 5 stykki takk fyrir takk. Jólatónleikar. Svo er Domus Vox að fara til Köben í byrjun des og mín grætur hér krókódílatárum að geta ekki farið með. Mín á svo bágt. Minni langar svo með. Framlög einhver. Bara segja til sín. Koma so..... Kríaði út launahækkun svo ég held að ég haldi mig bara í gömlu "góðu" vinnunni og hætti að ergja mig á dótinu fyrir ofan mig. Og hana nú. Er líka komin með smá auka-aukavinnu. Er farin að þrífa einu sinni í viku heima hjá einni tannlæknakonu. Og hún ætlar í staðinn að gera við gómana í mér. Löngu orðið tímabært. Konan hætt að brosa út að eyrum. Hljómar einkennilega að hlakka til að fara til tannlæknis. En mig hlakka gegt til. Eins og unglingaskrímslin segja. Loksins farin að sjá það að fá nýtt postulíln. Sko fast ekki laust. Jú nó.... Get ekki hugsað þá hugsun til enda að fá gervi. No vei Hosei.....Yoko að fara á hundasýningu á morgun. Er svo sem ekkert að sjá það fyrir mér að hún vinni til einhverra verðlauna. Svoddan óþekktarormur þessi elska. En það er sko alltílagi. Hún er sko æði fyrir því. Fallegasti hundur ever. Þarna er mín nýkomin út snyrtingu og alles. Algjör prinsessa. Þórunn kom hér um daginn með móður sinni 0g fékk ís að vanda. Aldreið verið til eins mikill ís hér í frysti eins og eftir að barnabörnin komu í þennann heim. Ætla að prufa að henda inn einu myndbandi eða svo af drottningunni. Versogú..




fékk mér nýjan síma um daginn. Er alveg að gefast upp á að læra á djásnið. Held bara að ég verði að fara í símabúðina og láta kenna mér á hann. Svo er hann bara á ensku. Og það er hreint hell að læra til baka. Skil jú. Einu sinni í eldgamla daga átti ég síma á ensku. Ekkert mál. Svo fékk ég nýjann og hann var með íslensku. Það tók laaaaaaaangann tíma að læra á hann. Svo núna aftur á ensku og þetta er bara glatað. Er sko ekki að ganga. Well shitt. Koma tímar, koma ráð.
Er að henda inn nokkrum myndum frá heimsókn Mac og Vicky hér um daginn, á Myndaflickrið mitt. Verði ykkur að góðu. Algjörlega yndislegt fólk og ég er svo glöð að hafa fengið tækifæri til að kynnast þeim. Þau eru b.t.w. frá Kanada. Hann er sko frændi minn. Jæja ég nenni ekki að bíða eftir þessu videoi. Annað hvort kemur það eða ekki. Verð að fara að lúlla í hausinn á mér svo ég keyri á öllum fimm á sýningunni á morgun.

Yfir og út krúsarknús...........