yfir og út krúsarknús.............................
All of me
Verst að þurfa að mæta í vinnu í fyrramálið. Hefði alveg þegið það að fá frí. Finnst bara að það eigi að vera í lögum að mar fá hálfsmánaðar frí þegar fólk stendur í fluttningum. Var samt í fríi í dag og þetta er búin að vera mjög drjúgur dagur. Við mamma og pabbi fórum með fullan Opelin og jeppann þeirra af dóti. Þar á meðal borðstofuborðið og stólana. Erum búnar að taka upp úr öllum stofukössum og þvo það og þrífa. Svo er ég líka búin að raða í stofuskápinn öllu sem þar á að vera. Svo kom Olga hér eftir kvöldmat og við rusluðum öllu úr fataskápunum, öllum handklæðum og restinni af matvöru sem ekki verður notuð í þessu húsi meir. Svo bara brunuðum við vestureftir reddý í að setja flíkurnar í skápa. En æjæjæj... Haldiði ekki að mín hafi þá gleymt húslyklunum í efra. Eins gott að mar lifi á öld GSM símanna. Hringdi í kallinn og skipaði honum að koma og hleypa oss inn. Sem hann náttla gerði með glöðu geði. Svo nú er búið að hengja upp og setja í hillur öll föt. En þó ekki föt drengsinns. En mar ekkert lengi að því. Talandi um drenginn. Eitthvað mikið gerðist þegar presturinn blessaði hann hér um daginn. O.M.G. Síðan þá er hann komin í mútur og talar með mikið brostinni rödd þessi elska. Svo stækkar hann svoleiðis rosalega að það liggur við að ég sjái dagamun á honum. Og ekki nóg með það, allt í einu er hann komin í skó númer 40. Það var bara fyrir nokkrum mánuðum að hann notaði sama númer og ég. Sko 38. Ég veit ekki hvar þetta endar. Ætli ég verði bara ekki að biðja prestinn að afblessa hann.
En nú er nóg komið að bulli. Og viljið þið svo kvitta fyrir komuna. Nú er ég búin að fá kvitt nánast upp á hvern dag, svo nú verð ég bara pirr þegar engin kvittar. Ha. Bara orðin heimtufrek með meiru.
Þannig að við flytjum á fimmtudaginn. Á morgun ætlum við þá í staðin að halda áfram að flytja smá draslið í Opelnum. Fórum reyndar í dag með stofuskápinn og græjuskápinn. Þannig að stefnan er líka sett á það að þvo allt dótið sem á að vera í honum og koma því fyrir. Munar um að vera búin að því. Allt orðið svo dragfínt í Granaskjólinu og jafn skítugt hér. Hér hefur eiginlega ekkert verið gert síðan fyrir fermingu. Er í fríi á morgun og svo aftur á föstudaginn. Þá ætti allt að vera búið á mánudaginn. Þrífa hér á föstudaginn og skila lyklunum af mér á laugardaginn. Shit hvað mig hlakkar til. Alveg ferlegt að búa svona á tveimur stöðum. Ekkert heimilishald í gangi. Hef ekki meir að bulla í kvöld er eitthvað voðalega andlaus þessa stundina. Enda klukkan að verða eitt. Og mín búin að vera á fótum síðan sjö.
En það kostar náttla fullt af labbi að fá sér svoleiðis hund. þeir þurfa sína hreyfingu og ekkert múður með það. Langar ekki í þessa litlu sem eru eins og kettir eða það sem verra er ROTTUR. Væri hentugast að fá sér millistærð en Goldenin er bara flottastur. Kemur bara í ljós hvað verður. Góða nótt.

Kveð að sinni, kem snarlega til baka.
Fara svo kanski og kaupa mér eitt svona.
Ekki slæmt að geta bara farið og týnt nokkra laufseðla svona fyrir búðaferðirnar. Gott í bili. Ætla að fara og láta mig dreyma um þar næstu viku þegar ég sit í nýju fínu stofunni minni með rautt í glasi. Aldrei að vita nema spúsinn hangi vakandi nógu lengi til að opna flöskuna góðu sem hann keypti þarna um daginn. Bíð svo bara góðrar nætur.
Annars ekki mikið að frétta þar fyrir utan. Hlakka bara til þegar þetta er allt afstaðið. Og hlakka enn meira til að fá Spánardrósina ógurlegu og Kle í kaffi. Orðið alveg hrikalega langt síðan við héldum fund síðast. Bitrar kerlingar bíta mig í barkann þessa daganna. Þarf að losna við þær. hehehe.... En læt ég staðar numið og held á vit draumanna um betra líf á betri stað.
Er hætt við að láta pússa og lakka parketið. Það kosta miljón og sjö. Skilst að það kosti um 2 þúsund kall á fermeterinn og ég bara hreinlega tími því ekki. Get þá alveg eins verslað mér nýtt. Þannig að þetta verður bara eins og það er þangað til að ég tími að kaupa nýtt. Og hana nú. En nú ætla ég að lúlla.
En að sjálfsögðu gleymdi hann henni. Ekki að spyrja að því. En hann fékk bara eina lánaða í kirkju vorri. Í kirkjuna mættu amman og afinn. Systurnar tvær og lilli bróðir minn og hans family. Falleg og góð athöfn. Ungmennin alveg til fyrirmyndar. Falleg og prúð. Sýndist meirað segja að þau syngju með í sálmunum. Ármann minn var nú samt eitthvað þreyttur þessi elska. Geyspaði þessi lifandis bísn. Og kanski var honum heitt líka því eitthvað var hann að sveifla sálmabókinni við andlitið. Bara krúttlegt að fylgjast með honum. Ma og pa komu svo heim með okkur ásamt dætrunum eftir athöfn og við fengum okkur kaffi og grillað brauð.
Í salinn vorum við svo komin klukkan 5 og drifið í að setja upp dúka og skreytingar. Og simsalabimm, allt reddý um 6. Krafur í fólkinu. Og þvílíkar breddur sem ég fékk til að aðstoða mig. Allt gekk svo smurt og smart að það hálfa væri nóg. Ég er svo þakklát fyrir að eiga svona góðar vinkonur að það er sko ekkert venjulegt. Adda, Ásthildur og Birna, þið eruð kraftaverkakonur. Og Sillan mín, Tiramisu my way. Come on. Slurp slurp. Ákveðið hefur verið að ég muni bjóða þessum geddum í næs kvöldstund hér heima bráðlega, í mat og kanski SMÁ rautt kanski. Hefði aldrei getað þetta á þeirra. Og fólkið dásamaði matinn í bak og fyrir. Enda engin svikin af matnum hennar Öddu minnar.
Skreytingarnar hennar mömmu algjörlega æðislegar og frumlegar. Hverjum hefði dottið í hug að setja hænsnanet utanum kertin á veilsuborðið. Bara henni. Ferlega flott. Drengurinn algjörlega í skýjunum með daginn sinn svo allt er þetta eins og það best getur orðið. Nema að Mikael minn Orri var hundlasinn og grét og grét. Endaði með því að Baldur varð að fara heim með hann ræfilinn. Það sem á þennan litla mann minn er lagt,. Get bara ekki skilið að ekki skuli finnast eitthvað út úr þessu öllu saman. Elsku litli kallinn minn. Mig hreinlega tekur í hjartað. Lilja fór heim með mat handa Baldri svo að missti nú ekki alveg að þessu öllu saman,. Enda matmaður mikill. En nú held ég að mál sé komið á bólið hlýja.