Jámm það er víst óhætt að segja það að blessaði tímin fljúgi áfram. Æðir eins og hauslaus hæna áfram og skilur mann bara eftir. Á eftir hlaupum við mannfólkið og reynum að halda í við tímann. En ég held að það sé með öllu gagnslaust.
Í dag er frumburðurinn orðin ÞRÍTUG. Halló. Skil sko ekki hvernig þetta dæmi gengur upp. Ég var sko 29 síðast þegar ég gáði. Alveg með öllu óskiljanlegt að ÉG skuli eiga dóttur sem komin er á fertugsaldurinn. Hehehehehe.....
Til hamingju með daginn elsku Lonni mín.



Annars er bara alles fínt að frétta. Ég er í einhverskonar tannlæknamaraþoni þessa daganna. Var hjá Möggu á mánudaginn í síðustu viku, aftur í gær og enn aftur í dag. Deyfingin dofnar varla á milli tíma. En nú fer þetta allt að koma. Svo er helv.... tannholdssérfræðingurinn 11 febrúar, og þá á að skafa tannsteininn og sjá til hvort að þetta fjand.... dæmi lagist ekki. Cross my fingers.

Svo má eiginlega segja að það sé líka prjónamaraþon í gangi. Var að enda við lopara á stúfinn minn hann Mikael Orra. Ótrúlega flott peysa þótt ég segi sjálf frá. Er svo núna að prjóna mér pils og ætla að prjóna peysu við það. Bara heilt dress. Munar sko ekkert um það. Má sko varla vera að því að vera í tölvunni. Þarf að prjóna. Dreymir prjóna á næturnar. Hjúkk mar. Þetta er svooo skemmtilegt. Hér er svo mynd af gæjanum í fínu peysunni frá ömmunni sinni. Versogú.

Bara sætastur.

Þórunn Emilílan mín var í nefkirtlatöku í gær. Búin að vera endalaust með hor þessi ræfill. Og þegar þau voru að fara í gær þá bara heimtaði mín að fara í náttfötum. Eitthvað hefur hana grunað að hún væri að fara að sofa. Bara skemmtilegust.

Hér er mín í smá fýlu. En var sko fljót að skipta yfir í góða skapið þegar ég bað hana að sýna mér tennurnar svo ég gæti tekið mynd af henni.

Í þessar sömu heimsókn fengu blessuð börnin að fara í bað og tók Örn að sér það verkefni að sitja yfir þeim. Og þvílíkur og annar eins buslugangur. Baðgólfið var eins og sundlaug, sonurinn kominn í svuntu þeirra Léttsveitarkvenna og samt mátti hann skipta um alveg inn að nærum.

Svo er konan búin að ráða sig í smá aukavinnu á gömlu góðu Select stöðinni. Byrja næstu helgi. Og er svo heppin að ég fæ að vinna fyrstu vaktina með Túrstæni mínum. lalalallalalala.......
En nú skal jeg í seng. Mér gengur alveg óheyrilega illa að vakna þessa morgnana. Svo ekki veitir af svefninum.
Yfir og út krúsarknús.....................

ES... Ef þið smellið á myndirnar þá má sjá þær stærri....






Svo er ég í vondum málum. Elsku besta Ríkey mín er hætt að klippa. Bara eitthvað að leika sér í skóla og svona. Og nú er sko komin tími á klipp og lit og konan bara í tjóni.
Hvað gera danir þá. Sææælll. Eigum við að ræða þetta eitthvað. Hvaða tegund af steik ert þú. Jóna spánardrós troddi mér á Facebookið fyrir nokkrum mánuðum síðan og mín var sko ekkert að fatta út á hvað þetta gengi. Fór svo að skoða þetta í fríinu og fattaði. Er núna alveg að tapa mér í þessu dæmi. Gleymi mér alveg í 1 til 2 tíma í þessu drasli. Sendi endalaust allskonar dót á My friends. hehehehe... Bara gaman að þessu. Fyrir utan tímaþjófnaðinn. Fór á útsöluna í gærkvöldi í Max. Þurfti að skila geisladisk sem ég fékk í jólagjöf. Cortes.
Átti hann fyrir. Adda mín gaf mér hann þegar hann var enn heitur. Og það var sko ekkert lítið sem þessi jólagjöf mín stækkaði við það eitt að labba inn í búðina. Kom heim með þetta líka flotta heilsugrill. Kostaði bara pínulítið meira en diskurinn. heheheeh....
Ég kvittaði bara undir vísanótuna...Var samt líka að spá í að kaupa mér sléttujárn. Vantar það alveg defenatly núna. Er sko orðin svo síðhærð. Ótrúlegt hvað mar getur verið fínn bara við það að slétta á sér hárlubbann.
En ákvað að láta það bíða. Ekki hægt að gera allt í einu. Spúsinn búin að vera svo lengi frá vinnu að það hefur komið niður á buddudruslunni. Þarf svo að fara að hitta Silluna mína. Hef ekki séð hana síðan á Þorlák.
En hann getur allaavega látið sjá sig núna. Greyið. Svo var ég að setja fullt af myndum inn á flickrið mitt, frá jólum og áramótunum. Á samt eftir að skrifa smá texta með þeim en það kemur. Verði ykkur að góðu. Áttum fín áramót í faðmi fjölskyldunnar. Vorum bara hér heima. Krakkarnir í mat og fóru ekki til síns heima fyrr en að verða hálf fjögur. Og þessi dásamlegu barnabörn mín eru sko algjörir englar. Heyrðist hvorki grenj né væl. Bara léku sér saman eins og þeim er einum lagið.
